Matvælaráðuneyti

203/2023

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1165 um að leyfa tilteknar vörur og efni til notkunar við lífræna framleiðslu og koma á fót skrám yfir þau.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 38/2022, frá 4. febrúar 2022, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1165 frá 15. júlí 2021 um að leyfa tilteknar vörur og efni til notkunar við lífræna framleiðslu og koma á fót skrám yfir þau. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, frá 17. mars 2022, bls. 586.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í sam­ræmi við 6. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli og II. kafla laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

Matvælastofnun er heimilt að framselja opinbert eftirlit með lífrænni framleiðslu og merkingu líf­rænna vara til faggildra vottunarstofa, sbr. 23. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breyt­­ingum.

Eftirlit með smásölu lífrænna vara er í höndum heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, sbr. 6. gr. k laga nr. 93/1995, um matvæli.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli og 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. j laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáð­vöru.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 27. febrúar 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica