Atvinnuvegaráðuneyti

1006/2026

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 203/2023 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1165 um að leyfa tilteknar vörur og efni til notkunar við lífræna framleiðslu og koma á fót skrám yfir þau.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 5. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2501 frá 11. desember 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/1165 að því er varðar notkun á tilteknum vörum og efnum við lífræna framleiðslu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 196/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 132.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, og II. kafla laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

Matvælastofnun er heimilt að framselja opinbert eftirlit með lífrænni framleiðslu og merkingu lífrænna vara til faggildra vottunarstofa, sbr. 23. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

Eftirlit með smásölu lífrænna vara er í höndum heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, sbr. 6. gr. k laga um matvæli, nr. 93/1995.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, og 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. j laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, og 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 2. september 2026.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 16. september 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica