Við 5. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein sem orðast svo:
Að beiðni flutningsmiðlara skal tollstjóri staðfesta hvort viðtakandi vöru njóti greiðslufrests á aðflutningsgjöldum samkvæmt reglugerð nr. 390/1999, um greiðslufrest á aðflutningsgjöldum, og/eða hvort tollafgreiðsla hafi verið stöðvuð hjá honum.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 7. gr. reglugerðarinnar:
| a. | 2. tölul. orðast svo: |
| Ekki skal reikna aðflutningsgjöld af vörum sem falla undir 2. tölul. 6. gr. Heimilt skal við fullnaðartollafgreiðslu að skila aðeins einni aðflutningsskýrslu í nafni flutningsmiðlara vegna allra sendinga sem þar falla undir. Þó skal reikna aðflutningsgjöld og skila aðflutningsskýrslu í samræmi við ákvæði 4. tölul. ef áfengi eða tóbaksvörur eru í sendingu. | |
| b. | 3. tölul. orðast svo: |
| Reikna skal 570 kr. í áætluð aðflutningsgjöld af vörum sem falla undir 3. tölul. 6. gr. Heimilt skal við fullnaðartollafgreiðslu að skila aðeins einni aðflutningsskýrslu í nafni flutningsmiðlara vegna allra sendinga sem þar falla undir. Þó skal reikna aðflutningsgjöld og skila aðflutningsskýrslu í samræmi við ákvæði 4. tölul. ef áfengi eða tóbaksvörur eru í sendingu. |