Fjármála- og efnahagsráðuneyti

493/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 340/2017, um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu.

1. gr.

15. gr. reglugerðarinnar um viðmiðunarfjárhæðir orðist svo:

Reglugerðin gildir um innkaup á vöru, þjónustu eða verki, er varðar starfsemi sem fellur undir reglugerð þessa skv. II. kafla, þar sem áætlað verðmæti án virðisaukaskatts er jafnt eða meira en eftirfarandi:

  1. 63.742.000 kr. þegar um er að ræða vörusamninga og þjónustusamninga og einnig þegar um er að ræða hönnunarsamkeppni.
  2. 797.372.000 kr. þegar um er að ræða verksamninga.
  3. 147.552.000 kr. þegar um er að ræða þjónustusamninga um félagsþjónustu og aðra sértæka þjónustu sem talin er upp í XVII. viðauka.

Innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum skv. 1. mgr. skal bjóða út innanlands sem og á Evrópska efnahagssvæðinu í samræmi við þau innkaupaferli sem nánar er kveðið á um í reglugerðinni.

2. gr.

21. gr. reglugerðarinnar um innkaup sem skipt er upp orðist svo:

Þegar innkaupum á fyrirhuguðu verki eða þjónustu er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga skal miða við samanlagt virði allra samninganna. Sama á við þegar innkaupum á vöru af svipaðri tegund er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga. Sé samanlagt virði allra samninganna yfir viðmiðunarfjárhæðum skal líta svo á að verðgildi hvers og eins samnings sé einnig yfir viðmiðunarmörkum.

Þrátt fyrir að heildavirði samninga sem greinir í 1. mgr. sé yfir viðmiðunarfjárhæðum er heimilt að gera einstaka samninga án útboðs fyrir allt að 20% af samanlagðri heildarfjárhæð allra samningshluta ef áætlað verðmæti viðkomandi samningshluta, án virðisaukaskatts, er lægra en 11.804.000 kr. vegna vöru eða þjónustu og 147.552.000 kr. vegna verks.

3. gr.

45. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Kaupendum sem falla undir gildissvið reglugerðar þessarar, sbr. 3. og 4. gr., er heimilt að nota þjónustu miðlægrar innkaupastofnunar, sbr. 99. gr. laga um opinber innkaup, nr. 120/2016. Opinberum fyrirtækjum á vegum ríkisins er þar að auki heimilt að taka þátt í tilteknum sameiginlegum innkaupum eða vera aðilar að rammasamningum á vegum miðlægrar innkaupastofnunar, enda verði þeim ekki jafnað við einkaaðila í samkeppnisrekstri.

4. gr.

103. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Kaupendum sem falla undir gildissvið reglugerðar þessarar, sbr. 3. og 4. gr., er heimilt að nota þjónustu miðlægrar innkaupastofnunar sbr. 99. gr. laga um opinber innkaup, nr. 120/2016. Opinberum fyrirtækjum á vegum ríkisins er þar að auki heimilt að taka þátt í tilteknum sameiginlegum innkaupum eða vera aðilar að rammasamningum á vegum miðlægrar innkaupastofnunar, enda verði þeim ekki jafnað við einkaaðila í samkeppnisrekstri.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2025/2150 frá 22. október 2025 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/25/ESB að því er varðar viðmiðunarfjárhæðir vegna vöru-, þjónustu- og verksamninga og hönnunarsamkeppna.

Reglugerðin er sett með heimild í 2. mgr. 9. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 og öðlast þegar gildi 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 4. maí 2026.

F. h. r.

Jón Gunnar Vilhelmsson.

Þorsteinn Júlíus Árnason.

B deild - Útgáfudagur: 19. maí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica