Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 6. mars 2024

340/2017

Reglugerð um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu.

Birta efnisyfirlit

I. KAFLI Tilgangur, gildissvið og almennar meginreglur.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðarinnar er að tryggja jafnræði fyrirtækja, stuðla að hagkvæmni með virkri samkeppni og efla nýsköpun og þróun við innkaup á vörum, verkum og þjónustu.

Með reglugerðinni er kveðið á um sameiginlegar reglur um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu í samræmi við 2. mgr. 9. gr. laga um opinber innkaup.

2. gr. Orðskýringar.

Að teknu tilliti til séreinkenna þeirrar starfsemi sem fellur undir gildissvið reglugerðarinnar skal merking orða í reglugerð þessari vera í samræmi við orðskýringar í 2. gr. laga um opinber innkaup.

Kaupandi: Opinber aðili skv. 3. gr., opinbert fyrirtæki eða fyrirtæki sem starfar á grundvelli sérstakra réttinda eða einkaréttar, skv. 4. gr., sem fara með starfsemi á sviði gass eða hita, raforku, vatns, flutningaþjónustu, hafnar- eða flugvallarmála, póstþjónustu eða olíu- og gasvinnslu eða vinnslu á öðru eldsneyti í föstu formi, sbr. 8.-14. gr.

Tilskipunin (veitutilskipunin): Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/25/ESB um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu eins og hún var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 97/2016 frá 29. apríl 2016.

3. gr. Opinberir aðilar.

Opinberir aðilar eru ríki, sveitarfélög, stofnanir þeirra og aðrir opinberir aðilar, skv. 2. mgr. Samtök sem þessir aðilar, einn eða fleiri, hafa með sér geta einnig talist til opinberra aðila.

Aðili telst opinber ef hann getur borið réttindi og skyldur að lögum og sérstaklega hefur verið stofnað til hans í því skyni að þjóna almannahagsmunum, enda reki hann ekki starfsemi sem jafnað verður til starfsemi einkaaðila, svo sem á sviði viðskipta eða iðnaðar. Auk þess skal eitthvert eftirfarandi atriða eiga við um hann:

  1. Starfsemi hans er að mestu leyti rekin á kostnað ríkis eða sveitarfélaga, stofnana þeirra eða annarra opinberra aðila. Miðað skal við að aðili sé að mestu leyti rekinn á kostnað ríkis eða sveitarfélaga, stofnana þeirra eða annarra opinberra aðila ef opinber fjármögnun nemur meira en 50% af árlegum rekstrarkostnaði.
  2. Hann lýtur yfirstjórn ríkis eða sveitarfélaga, stofnana þeirra eða annarra opinberra aðila.
  3. Hann lýtur sérstakri stjórn sem ríki eða sveitarfélög, stofnanir þeirra eða aðrir opinberir aðilar skipa að meirihluta.

4. gr. Opinber fyrirtæki og aðrir aðilar sem starfa á grundvelli sérstakra réttinda eða einkaréttar.

Reglugerðin tekur til opinberra aðila, skv. 3. gr., og opinberra fyrirtækja sem fara með starfsemi á sviði gass eða hita, raforku, vatns, flutningaþjónustu, hafnar- eða flugvallarmála, póstþjónustu eða olíu- og gasvinnslu eða vinnslu á öðru eldsneyti í föstu formi, sbr. 8.-14. gr.

Opinbert fyrirtæki samkvæmt reglugerð þessari er hver sá aðili sem opinberir aðilar geta haft, beint eða óbeint, ráðandi áhrif á vegna eignarhalds, fjárhagslegrar þátttöku eða reglna sem um það gilda.

Ráðandi áhrif skulu teljast vera fyrir hendi þgegar opinberir aðilar, beint eða óbeint:

  1. eiga meirihluta skráðs hlutafjár í fyrirtæki,
  2. ráða yfir meirihluta atkvæða sem tengjast hlutafjáreign í fyrirtæki, eða
  3. hafa rétt til að skipa meira en helming fulltrúa í stjórn, framkvæmdastjórn eða eftirlitsstjórn fyrirtækis.

Reglugerðin tekur einnig til annarra aðila sem fara með starfsemi sem fellur undir 8.-14. gr., og starfa á grundvelli sérstakra réttinda eða einkaréttar sem opinberir aðilar hafa veitt þeim.

Fyrirtæki skulu teljast starfa á grundvelli sérstakra réttinda eða einkaréttar, þegar þeim hefur verð veittur slíkur réttur á grundvelli laga- eða stjórnsýslufyrirmæla, sem takmarka starfsemi, skv. 8.-14. gr. við einn eða fleiri aðila og hafa veruleg áhrif á möguleika annarra aðila á því að stunda slíka starfsemi. Þó skulu réttindi sem hafa verið veitt með opinberri og gagnsærri málsmeðferð, þar sem veiting réttindanna byggist á hlutlægum viðmiðunum, ekki teljast vera sérstök réttindi eða einkaréttur í þessum skilningi.

5. gr. Samningar sem reglugerðin tekur til.

Reglugerðin tekur til vöru-, þjónustu- og verksamninga um fjárhagslegt endurgjald sem einn eða fleiri kaupendur skv. 4. gr. gera við eitt eða fleiri fyrirtæki og hafa að markmiði framkvæmd verks, sölu vara eða veitingu þjónustu sem fellur undir gildissvið reglugerðarinnar. Slíkir samningar skulu ávallt gerðir skriflega.

Til verksamninga teljast samningar sem hafa að markmiði framkvæmd, eða bæði hönnun og framkvæmd, verka sem tengjast einhverri þeirri starfsemi sem um getur í I. viðauka tilskipunarinnar eða verks, eða hvers konar framkvæmd verks sem svarar til krafna sem settar eru fram af kaupanda sem hefur afgerandi áhrif á gerð eða hönnun verksins.

Til vörusamninga teljast samningar sem hafa að markmiði kaup, leigu eða fjármögnunarleigu, með eða án kaupréttar, á vörum. Samningur sem felur í sér tilfallandi ísetningu eða uppsetningu vöru telst vörusamningur.

Til þjónustusamninga teljast samningar sem hafa að markmiði veitingu þjónustu annarrar en þeirrar sem um getur í verksamningum skv. 2. mgr.

6. gr. Blandaðir samningar sem varða sömu starfsemi.

Samningar, sem falla undir reglugerðina og varða í senn tvær eða fleiri tegundir innkaupa, þ.e. á verkum, þjónustu eða vörum, skulu gerðir í samræmi við ákvæði sem gilda um þá tegund innkaupa sem einkennir meginefni samnings.

Þegar um er að ræða blandaða samninga sem varða að hluta félagsþjónustu og aðra sértæka þjónustu, skv. X. kafla reglugerðarinnar, og að hluta aðra þjónustu, eða blandaða samninga, sem varða að hluta þjónustu og að hluta vörur, skal ákvarða hvert meginefni samningsins er út frá því hvor viðkomandi þjónustuþátta hefur hærra áætlað verðmæti eða hvort áætlað verðmæti þjónustu- eða vöruþáttarins er hærra.

Þegar um er að ræða samninga sem fjalla um innkaup sem falla undir reglugerðina auk innkaupa sem ekki falla undir hana, getur kaupandi valið á milli þess að gera aðskilda samninga fyrir aðskilda hluta þeirra eða gera einn stakan samning. Þegar kaupandi ákveður að gera aðskilda samninga fyrir aðskilda hluta skal ákvörðunin um það hvaða reglur gilda um hvern og einn slíkra aðskilinna samninga tekin á grundvelli einkenna viðkomandi hluta. Þegar kaupandi ákveður að gera stakan samning skal reglugerðin gilda, nema kveðið sé á um annað í 31. gr., um þann blandaða samning sem til verður, óháð verðmæti þeirra hluta hans sem myndu annars falla undir aðrar reglur og óháð því hvaða lagareglur þeir hlutar myndu annars falla undir. Þegar um er að ræða blandaða samninga sem innihalda í senn þætti vöru-, verk- og þjónustusamninga og sérleyfa, skal blandaði samningurinn gerður í samræmi við reglugerðina að því tilskildu að áætlað verðmæti þess hluta sem fellur undir reglugerðina, reiknað út í samræmi við 17.-23. gr., sé jafnhátt eða hærra en viðeigandi viðmiðunarfjárhæð sem sett er fram í 15. gr.

Þar sem ekki er hægt að aðskilja mismunandi hluta tiltekins samnings með hlutlægum hætti, skal ákvarða hvaða reglur eigi við á grundvelli meginefnis samningsins.

7. gr. Innkaup sem taka til margs konar starfsemi.

Kaupandi getur, þegar um er að ræða samninga sem ætlað er að taka til margs konar starfsemi, kosið að gera aðskilda samninga vegna hverrar starfsemi fyrir sig eða gert einn stakan samning. Þegar kaupandi ákveður að gera aðskilda samninga skal ákvörðunin um það hvaða reglur gilda um hvern og einn slíkra aðskilinna samninga tekin á grundvelli einkenna þeirrar starfsemi sem í hlut á.

Þrátt fyrir 6. gr. gilda eftirfarandi 4. og 5. mgr. þegar kaupandi ákveður að gera stakan samning. Ef ein hlutaðeigandi starfsemi fellur undir reglugerð um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála gildir hins vegar 32. gr.

Standi valið á milli þess að gera einn samning eða nokkra aðskilda samninga skal slíkt val þó ekki hafa þann tilgang að komast hjá beitingu reglugerðarinnar, lögum um opinber innkaup eða reglugerð um gerð sérleyfissamninga.

Þegar einn stakur samningur er gerður, sem tekur til margs konar starfsemi, skal fara eftir þeim reglum sem gilda um þá starfsemi, sem telst vera meginviðfangsefni samningsins.

Þegar um er að ræða samning þar sem ekki er hægt að ákvarða á hlutlægan hátt hvaða starfsemi er meginviðfangsefni samningsins skal eftirfarandi gilda:

  1. Samningurinn skal gerður í samræmi við ákvæði laga um opinber innkaup ef önnur þeirrar starfsemi sem samningnum er ætlað að ná yfir fellur undir reglugerðina og hin starfsemin undir almennar innkaupareglur laga um opinber innkaup.
  2. Samningurinn skal gerður í samræmi við reglugerð þessa ef önnur þeirrar starfsemi sem samningnum er ætlað að ná yfir fellur undir reglugerð þessa og hin starfsemin undir reglugerð um gerð sérleyfissamninga.
  3. Samningurinn skal gerður í samræmi við reglugerðina ef önnur þeirrar starfsemi sem samningnum er ætlað að ná yfir fellur undir reglugerðina og hin starfsemin fellur hvorki undir innkaupreglur laga um opinber innkaup, reglugerðina né reglugerð um gerð sérleyfissamninga.

II. KAFLI Starfsemi sem fellur undir reglugerð þessa.

8. gr. Gas og hiti.

Að því er varðar gas og hita gildir reglugerðin um eftirtalda starfsemi:

  1. Að bjóða fram eða starfrækja föst veitukerfi sem eiga að þjóna almenningi í tengslum við framleiðslu, flutning eða dreifingu á gasi eða hita.
  2. Að afhenda gas eða hita til slíkra veitukerfa hvort sem það er vegna framleiðslu, heildsölu eða smásölu.

Þegar kaupandi, sem er ekki opinber aðili skv. 3. gr., afhendir gas eða hita til fastra veitukerfa sem þjóna almenningi skal sú starfsemi ekki falla undir 1. mgr. ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:

  1. Gas- eða hitaframleiðsla viðkomandi kaupanda er óhjákvæmileg afleiðing af starfsemi sem ekki er getið um í 1. mgr. þessarar greinar eða í 9.-11. gr.
  2. Afhending til almenningsveitukerfisins miðar einungis að því að hafa hagnað af slíkri framleiðslu og nemur ekki meira en 20% af veltu kaupanda miðað við meðaltal undanfarinna þriggja ára, að yfirstandandi ári meðtöldu.

9. gr. Raforka.

Að því er raforku varðar gildir reglugerðin um eftirtalda starfsemi:

  1. Að bjóða fram eða starfrækja föst veitukerfi sem eiga að þjóna almenningi í tengslum við raforkuframleiðslu, raforkuflutning eða rafveitu.
  2. að afhenda raforku til slíkra veitukerfa hvort sem það er vegna framleiðslu, heildsölu eða smásölu.

Þegar kaupandi, sem ekki er opinber aðili skv. 3. gr., afhendir raforku til fastra veitukerfa sem þjóna almenningi skal sú starfsemi ekki falla undir 1. mgr. ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:

  1. Framleiðsla viðkomandi kaupanda á raforku á sér stað vegna þess að notkun hennar er nauðsynleg til að stunda starfsemi sem ekki er getið um í 1. mgr. þessarar greinar eða 8., 10. og 11. gr.
  2. Afhending til almenningsveitukerfisins er einungis háð eigin notkun kaupandans og hefur ekki farið yfir 30% af heildarframleiðslu hans á orku miðað við meðaltal undanfarinna þriggja ára, að yfirstandandi ári meðtöldu.

10. gr. Vatn.

Að því er vatn varðar gildir reglugerðin um eftirtalda starfsemi:

  1. Að bjóða fram eða starfrækja föst veitukerfi sem eiga að þjóna almenningi í tengslum við framleiðslu, flutning eða dreifingu á drykkjarvatni.
  2. Að afhenda drykkjarvatn til slíkra veitukerfa, hvort sem það er vegna framleiðslu, heildsölu eða smásölu.

Reglugerð þessi gildir einnig um samninga sem eru gerðir eða hönnunarsamkeppnir sem eru skipulagðar af kaupanda sem hefur með höndum starfsemi sem um getur í 1. mgr. sem varða eitt af eftirfarandi:

  1. Verkefni í tengslum við vatnsvirkjun, áveitu eða framræslu, að því tilskildu að magn vatnsins, sem afhenda á sem drykkjarvatn, sé meira en 20% af heildarvatnsmagninu sem er gert aðgengilegt með slíkum mannvirkjum eða áveitu- og framræslubúnaði.
  2. Förgun eða hreinsun skólps.

Þegar kaupandi, sem ekki er opinber aðili skv. 3. gr., afhendir drykkjarvatn til fastra veitukerfa sem þjóna almenningi skal sú starfsemi ekki falla undir 1. mgr. ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:

  1. Framleiðsla viðkomandi kaupanda á drykkjarvatni á sér stað vegna þess að notkun þess er nauðsynleg til að stunda starfsemi sem ekki er getið um í 8.-11. gr.
  2. Afhending til almenningsveitukerfisins er einungis háð eigin notkun kaupandans og hefur ekki farið yfir 30% af heildarframleiðslu hans á drykkjarvatni miðað við meðaltal undanfarinna þriggja ára, að yfirstandandi ári meðtöldu.

11. gr. Flutningaþjónusta.

Reglugerðin gildir um starfsemi í tengslum við framboð eða starfrækslu á kerfum sem þjóna almenningi á sviði flutninga með járnbrautum, sjálfvirkum kerfum, sporvögnum, strætisvögnum, hópbifreiðum eða togbrautum.

Í flutningaþjónustu telst vera um kerfi að ræða þegar þjónusta er veitt samkvæmt rekstrarskilyrðum sem yfirvöld setja, svo sem varðandi þær leiðir sem þjónustan er veitt á, sætaframboð og ferðatíðni.

12. gr. Hafnir og flugvellir.

Reglugerðin gildir um starfsemi sem tengist nýtingu landsvæðis í þeim tilgangi að sjá aðilum, sem flytja farm í lofti eða á sjó, fyrir flugvöllum og höfnum, eða veita aðra stöðvaraðstöðu.

13. gr. Póstþjónusta.

Reglugerðin gildir um starfsemi sem tengist veitingu:

  1. Póstþjónustu.
  2. Annarrar þjónustu en póstþjónustu, að því tilskildu að slík þjónusta sé veitt af aðila, sem veitir einnig póstþjónustu í skilningi laga um póstþjónustu, og að skilyrðin, sem sett eru í 1. mgr. 39. gr. eigi ekki við.

14. gr. Olíu- og gasvinnsla.

Reglugerðin gildir um starfsemi í tengslum við nýtingu landsvæða þar sem vinna á olíu eða gas eða leita að eða vinna kol eða annað eldsneyti í föstu formi.

III. KAFLI Viðmiðunarfjárhæðir.

15. gr. Viðmiðunarfjárhæðir.

Reglugerðin gildir um innkaup á vöru, þjónustu eða verki, er varðar starfsemi sem fellur undir reglugerð þessa skv. II. kafla, þar sem áætlað verðmæti án virðisaukaskatts er jafnt eða meira en eftirfarandi:

  1. 64.640.000 kr. þegar um er að ræða vörusamninga og þjónustusamninga og einnig þegar um er að ræða hönnunarsamkeppni.
  2. 808.084.000 kr. þegar um er að ræða verksamninga.
  3. 145.916.000 kr. þegar um er að ræða þjónustusamninga um félagsþjónustu og aðra sértæka þjónustu sem talin er upp í XVII. viðauka.

Innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum skv. 1. mgr. skal bjóða út innanlands sem og á Evrópska efnahagssvæðinu í samræmi við þau innkaupaferli sem nánar er kveðið á um í reglugerðinni.

16. gr. Innkaup undir viðmiðunarfjárhæðum.

Við innkaup undir viðmiðunarfjárhæðum skal kaupandi ávallt gæta að hagkvæmni og meginreglum um jafnræði, gagnsæi og banni við mismunun.

17. gr. Útreikningur virðis samninga.

Við útreikning á áætluðu virði samnings skal miða við þá heildarfjárhæð sem kaupandi mun greiða fyrir innkaup, að frátöldum virðisaukaskatti. Við þennan útreikning skal taka tillit til heildarfjárhæðar, þar á meðal hvers konar valkvæðra ákvæða og hugsanlegrar framlengingar samnings sem kveðið er á um í útboðsgögnum.

Ef kaupandi hyggst bjóða þátttakendum í innkaupaferli verðlaunafé eða aðrar aukagreiðslur skal taka tillit til þess við útreikning á áætluðu virði samnings.

Útreikningur skal miðast við þann tíma þegar útboðsauglýsing er send til opinberrar birtingar eða þegar kaupandi hefst handa við innkaupaferli þegar ekki er skylt að tilkynna opinberlega um innkaup.

Óheimilt er að skipta upp verki eða innkaupum á vöru og/eða þjónustu í því skyni að innkaup verði undir viðmiðunarfjárhæðum, nema slíkt sé réttlætanlegt á grundvelli hlutlægra ástæðna.

Þegar kaupandi skiptist í aðskildar skipulagseiningar skal taka tillit til áætlaðrar heildarfjárhæðar innkaupa allra eininga. Ef skipulagseining ber sjálfstæða ábyrgð á innkaupum sínum eða tilteknum tegundum þeirra má áætla verðmæti þeirra án tillits til heildarinnkaupa kaupandans.

18. gr. Útreikningur virðis verksamninga.

Við útreikning á áætluðu virði verksamnings skal miða við kostnað við verkið auk áætlaðs heildarverðmætis vöru og þjónustu sem kaupandi lætur fyrirtæki í té, að því tilskildu að það sé nauðsynlegt við framkvæmd verksins.

19. gr. Útreikningur virðis vörusamninga.

Þegar um er að ræða samninga um fjármögnunarleigu, leigu eða kaupleigu á vöru skal reikna virði með eftirfarandi hætti:

  1. Þegar samningur er tímabundinn til 12 mánaða eða skemur skal miða við heildarsamningsfjárhæð. Þegar samningur er bundinn til lengri tíma skal miða við heildarfjárhæð auk virðis vöru við lok samningstímans.
  2. Þegar samningur er ótímabundinn eða óvíst er hver samningstíminn verður skal miða við heildargreiðslur samkvæmt samningnum í 48 mánuði.

20. gr. Útreikningur virðis þjónustusamninga.

Þegar um er að ræða tryggingarþjónustu skal miða virði samnings við fjárhæð iðgjalda og aðra þóknun sem greidd er. Þegar um er að ræða banka- og fjármálaþjónustu skal miða við þóknun umboðslauna og vaxta auk annarra greiðslna. Þegar um er að ræða samninga um hönnun skal miða við fjárhæð gjalda, umboðslaun og aðra þóknun sem greidd er.

Þegar um er að ræða samninga þar sem heildarfjárhæð er ótilgreind skal reikna virði út með eftirfarandi hætti:

  1. Þegar samningur er gerður til 48 mánaða eða skemmri tíma skal miða við áætlaða samningsfjárhæð allan gildistíma samningsins.
  2. Þegar samningur er ótímabundinn eða óvíst er hver samningstíminn verður skal miða við heildargreiðslur samkvæmt samningnum í 48 mánuði.

21. gr. Innkaup sem skipt er upp.

Þegar innkaupum á fyrirhuguðu verki eða þjónustu er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga skal miða við samanlagt virði allra samninganna. Sama á við þegar innkaupum á vöru af svipaðri tegund er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga. Sé samanlagt virði allra samninganna yfir viðmiðunarfjárhæðum skal líta svo á að verðgildi hvers og eins samnings sé einnig yfir viðmiðunarmörkum.

Þrátt fyrir að heildavirði samninga sem greinir í 1. mgr. sé yfir viðmiðunarfjárhæðum er heimilt að gera einstaka samninga án útboðs fyrir allt að 20% af samanlagðri heildarfjárhæð allra samningshluta ef áætlað verðmæti viðkomandi samningshluta, án virðisaukaskatts, er lægra en 11.673.000 kr. vegna vöru eða þjónustu og 145.916.000 kr. vegna verks.

22. gr. Útreikningur virðis viðvarandi eða endurnýjanlegra vöru- og þjónustusamninga.

Þegar um er að ræða viðvarandi samninga eða samninga sem endurnýja á innan tiltekins tíma skal reikna áætlað virði út með eftirfarandi hætti:

  1. annaðhvort með hliðsjón af heildarfjárhæð áþekkra samninga á undangengnu fjárhagsári eða síðustu 12 mánuðum, að teknu tilliti til breytinga á magni og verði fyrir næstkomandi 12 mánuði,
  2. eða með hliðsjón af áætluðum kostnaði fyrir næstu 12 mánuði, eða lengra tímabil ef því er að skipta, frá því að vara eða þjónusta er fyrst innt af hendi.

Óheimilt er að nota sérstakar aðferðir við útreikning í því skyni að komast hjá útboðsskyldu.

23. gr. Áætlun virðis rammasamninga, gagnvirkra innkaupakerfa og nýsköpunarsamstarfs.

Þegar um er að ræða rammasamning eða gagnvirkt innkaupakerfi skal miða virði við heildarfjárhæð allra samninga, án virðisaukaskatts, sem áætlað er að gera á gildistíma rammasamnings eða gagnvirks innkaupakerfis.

Þegar um er að ræða nýsköpunarsamstarf skal miða virði við áætlað hámarksverðmæti rannsókna og þróunarstarfsemi, án virðisaukaskatts, á öllum stigum fyrirhugaðs samstarfs, auk verðmætis vöru, þjónustu eða verka sem þróuð verða og keypt í lok samstarfs.

IV. KAFLI Undanþáguákvæði.

24. gr. Endursala eða leiga til þriðja aðila.

Reglugerðin gildir ekki um samninga sem gerðir eru vegna endursölu eða leigu til þriðja aðila, ef kaupandi nýtur hvorki sérstakra réttinda né einkaréttar til að selja eða leigja það sem efni samningsins nær til og að öðrum aðilum sé frjálst að selja eða leigja það sem efni samningsins nær til með sömu skilmálum og kaupandi.

Kaupandi skal tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA, ef óskað er eftir því, um flokka vöru eða starfsemi sem hann telur að sé undanskilin skv. 1. mgr. Eftirlitsstofnun EFTA getur birt reglulega í EES-viðbæti skrá yfir flokka vöru og starfsemi sem hún telur að þessi undantekning taki til. Eftirlitsstofnun EFTA skal virða öll viðkvæm sjónarmið, viðskiptalegs eðlis, sem kaupandi bendir á þegar hann afhendir upplýsingarnar.

25. gr. Samningar gerðir í öðrum tilgangi en að inna af hendi starfsemi sem fellur undir reglugerðina eða framkvæmdir utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Reglugerð þessi gildir ekki um samninga sem kaupandi gerir í öðrum tilgangi en að inna af hendi starfsemi sem lýst er í II. kafla reglugerðarinnar eða í þeim tilgangi að inna af hendi slíka starfsemi í þriðja landi við skilyrði sem fela ekki í sér efnislega notkun kerfis eða landsvæðis innan Evrópska efnahagssvæðisins, né gilda þeir um hönnunarsamkeppnir sem skipulagðar eru í slíkum tilgangi.

Kaupandi skal tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA, ef stofnunin óskar eftir því, um flokka vöru eða starfsemi sem hann telur að sé undanskilin skv. 1. mgr. Eftirlitsstofnun EFTA getur birt reglulega í EES-viðbæti skrá yfir flokka vöru og starfsemi sem hún telur að þessi undantekning taki til. Eftirlitsstofnun EFTA skal virða öll viðkvæm sjónarmið, viðskiptalegs eðlis, sem kaupandi bendir á þegar hann afhenda upplýsingarnar.

26. gr. Samningar gerðir á grundvelli milliríkjasamninga eða af alþjóðastofnun.

Reglugerðin gildir ekki um samninga sem kaupanda er skylt að gera eða hönnunarsamkeppnir sem honum er skylt að skipuleggja í samræmi við önnur innkaupaferli en mælt er fyrir um í reglugerðinni, sem komið er á með einhverjum eftirfarandi hætti:

  1. Með samningi eða samkomulagi sem felur í sér þjóðréttarskuldbindingu, þ.e. alþjóðasamningi sem gerður er í samræmi við EES-samninginn, milli ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins og eins eða fleiri þriðju landa eða hluta þeirra og sem tekur til verka, vara eða þjónustu vegna verkefna sem undirritunaraðilar ætla að framkvæma eða nýta sameiginlega.
  2. Af alþjóðastofnun.

Sérhvern samning eða samkomulag sem um getur í a-lið 1. mgr. skal senda til Eftirlitsstofnunar EFTA.

Reglugerðin gildir ekki um samning eða hönnunarsamkeppni sem skipulögð er í samræmi við reglur um innkaup sem kveðið er á um af alþjóðastofnun eða alþjóðlegri fjármálastofnun, ef slík stofnun fjármagnar að öllu leyti viðkomandi samning eða hönnunarsamkeppni. Þegar um er að ræða samning eða hönnunarsamkeppni sem er fjármögnuð að mestu leyti af alþjóðastofnun eða alþjóðlegri fjármálastofnun skulu aðilar koma sér saman um viðeigandi innkaupaferli.

Ákvæði 33. gr. gilda um samning sem gerður er og hönnunarsamkeppni sem skipulögð er í samræmi við alþjóðlegar reglur og varða varnir og öryggi. Ákvæði 1. og 2. mgr. skulu ekki eiga við um slíkan samning eða hönnunarsamkeppni.

27. gr. Sérstakar undanþágur vegna þjónustusamninga.

Reglugerð þessi tekur ekki til þjónustusamninga er varða:

  1. Kaup eða leigu, gegn hvers konar fjárhagslegu endurgjaldi, á jörð, byggingum sem þegar hafa verið reistar eða öðrum fasteignum eða réttindum yfir þeim.
  2. Kaup, þróun og framleiðslu á dagskrárefni fyrir útvarp og sjónvarp eða samninga um útsendingartíma.
  3. Gerðardóma og sáttameðferðir.
  4. Málflutning lögmanns fyrir hönd skjólstæðings eða sáttaumleitan fyrir opinberum stofnunum, dómstólum eða gerðardómi eða fyrir öðrum alþjóðlegum dómstólum eða stofnunum.
  5. Lögfræðiráðgjöf sem veitt er við undirbúning málsmeðferðar skv. d-lið.
  6. Lögfræðiþjónustu sem fjárhaldsmaður eða talsmaður skipaður af dómstól eða undir eftirliti dómstóls veitir lögum samkvæmt.
  7. Vottun skjala og sannvottunarþjónustu sem lögbókandi veitir.
  8. Aðra lögfræðiþjónustu sem tengist beitingu opinbers valds.
  9. Fjármálaþjónustu í tengslum við útgáfu, sölu, kaup eða aðilaskipti að verðbréfum eða öðrum sambærilegum fjármálagerningum.
  10. Lán, hvort sem þau eru eða eru ekki í tengslum við útgáfu, sölu, kaup eða aðilaskipti að verðbréfum eða öðrum fjármálagerningum.
  11. Vinnu- eða ráðningarsamninga.
  12. Almannavarnir og aðra forvarnaþjónustu gegn hættum sem stofnanir eða samtök, sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni, veita, að undanskildum flutningi sjúklinga með sjúkraflutningsþjónustu.
  13. Almenna farþegaflutninga með lestum eða jarðlestum.

28. gr. Samningar sem gerðir eru á grundvelli einkaréttar.

Reglugerðin tekur ekki til þjónustusamninga sem gerðir eru við aðila eða félag aðila sem sjálfir teljast kaupendur eða á grundvelli einkaréttar sem þeir njóta samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum sem eru í samræmi við reglur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.

29. gr. Samningar sem tilteknir kaupendur gera um kaup á vatni og um afhendingu á orku eða eldsneyti til að framleiða orku.

Reglugerðin gildir ekki um eftirfarandi:

  1. Samninga um kaup á vatni ef þeir eru gerðir af kaupendum sem stunda aðra eða báðar tegundir þeirrar starfsemi í tengslum við drykkjarvatn sem um getur í 1. mgr. 10. gr.
  2. Samninga sem kaupendur, sem sjálfir eru virkir í orkugeiranum með því að hafa með höndum starfsemi sem um getur í 1. mgr. 8. gr., 1. mgr. 9. gr. eða 14. gr., gera um afhendingu á orku eða eldsneyti til orkuframleiðslu.

30. gr. Varnir og öryggi.

Að því er varðar samninga sem eru gerðir, og hönnunarsamkeppnir sem eru skipulagðar, á sviði varna og öryggis, gildir reglugerð þessi ekki um:

  1. Samninga sem falla undir gildissvið reglugerðar um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála.
  2. Samninga sem reglugerð um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála gildir ekki um, sbr. 10., 21. og 22. gr. þeirrar reglugerðar.

Reglugerðin gildir ekki um samninga og hönnunarsamkeppnir, sem annars eru ekki undanþegin skv. 1. mgr., að því marki sem ekki er hægt að tryggja öryggishagsmuni ríkisins með aðgerðum sem ekki ganga eins langt, t.d. með því að setja kröfur sem miða að því að varðveita leynd upplýsinga sem kaupandi lætur í té í útboðsferli fyrir samningsgerð eins og kveðið er á um í þessari reglugerð.

Í samræmi við 123. gr. EES-samningsins gildir reglugerð þessi enn fremur ekki um samninga og hönnunarsamkeppnir, sem annars eru ekki undanþegin skv. 1. mgr. þessarar greinar, ef beiting reglugerðarinnar myndi skylda ríkið til að veita upplýsingar sem það telur andstætt mikilvægum öryggishagsmunum sínum.

Ef lýst er yfir að innkaupin eða framkvæmd samnings eða hönnunarsamkeppni séu leynileg eða ef þeim verða að fylgja sérhæfðar öryggisráðstafanir gildir reglugerð þessi ekki ef í ljós kemur að ekki er hægt að tryggja þá hagsmuni sem um getur í 2. mgr., með aðgerðum sem eru minna íþyngjandi.

31. gr. Blandaðir samningar sem varða sömu starfsemi og snúa að vörnum eða öryggi.

Þegar um er að ræða blandaða samninga sem varða sömu starfsemi og sem fjalla í senn um innkaup sem falla undir reglugerð þessa og innkaup eða aðra þætti sem falla undir 123. gr. EES-samningsins eða reglugerð um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála gildir ákvæði þessarar greinar.

Þegar hægt er að aðskilja mismunandi hluta tiltekins samnings með hlutlægum hætti getur kaupandi kosið að gera aðskilda samninga fyrir aðskilda hluta eða gera stakan samning. Þegar kaupandi ákveður að gera aðskilda samninga fyrir aðskilda hluta skal ákvörðunin um það hvaða reglur gilda um hvern og einn þessara aðskildu samninga tekin á grundvelli þess sem einkennir meginefni hvers samnings.

Þegar kaupandi ákveður að gera stakan samning, skal beita eftirfarandi viðmiðunum til að ákvarða hvaða reglur eiga við:

  1. Þegar hluti tiltekins samnings fellur undir 123. gr. EES-samningsins er heimilt að gera samning án þess að beita reglugerð þessari, að því tilskildu að gerð staks samnings sé réttlætanleg á grundvelli hlutlægra ástæðna.
  2. Þegar hluti tiltekins samnings fellur undir reglugerð um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála er heimilt að gera samning í samræmi við þá reglugerð, að því tilskildu að gerð staks samnings sé réttlætanleg á grundvelli hlutlægra ástæðna.
  3. Ákvæði a-liðar skal gilda um blandaða samninga sem bæði a- og b-liður gætu annars gilt um.

Ákvörðun um að gera stakan samning skal ekki tekin í þeim tilgangi að sniðganga ákvæði reglugerðar þessarar eða reglugerðar um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála.

Þegar ekki er hægt að aðskilja mismunandi hluta tiltekins samnings með hlutlægum hætti er heimilt að gera samning án þess að beita reglugerð þessari hafi hann að geyma þætti sem varða 123. gr. EES-samningsins. Að öðrum kosti er heimilt gera samning í samræmi við reglugerð um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála.

32. gr. Innkaup sem taka til margs konar starfsemi og snúa að vörnum eða öryggi.

Þegar um er að ræða samninga sem ætlað er að taka til margs konar starfsemi getur kaupandi kosið að gera aðskilda samninga vegna hverrar starfsemi fyrir sig eða gert stakan samning. Þegar kaupandi ákveður að gera aðskilda samninga fyrir aðskilda hluta skal ákvörðunin um það hvaða reglur gilda um hvern og einn slíkra aðskilinna samninga tekin á grundvelli þess sem einkennir meginefni hvers samnings.

Þegar kaupandi ákveður að gera stakan samning gildir 3. mgr. þessarar greinar. Standi valið á milli þess að gera einn samning og nokkra aðskilda samninga skal slíkt val ekki hafa þann tilgang að samningur falli utan gildissviðs reglugerðar þessarar eða reglugerðar um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála.

Þegar um er að ræða samninga sem ætlað er að taka til starfsemi sem fellur undir reglugerð þessa og sem falla einnig:

  1. undir reglugerð um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála eða
  2. undir 123. gr. EES-samningsins,
  3. er heimilt að gera samning í samræmi við reglugerð um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála í þeim tilvikum sem nefnd eru í a-lið og gera samning án þess að beita reglugerð þessari í tilvikum sem um getur í b-lið. Heimilt er að gera samninga sem um getur í a-lið, sem taka einnig til innkaupa eða annarra þátta sem falla undir 123. gr. EES-samningsins, án þess að beita reglugerð þessari.

Skilyrði fyrir beitingu 3. mgr. er að gerð staks samnings sé réttlætanleg á grundvelli hlutlægra ástæðna og að ákvörðunin um að gera stakan samning sé ekki tekin í þeim tilgangi að sniðganga ákvæði reglugerðar þessarar.

33. gr. Samningar og hönnunarsamkeppnir sem eru í samræmi við alþjóðlegar reglur og snúa að vörnum og öryggi.

Reglugerð þessi gildir ekki um samninga eða hönnunarsamkeppnir er varða varnir og öryggi sem kaupanda er skylt að gera eða skipuleggja í samræmi við önnur innkaupaferli en mælt er fyrir um í reglugerð þessari, sem komið er á með einhverjum eftirfarandi hætti:

  1. Með alþjóðasamningi eða samkomulagi, milli EES-ríkis og eins eða fleiri þriðju landa eða hluta þeirra og sem tekur til verka, vara eða þjónustu fyrir verkefni sem undirritunaraðilar ætla að framkvæma eða nýta sameiginlega.
  2. Með alþjóðasamningi eða samkomulagi sem tengist veru herliðs og varðar starfsemi ríkisins eða þriðja lands.
  3. Af alþjóðastofnun.

Sérhvern samning eða samkomulag sem um getur í a-lið 1. mgr. skal senda til Eftirlitsstofnunar EFTA.

Reglugerð þessi gildir ekki um samninga eða hönnunarsamkeppnir sem varða varnir og öryggi sem kaupandi gerir í samræmi við reglur um innkaup sem alþjóðastofnun eða alþjóðleg fjármálastofnun kveður á um, ef slík stofnun fjármagnar að öllu leyti viðkomandi samninga eða hönnunarsamkeppni. Þegar um er að ræða samninga eða hönnunarsamkeppnir sem eru fjármagnaðar að mestu leyti af alþjóðastofnun eða alþjóðlegri fjármálastofnun skulu aðilar koma sér saman um viðeigandi innkaupaferli.

34. gr. Samningar milli opinberra aðila.

Reglugerð þessi tekur ekki til samninga sem gerðir eru við lögaðila á vegum hins opinbera ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:

  1. Lögaðili lýtur stjórn opinbers aðila eða sameiginlegri stjórn fleiri en eins opinbers aðila.
  2. Yfir 80% af starfsemi lögaðilans eru innt af hendi við framkvæmd verkefna sem honum eru falin af þeim opinbera aðila eða aðilum sem hann lýtur stjórn eða öðrum aðilum sem lúta stjórn hinna opinberu aðila.
  3. Starfsemi lögaðilans er ekki fjármögnuð með beinni fjárfestingu frá einkaaðilum, að undanskilinni einkafjárfestingu, sem krafist er samkvæmt sérlögum og hefur ekki áhrif á stjórn hins opinbera yfir lögaðilanum.

Lögaðili telst lúta stjórn opinbers aðila skv. a-lið 1. mgr. þegar hinn opinberi aðili hefur afgerandi áhrif bæði á skipulag og ákvarðanir lögaðilans. Þá telst lögaðili lúta sameiginlegum yfirráðum opinberra aðila skv. a-lið 1. mgr. ef eftirfarandi skilyrði eru til staðar:

  1. Lögaðili lýtur sérstakri stjórn sem opinberir aðilar skipa.
  2. Opinberir aðilar geta sameiginlega haft afgerandi áhrif á skipulag og ákvarðanir viðkomandi lögaðila.
  3. Lögaðili hefur ekki öndverðra hagsmuna að gæta gagnvart þeim opinberu aðilum sem hann lýtur stjórn.

Reglugerðin tekur ekki til samninga sem gerðir eru milli tveggja eða fleiri opinberra aðila ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:

  1. Samningur kemur á eða hrindir í framkvæmd samvinnu milli opinberra aðila sem hefur það markmið að tryggja að opinber þjónusta sem þeir veita nái sameiginlegu markmiði.
  2. Samvinna þessara aðila varðar almannahagsmuni.
  3. Þeir opinberu aðilar sem um ræðir annast innan við 20% af starfseminni, sem samvinnan varðar, á almennum markaði.

Við mat hlutfalls á starfsemi skv. b-lið 1. mgr. og c-lið 3. mgr. skal taka tillit til meðalheildarveltu eða annars viðeigandi mælikvarða, svo sem kostnaðar sem viðkomandi aðili hefur stofnað til er varðar þjónustu, vörur eða verk undanfarin þrjú ár fyrir gerð samnings. Ef nauðsynleg gögn liggja ekki fyrir skal mælikvarði fyrir starfsemina metinn út frá viðskiptaáætlun.

35. gr. Samningar sem gerðir eru við eignatengt fyrirtæki.

Með "eignatengdu fyrirtæki" er átt með sérhvert fyrirtæki sem hefur ársreikninga sem hafa verið felldir inn í samstæðureikningsskil kaupanda í samræmi við kröfur sem fram koma í lögum um ársreikninga.

Ef í hlut eiga aðilar, sem ekki falla undir lög um ársreikninga merkir "eignatengt fyrirtæki" sérhvert fyrirtæki sem:

  1. getur verið, beint eða óbeint, undir ráðandi áhrifum kaupanda.
  2. getur beitt ráðandi áhrifum gagnvart kaupanda eða
  3. er ásamt kaupanda undir ráðandi áhrifum annars fyrirtækis vegna eignarhalds, fjárhagslegrar þátttöku eða reglna sem gilda um það.

Með ráðandi áhrifum í 2. mgr. er átt við sömu merkingu og kemur fram í 3. mgr. 4. gr. reglugerðar þessarar.

Þrátt fyrir ákvæði 34. gr. og að því tilskildu að skilyrðum 5. mgr. þessarar greinar sé fullnægt gildir reglugerð þessi ekki um samninga sem:

  1. kaupandi gerir við eignartengt fyrirtæki eða
  2. fyrirtæki um sameiginlegt verkefni, sem nokkrir kaupendur stofna eingöngu í því augnamiði að stunda starfsemi eins og lýst er í 8.-14. gr., gerir við fyrirtæki sem er í eignatengslum við einn af þessum kaupendum.

Ákvæði 4. mgr. gilda um:

  1. Þjónustusamninga, að því tilskildu að a.m.k. 80% af meðalheildarveltu eignatengda fyrirtækisins á undangengnum þremur árum, að teknu tilliti til allrar þjónustu sem það fyrirtæki veitir, megi rekja til veitingar þjónustu til kaupandans eða annarra fyrirtækja sem eru í eignatengslum við það,
  2. Vörusamninga, að því tilskildu að a.m.k. 80% af meðalheildarveltu eignatengda fyrirtækisins, að teknu tilliti til allra vara sem það fyrirtæki afhenti, á undangengnum þremur árum, megi rekja til afhendingar vara til kaupandans eða annarra fyrirtækja sem eru í eignatengslum við það,
  3. Verksamninga, að því tilskildu að a.m.k. 80% af meðalheildarveltu eignatengda fyrirtækisins, að teknu tilliti til allra verka sem það fyrirtæki framkvæmdi, á undangengnum þremur árum, megi rekja til verka sem framkvæmd eru fyrir kaupanda eða önnur fyrirtæki sem eru í eignatengslum við það.

Þegar velta eignatengds fyrirtækis undanfarin þrjú ár liggur ekki fyrir skal nægja að það geti sýnt fram á að tölur um veltu, sem um getur í a-, b- eða c-lið 5. mgr., séu trúverðugar, einkum í ljósi viðskiptaáætlunar.

Ef tvö eða fleiri fyrirtæki, sem eru í eignartengslum við kaupanda og mynda með honum samstæðu, láta í té sömu eða svipaða þjónustu, vörur eða verk, skal hlutfallið reiknað með tilliti til heildarveltunnar af þeirri þjónustu, vörum eða verkum sem þessi eignatengdu fyrirtæki láta í té.

36. gr. Samningar sem gerðir eru við fyrirtæki um sameiginlegt verkefni eða kaupanda sem á hlut að fyrirtæki um sameiginlegt verkefni.

Þrátt fyrir ákvæði 34. gr. og að því tilskildu að fyrirtækið um sameiginlegt verkefni hafi verið stofnað með það fyrir augum að inna af hendi viðkomandi starfsemi á a.m.k. þriggja ára tímabili og að kveðið sé á um það í stofnsamningi fyrirtækisins um sameiginlegt verkefni að kaupendur, sem mynda það, verði aðilar að því í a.m.k. jafnlangan tíma, gildir reglugerð þessi ekki um samninga sem eftirfarandi aðilar gera:

  1. fyrirtæki um sameiginlegt verkefni, sem nokkrir kaupendur stofna eða mynda, eingöngu í því augnamiði að stunda viðskipti sem falla undir 8.-14. gr., við einn af þessum kaupendum eða
  2. sem kaupandi gerir við slíkt fyrirtæki um sameiginlegt verkefni sem hann er hluti af.

37. gr. Tilkynning upplýsinga.

Kaupandi skal senda Eftirlitsstofnun EFTA eftirfarandi upplýsingar varðandi beitingu 35. og 36. gr. ef óskað er eftir því:

  1. Nöfn fyrirtækja eða samstarfsaðila um sameiginlegt verkefni.
  2. Hvers eðlis viðkomandi samningar eru og verðmæti þeirra.
  3. Þau gögn, sem Eftirlitsstofnun EFTA telur nauðsynleg, um að tengslin milli fyrirtækis eða fyrirtækis um sameiginlegt verkefni, sem samningur er gerður við, og kaupandans standist kröfur 35. gr. eða 36. gr.

38. gr. Þjónusta tengd rannsóknum og þróun.

Reglugerð þessi skal eingöngu gilda um þjónustusamninga um þjónustu tengda rannsóknum og þróun sem fellur undir CPV-kóða 73000000-2 til 73120000-9, 73300000-5, 73420000-2 og 73430000-5 sameiginlega innkaupaorðasafnsins, að því tilskildu að ávinningurinn fari eingöngu til kaupandans til nota í eigin starfsemi og að endurgjald fyrir þjónustuna, sem veitt er, komi eingöngu frá kaupanda.

39. gr. Undanþága á þeim grundvelli að starfsemi er í beinni samkeppni.

Samningar, sem varða starfsemi sem getið er um í 8.-14. gr., falla ekki undir reglugerðina ef staðfest er með ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA að sú starfsemi fari fram í beinni samkeppni á mörkuðum hér á landi og að aðgangur að markaðinum sé ekki takmarkaður.

Kaupandi sem telur að tiltekin starfsemi, sem fellur undir 8.-14. gr., fari fram í beinni samkeppni skv. 1. mgr. skal leggja fram beiðni til Eftirlitsstofnunar EFTA, þar sem sýnt er fram á að skilyrði fyrir undanþágu séu fyrir hendi, um samkeppni á mörkuðum með hliðsjón af landfræðilegum viðmiðunarmarkaði, eiginleikum vöru eða þjónustu, aðgangshindrana, markaðshlutdeildar og öðrum þáttum sem máli geta skipt við matið. Eftirlitsstofnun EFTA leggur mat á framkomna beiðni og eftir atvikum staðfestir með ákvörðun að skilyrði fyrir undanþágu séu fyrir hendi í samræmi við málsmeðferð þar að lútandi.

V. KAFLI Almennar reglur.

40. gr. Meginreglur við innkaup.

Gæta skal jafnræðis, meðalhófs og gagnsæis við opinber innkaup. Óheimilt er að mismuna fyrirtækjum á grundvelli þjóðernis eða takmarka samkeppni með óeðlilegum hætti. Viðeigandi ráðstafanir skulu gerðar til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra í innkaupaferli til að tryggja jafnræði.

Það telst ekki andstætt jafnræði að áskilja að vara sé afhent, þjónusta veitt eða verk unnið á tilteknum stað, enda byggist slíkur áskilnaður á málefnalegum ástæðum.

41. gr. Meginreglur um þá sem njóta réttar samkvæmt reglugerð þessari.

Fyrirtæki með staðfestu í einhverju ríkja Evrópska efnahagssvæðisins eða aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu njóta réttar samkvæmt reglugerðinni. Þessi fyrirtæki skulu þó ekki njóta lakari réttar en fyrirtæki frá öðrum ríkjum. Réttar samkvæmt reglugerð þessari njóta einnig fyrirtæki frá öðrum ríkjum að því marki sem þau njóta slíkra réttinda á grundvelli milliríkjasamnings sem íslenska ríkið hefur gert.

42. gr. Trúnaðarskylda.

Kaupanda er óheimilt að láta af hendi viðkvæmar upplýsingar sem fyrirtæki hefur lagt fram sem trúnaðarupplýsingar. Til slíkra upplýsinga teljast upplýsingar um rekstur, sértækar tæknilausnir, einingarverð, fjárhagsmálefni og viðskipti og aðrar þær upplýsingar sem skaðað geta hagsmuni fyrirtækisins ef aðgangur er veittur að þeim.

Kaupanda er heimilt að krefjast þess að fyrirtæki gæti trúnaðar um mikilvægar upplýsingar sem veittar eru meðan á innkaupaferli stendur.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við ef annað leiðir af fyrirmælum reglugerðarinnar sbr. einkum ákvæði um skyldu til að birta opinberlega tilkynningu um gerð samnings á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. 93. gr., og upplýsa þátttakendur og bjóðendur um tiltekin atriði, sbr. 94. gr., sem og skyldu til að veita kærunefnd útboðsmála upplýsingar skv. lögum um opinber innkaup.

Ákvæði 1. mgr. hefur að öðru leyti ekki áhrif á skyldu aðila til að leggja fram upplýsingar á grundvelli upplýsingalaga.

43. gr. Samningar bundnir við ákveðna hópa.

Heimilt er að takmarka rétt til þátttöku í innkaupaferli við verndaða vinnustaði og fyrirtæki sem hafa það að markmiði að efla félagslega og faglega aðlögun fólks sem þarf á slíkri aðlögun að halda. Jafnframt má áskilja að slíkir samningar fari fram samkvæmt áætlun um verndaða vinnustaði.

Skilyrði fyrir takmörkun skv. 1. mgr. er að a.m.k. 30% starfsmanna á vinnustað eða þeirra sem vinna við framkvæmd samningsins séu með fötlun eða þurfi á aðlögun að halda af félagslegum ástæðum.

Ef innkaup eru yfir viðmiðunarfjárhæðum skv. 15. gr. skal vísa til þessa ákvæðis í útboðsauglýsingu.

44. gr. Sameiginleg innkaup.

Kaupendum er heimilt að standa sameiginlega að tilteknum einstökum innkaupum í samræmi við reglugerðina.

Þegar kaupandi annast innkaup fyrir sig og fyrir hönd annarra kaupenda eða kaupendur taka þátt í sameiginlegu innkaupaferli bera þeir sameiginlega ábyrgð á að uppfylla skyldur sínar samkvæmt reglugerðinni.

Sérhver kaupandi ber ábyrgð á að uppfylla skyldur sínar samkvæmt reglugerð þessari vegna samnings sem gerður hefur verið fyrir hans hönd í sameiginlegu innkaupaferli og vegna þess hluta sem hann gerir í eigin nafni.

45. gr. Innkaup í öðru ríki Evrópska efnahagssvæðisins.

Kaupanda er heimilt að nota miðstýrða innkaupastarfsemi í öðru ríki Evrópska efnahagssvæðisins til að bjóða út innkaup á vöru, þjónustu eða verki sem falla undir reglugerðina í samstarfi við Ríkiskaup, erlenda kaupendur, samtök þeirra eða fulltrúa, eða aðrar miðlægar innkaupastofnanir.

Samkeppniseftirlitinu skal tilkynnt um fyrirhuguð innkaup ásamt rökstuðningi fyrir beitingu heimildar skv. 1. mgr. Með rökstuðningnum skal fylgja samkeppnismat í samræmi við leiðbeiningar Ríkiskaupa. Samkeppniseftirlitið skal veita álit sitt á matinu og taka þar með afstöðu til þess hvort útboðið sé til þess fallið að raska samkeppni á innlendum markaði. Álitið hefur ekki bindandi áhrif á innkaupaferlið. Kaupandi getur lokið útboði óháð niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins.

Um innkaup sem fara fram á grundvelli þessa ákvæðis gilda reglur viðkomandi ríkis m.a. um kærur, gildi innkaupaákvarðana og skaðabætur.

46. gr. Sameiginlegt innkaupaorðasafn.

Allar tilvísanir til flokkunarkerfa í tengslum við innkaup sem eru yfir viðmiðunarfjárhæðum skv. 15. gr. skulu byggjast á sameiginlega innkaupaorðasafninu (CPV).

47. gr. Reglur um samskipti og framlagningu gagna.

Öll samskipti og miðlun upplýsinga sem vísað er til í þessari grein skulu að jafnaði fara fram með rafrænum aðferðum. Sá búnaður sem er notaður skal vera almennt aðgengilegur og tæknilegir eiginleikar hans samhæfðir við þá upplýsinga- og miðlunartækni sem er í almennri notkun. Búnaðurinn má ekki vera þess eðlis að hann leiði til mismununar fyrirtækja eða takmarki aðgang fyrirtækis að innkaupaferli.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er kaupanda ekki skylt að krefjast þess að notaðar séu rafrænar aðferðir við framlagningu gagna ef:

  1. notkun rafrænna aðferða við samskipti mundi, vegna sérhæfðs eðlis innkaupa, kalla á sérstakan búnað, tæki eða skráasnið sem ekki eru almennt aðgengileg eða forrit, sem almennt eru aðgengileg, styðja ekki,
  2. forritin, sem styðja skráasnið sem henta fyrir lýsingu tilboða, nota skráasnið sem önnur opin eða almennt aðgengileg forrit ráða ekki við eða eru háð séreignarleyfi og ekki er hægt að gera aðgengileg til niðurhals eða fjarnotkunar af hálfu kaupanda,
  3. notkun rafrænna aðferða mundi krefjast sérhæfðs skrifstofubúnaðar sem kaupandi hefur alla jafna ekki aðgang að,
  4. þess er krafist í útboðsgögnum að lögð séu fram líkön sem ekki er unnt að senda með rafrænum aðferðum,
  5. notkun annarra samskiptaaðferða er nauðsynleg, annaðhvort vegna öryggisrofs í rafrænum samskiptaaðferðum eða til verndar sérstaklega viðkvæmum upplýsingum.

Ef rafrænar aðferðir eru ekki notaðar við samskipti skulu þau fara fram með pósti eða öðrum viðeigandi miðli.

Heimilt er, þrátt fyrir ákvæði 1.-3. mgr., að hafa munnleg samskipti, um önnur samskipti en varða mikilvægustu þætti innkaupaferlis, ef samskiptin eru skráð með fullnægjandi hætti. Mikilvægustu þættir innkaupaferlisins taka í þessum skilningi til útboðsgagna, þátttökutilkynninga, staðfestingar á áhuga og tilboða. Munnleg samskipti við bjóðendur, sem geta haft veruleg áhrif á efni og mat tilboða, skulu skrásett með viðeigandi hætti, t.d. með skriflegum skýrslum, hljóðskýrslum eða útdráttum úr helstu þáttum samskiptanna.

Samskipti, miðlun og geymsla upplýsinga skal fara fram með þeim hætti að uppruni gagna sé tryggður og að þeim hafi ekki verið breytt. Einnig skal tryggt að trúnaður um tilboð og beiðni um þátttöku sé ekki rofinn og að kaupandi geti aðeins kynnt sér innihald tilboða eða beiðni um þátttöku eftir að tilboðsfrestur eða frestur til að leggja fram beiðni um þátttöku er liðinn.

Þegar um er að ræða verksamninga og hönnunarsamkeppni er heimilt að krefjast notkunar sérstaks rafræns búnaðar. Í slíkum tilvikum skal kaupandi bjóða annars konar aðgang, eins og kveðið er á um í 7. mgr., þangað til slík tæki verða almennt aðgengileg í skilningi 1. mgr.

Kaupandi getur, ef nauðsyn krefur, krafist þess að notaður sé búnaður og tæki sem ekki eru almennt aðgengileg. Skilyrði er að kaupandi bjóði annars konar valkost til aðgangs með eftirfarandi hætti:

  1. fullan, ótakmarkaðan og beinan aðgang endurgjaldslaust með rafrænum aðferðum að slíkum búnaði og tækjum frá birtingardegi tilkynningar eða frá þeim degi þegar boð um að staðfesta áhuga er sent; í texta tilkynningarinnar eða boðsins um að staðfesta áhuga skal tilgreina veffangið þar sem hafa má aðgang að þessum búnaði og tækjum,
  2. tryggingu fyrir því að bjóðandi, sem ekki hefur aðgang að viðkomandi búnaði og tækjum eða hefur engan möguleika á að nálgast þau innan tiltekinna tímamarka, geti haft aðgang að innkaupaferlinu með notkun aðgangsbúnaðar til bráðabirgða er fæst án endurgjalds, að því tilskildu að skort á aðgangi megi ekki rekja til viðkomandi bjóðanda, eða
  3. með útvegun annars konar leiðar til að leggja fram tilboð með rafrænum aðferðum.

Eftirfarandi reglur skulu almennt gilda um búnað og tæki sem notuð eru við rafræna sendingu og móttöku tilboða og rafræna móttöku þátttökutilkynninga:

  1. upplýsingar um skilyrði fyrir rafræna framlagningu tilboða og þátttökutilkynninga, þar á meðal um dulkóðun og tímastimplun, skulu vera aðgengilegar öllum hlutaðeigandi aðilum,
  2. eftir atvikum skal tilgreina öryggisstig fyrir rafrænar samskiptaaðferðir á hinum ýmsu stigum tiltekins innkaupaferlis og skal það vera í réttu hlutfalli við áhættuna sem því tengist,
  3. þegar gerð er krafa um fullgilda rafræna undirskrift skal kaupandi taka á móti útfærðum rafrænum undirskriftum, sem studdar eru fullgildu vottorði sem gefið er út af vottunarþjónustu sem tilgreind er á traustlista:

    1. kaupandi skal styðja við þau snið sem útfærð eru fyrir viðurkenndar rafrænar undirskriftir og gera nauðsynlegar tæknilegar ráðstafanir til að taka á móti undirskriftum;
    2. þegar tilboð er undirritað með stuðningi fullgilds vottorðs sem er á traustlista skal ekki gera viðbótarkröfur sem gætu hindrað notkun bjóðanda á slíkum undirskriftum.

VI. KAFLI Innkaupaferli.

48. gr. Meginreglur um val á innkaupaferli.

Innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum skv. 15. gr. skulu fara fram á grundvelli almenns útboðs, lokaðs útboðs eða samningskaupa að undangenginni útboðsauglýsingu samkvæmt nánari reglum VII., VIII. og IX. kafla. Einnig er heimilt að beita samkeppnisviðræðum skv. 51. gr., bjóða til nýsköpunarsamstarfs skv. 52. gr., kaupa inn á grundvelli rammasamnings skv. 54. gr. og gagnvirks innkaupakerfis skv. 55. gr.

Heimilt er að kynna innkaupaferli með eftirfarandi leiðum:

  1. Með reglubundinni forauglýsingu skv. 67. gr. þegar innkaup fara fram á grundvelli lokaðs útboðs eða samningskaupa að undangenginni útboðsauglýsingu.
  2. Með tilkynningu um að hæfismatskerfi sé fyrir hendi skv. 68. gr. þegar samningur er gerður með lokuðu útboði, samningskaupum, samkeppnisviðræðum eða nýsköpunarsamstarfi.
  3. Með útboðsauglýsingu skv. 69. gr.

Samkvæmt a-lið 2. mgr. skal fyrirtæki sem látið hafa í ljósi áhuga sinn í kjölfar birtingar reglubundinnar forauglýsingar, boðið að staðfesta áhuga sinn í samræmi við 75. gr.

Þrátt fyrir 1. mgr. er heimilt að ganga til samningskaupa án undangenginnar birtingar útboðsauglýsingar en aðeins við þær aðstæður sem segir í 53. gr.

49. gr. Almennt útboð og lokað útboð.

Í almennu útboði er öllum fyrirtækjum heimilt að leggja fram tilboð í kjölfar útboðsauglýsingar. Með tilboði skulu fylgja upplýsingar vegna hæfismiðaðs vals sem kaupandi hefur farið fram á í auglýsingu eða útboðsgögnum.

Í lokuðu útboði geta fyrirtæki sótt um að taka þátt í innkaupaferli í kjölfar útboðsauglýsingar með því að senda inn upplýsingar vegna hæfismiðaðs vals sem kaupandi hefur farið fram á í auglýsingu eða útboðsgögnum. Kaupandi getur með forvali takmarkað fjölda hæfra þátttakenda sem boðið er að taka þátt í ferlinu í samræmi við 86. gr. Aðeins þau fyrirtæki sem kaupandi býður til þátttöku, eftir að hafa lagt mat á fram lagðar upplýsingar, geta skilað inn tilboði í lokuðu útboði.

50. gr. Samningskaup að undangenginni útboðsauglýsingu.

Í samningskaupum að undangenginni útboðsauglýsingu geta fyrirtæki sótt um að taka þátt í innkaupaferli í kjölfar útboðsauglýsingar með því að senda inn upplýsingar vegna hæfismiðaðs vals sem kaupandi hefur farið fram á í auglýsingu eða útboðsgögnum.

Kaupandi getur með forvali takmarkað fjölda hæfra þátttakenda sem boðið er að taka þátt í ferlinu í samræmi við 86. gr. Aðeins þau fyrirtæki sem kaupandi býður til þátttöku, eftir að hafa lagt mat á framlagðar upplýsingar, geta tekið þátt í samningsviðræðunum.

51. gr. Samkeppnisviðræður.

Í samkeppnisviðræðum geta fyrirtæki sótt um að taka þátt í innkaupaferli í kjölfar útboðsauglýsingar með því að senda inn upplýsingar vegna hæfismiðaðs vals sem kaupandi hefur farið fram á í auglýsingu eða útboðsgögnum. Kaupandi getur með forvali takmarkað fjölda hæfra þátttakenda sem boðið er að taka þátt í ferlinu í samræmi við 86. gr. Aðeins þau fyrirtæki sem kaupandi býður til þátttöku með forvali, eftir að hafa lagt mat á fram lagðar upplýsingar, geta tekið þátt í samkeppnisviðræðunum. Valforsendur samkeppnisviðræðna skulu byggjast á besta hlutfalli milli verðs og gæða í samræmi við 3. tölul. 1. mgr. 90. gr.

Í útboðsauglýsingu skulu koma fram þarfir og kröfur kaupanda, en þessi atriði skal skilgreina nánar í auglýsingunni sjálfri eða útboðsgögnum. Þá skal kaupandi setja fram og skilgreina þær forsendur fyrir vali tilboðs sem ákveðnar hafa verið og leggja fram tímaáætlun.

Kaupandi skal hefja viðræður við þátttakendur, sem valdir hafa verið til þátttöku í samræmi við ákvæði 86. gr., með það fyrir augum að slá föstu með hvaða hætti þörfum hans verður best fullnægt. Í þessum viðræðum er heimilt að ræða öll atriði væntanlegs samnings við útvalda þátttakendur.

Meðan á viðræðum stendur skal kaupandi tryggja að jafnræðis sé gætt meðal þátttakenda og að ekki séu veittar upplýsingar sem gera stöðu sumra þátttakenda betri en annarra. Kaupanda er óheimilt að upplýsa þátttakanda um lausnir eða aðrar trúnaðarupplýsingar sem annar þátttakandi hefur sett fram, án samþykkis viðkomandi.

Kaupandi getur ákveðið að ferlið fari fram í fleiri áföngum til þess að fækka þeim lausnum sem fjallað er um meðan viðræður standa yfir. Slík fækkun lausna skal grundvallast á forsendum fyrir vali tilboðs sem settar hafa verið fram í útboðsauglýsingu eða útboðsgögnum. Taka skal fram í auglýsingu eða útboðsgögnum að þessi háttur kunni að vera hafður á.

Kaupandi skal halda viðræðum áfram þar til hann hefur afmarkað þá lausn eða þær lausnir sem geta fullnægt þörfum hans.

Þegar kaupandi hefur lýst því yfir að viðræðum sé lokið og tilkynnt það þátttakendum skal hann gefa þátttakendum kost á að leggja fram endanleg tilboð með hliðsjón af þeirri lausn eða lausnum sem kynntar hafa verið og skýrðar meðan á viðræðum stóð. Þessi tilboð skulu hafa að geyma öll þau atriði sem nauðsynleg eru til að hrinda samningi í framkvæmd. Þátttakendum skal vera heimilt að skýra, skilgreina og aðlaga tilboð sín að beiðni kaupanda. Slíkar skýringar, skilgreiningar og lagfæringar eða viðbótarupplýsingar mega þó ekki fela í sér breytingar á grundvallarþáttum tilboðs, eða tilkynningu til bjóðenda um að gera tilboð, þannig að samkeppni sé raskað eða um mismunun verði að ræða.

Kaupandi skal meta tilboð á grundvelli þeirra forsendna fyrir vali tilboðs sem fram komu í upphaflegri útboðsauglýsingu eða útboðsgögnum. Kaupanda er heimilt að halda áfram viðræðum við þann þátttakanda sem hefur lagt fram það tilboð sem hefur best hlutfall milli verðs og gæða í samræmi við 90. gr., til að staðfesta skuldbindingar sem felast í tilboðinu, enda leiði það ekki til þess að grundvallarþáttum í tilboðinu, eða útboðsauglýsingu, sé breytt þannig að samkeppni sé raskað eða um mismunun verði að ræða.

