2. mgr. 3. gr. skal hljóða svo:
Vátryggingarfjárhæðir vegna hvers tjónsatburðar, skulu fara eftir hámarksflugtaksþyngd og vera sem hér segir:
| 1. | Fyrir loftför með leyfðan hámarksflugtaksþunga undir 10 tonnum: |
| SDR 6.500.000 gagnvart tjóni á mönnum og öðru tjóni. | |
| 2. | Fyrir loftför með leyfðan hámarksflugtaksþunga á bilinu 10 – 25 tonn: |
| SDR 12.000.000 gagnvart tjóni á mönnum og öðru tjóni. | |
| 3. | Fyrir loftför með leyfðan hámarksflugtaksþunga á bilinu 25 – 100 tonn: |
| SDR 50.000.000 gagnvart tjóni á mönnum og öðru tjóni. | |
| 4. | Fyrir loftför með leyfðan hámarksflugtaksþunga frá og með 100 tonnum og yfir: |
| SDR 90.000.000 gagnvart tjóni á mönnum og öðru tjóni. |
2. mgr. 9. gr. skal hljóða svo: Vátryggingarskilmálar, sem reglugerð þessi tekur til, skulu látnir Fjármálaeftirlitinu og Flugmálastjórn Íslands í té áður en þeir eru boðnir vátryggingartökum.
Reglugerð þessi sem sett er skv. heimild í 131. gr. loftferðalaga nr. 60/1998, staðfestist hér með til að öðlast gildi þann 1. febrúar 2002.