Kaupanda er heimilt að kveða á um verðlaun eða greiða þátttakendum fyrir þátttöku sína í viðræðum.

52. gr. Nýsköpunarsamstarf.

Í nýsköpunarsamstarfi geta fyrirtæki sótt um að taka þátt í innkaupaferli í kjölfar útboðsauglýsingar með því að senda inn upplýsingar vegna hæfismiðaðs vals sem kaupandi hefur farið fram á í auglýsingu eða útboðsgögnum. Kaupandi getur með forvali takmarkað fjölda hæfra þátttakenda sem boðið er að taka þátt í ferlinu í samræmi við 86. gr. Aðeins þau fyrirtæki sem kaupandi býður til þátttöku, eftir að hafa lagt mat á fram lagðar upplýsingar, geta tekið þátt í samstarfinu. Kaupandi getur ákveðið að stofna til nýsköpunarsamstarfs við einn eða fleiri aðila sem stunda aðskilda rannsóknar- og þróunarstarfsemi. Valforsendur nýsköpunarsamstarfs skulu byggjast á besta hlutfalli milli verðs og gæða í samræmi við 3. tölul. 1. mgr. 90. gr.

Í útboðsgögnum skal kaupandi tilgreina þörf á nýsköpunarvöru, -þjónustu eða -verki sem ekki er hægt að uppfylla með því að kaupa vörur, þjónustu eða verk sem til eru á markaði. Einnig skal koma fram hvaða lágmarkskröfur öll tilboð þurfa að uppfylla ásamt því að setja fram skilmála sem gilda um hugverkarétt. Upplýsingar í útboðsgögnum skulu vera nægilega nákvæmar til að gera fyrirtækjum kleift að átta sig á eðli og umfangi lausnar, sem krafist er, og ákveða hvort þau vilji taka þátt í innkaupaferlinu.

Nýsköpunarsamstarfið skal miða að því að þróa nýsköpunarvöru, -þjónustu eða -verk og síðan kaupum á þeirri vöru, þjónustu eða verki sem af því leiðir, að því tilskildu að þau svari til þess nothæfisstigs og hámarkskostnaðar sem kaupandi og þátttakandi komu sér saman um. Nýsköpunarsamstarfið skal skipulagt í áföngum sem haldast í hendur við mismunandi stig rannsóknar- og nýsköpunarferlisins, en þau geta tekið til framleiðslu á vörum, veitingar þjónustu eða lokafrágangs verks. Í nýsköpunarsamstarfi skal kveða á um áfangamarkmið fyrir samstarfsaðilana og greiðslu þóknunar í viðeigandi hlutagreiðslum. Á grundvelli þessara markmiða getur kaupandi, að hverjum áfanga loknum, ákveðið að binda enda á nýsköpunarsamstarfið eða, ef um er að ræða samstarf við fleiri en einn aðila, að fækka samstarfsaðilum með því að slíta einstökum samningum, að því tilskildu að kaupandi hafi kveðið á um slíka skilmála í útboðsgögnum.

Kaupandi skal ræða við bjóðendur um öll tilboð þeirra, bæði upphaflegt tilboð og síðari tilboð, og aðlaga tilboð að þörfum kaupanda, nema um endanleg tilboð sé að ræða. Ekki skal semja um lágmarkskröfur og forsendur fyrir vali tilboðs.

Meðan á viðræðum stendur skal kaupandi tryggja að jafnræðis sé gætt milli þátttakenda og að ekki séu veittar upplýsingar sem gera stöðu ákveðinna þátttakenda betri en annarra. Kaupandi skal upplýsa alla bjóðendur, sem ekki hafa verið útilokaðir frá ferlinu í samræmi við 6. mgr., skriflega um hvers konar breytingar á tæknilýsingum eða öðrum útboðsgögnum, aðrar en þær þar sem lágmarkskröfur eru settar. Eftir slíkar breytingar skal kaupandi veita bjóðendum nægilega langan frest til að breyta tilboðum sínum og leggja þau fram aftur, eins og við á. Kaupanda er óheimilt að upplýsa þátttakanda um lausnir eða aðrar trúnaðarupplýsingar sem annar þátttakandi hefur sett fram, án samþykkis viðkomandi.

Kaupandi getur ákveðið að ferlið fari fram í fleiri áföngum til þess að fækka þátttakendum. Slík fækkun skal grundvallast á forsendum fyrir vali tilboðs sem settar hafa verið fram í útboðsauglýsingu, í boði um að staðfesta áhuga eða öðrum útboðsgögnum. Taka skal fram í auglýsingu eða útboðsgögnum að þessi háttur kunni að vera hafður á.

Við val á þátttakendum skal kaupandi einkum beita viðmiðum sem varða getu þátttakenda á sviði rannsókna og þróunar og við þróun og framkvæmd nýstárlegra lausna. Þegar um er að ræða nýsköpunarsamstarf með fleiri en einum þátttakanda er kaupanda óheimilt að upplýsa aðra þátttakendur um lausnir eða aðrar trúnaðarupplýsingar sem þátttakandi hefur veitt innan ramma samstarfsins, án samþykkis viðkomandi.

Kaupandi skal sjá til þess að uppbygging samstarfsins, einkum lengd og virði hinna mismunandi áfanga, endurspegli nýsköpunarstig hinnar fyrirhuguðu lausnar og röð þeirra rannsóknar- og nýsköpunaráfanga sem þarf til að þróa nýstárlega lausn. Áætlað verðmæti vara, þjónustu eða verka skal ekki vera í óeðlilegu hlutfalli við þá fjárfestingu sem þarf til þróunar þeirra.

53. gr. Samningskaup án undangenginnar útboðsauglýsingar.

Samningskaup án opinberrar birtingar útboðsauglýsingar eru heimil í eftirfarandi tilvikum án tillits til þess hvort um er að ræða innkaup á verki, vöru eða þjónustu:

  1. Þegar engin tilboð, engin gild tilboð, engar tilkynningar um þátttöku eða engar gildar tilkynningar um þátttöku berast vegna almenns eða lokaðs útboðs, enda sé í endanlegum samningi ekki vikið í verulegum atriðum frá upphaflegum skilmálum útboðsgagna. Tilboð skal ekki talið fullnægjandi þegar það hefur ekki tengsl við samninginn og dugir bersýnilega ekki, án verulegra breytinga, til að mæta þörfum kaupanda eða kröfum eins og þær eru tilgreindar í útboðsgögnum. Þátttökutilkynning telst ekki fullnægjandi ef viðkomandi fyrirtæki er eða gæti verið útilokað skv. 1. mgr. 86. gr. eða 79. gr., eða ef það uppfyllir ekki hæfiskröfur kaupanda skv. 86. gr. eða 79.-83. gr.
  2. Þegar samningur er eingöngu gerður vegna rannsókna, tilrauna, athugana eða þróunar en ekki til að hafa af honum hagnað eða til að endurheimta rannsóknar- og þróunarkostnað og að svo miklu leyti sem gerð slíks samnings hefur ekki áhrif á samninga sem gerðir eru síðar í samkeppnisumhverfi og sérstaklega í þessum tilgangi.
  3. Þegar aðeins eitt fyrirtæki kemur til greina af listrænum ástæðum þar sem um er að ræða einstakt listaverk eða listflutning, ekki er um samkeppni að ræða af tæknilegum ástæðum eða sökum þess að um lögverndaðan einkarétt er að ræða. Undantekningar vegna tæknilegra ástæðna eða lögverndaðs einkaréttar gilda aðeins þegar enginn annar raunhæfur valkostur er fyrir hendi eða annað sem komið getur í staðinn og ástæðan fyrir því að ekki er til staðar samkeppni er ekki sú að þrengt hafi verið að breytum innkaupanna með óeðlilegum hætti.
  4. Þegar innkaup eru algerlega nauðsynleg vegna aðkallandi neyðarástands sem stafar af ófyrirsjáanlegum atburðum og ekki er unnt að standa við fresti í almennu útboði, lokuðu útboði eða samningskaup að undangenginni útboðsauglýsingu. Þær aðstæður sem vísað er til sem aðkallandi neyðarástands mega ekki vera á ábyrgð kaupanda.
  5. Þegar um er að ræða vörusamninga um viðbótarvörur sem annaðhvort er ætlað að koma að hluta til í stað venjulegra birgða eða búnaðar eða eru aukning á venjulegum birgðum eða búnaði og val á nýjum bjóðanda mundi skuldbinda kaupanda til að kaupa efni sem hefðu aðra tæknilega eiginleika og samræmdust illa eldri tæknibúnaði eða leiddu til óeðlilega mikilla tæknilegra erfiðleika við rekstur og viðhald.
  6. Þegar um er að ræða nýtt verk eða þjónustu sem felur í sér endurtekningu á sambærilegu verki eða þjónustu og sami kaupandi hefur áður samið um við fyrirtæki í innkaupaferli, enda séu þessi verk eða þjónusta í samræmi við þá upprunalegu áætlun sem upphaflegi samningurinn kvað á um. Grunnverkefnið skal gefa til kynna umfang hugsanlegra frekari verka eða þjónustu og skilmála fyrir veitingu þeirra. Þegar fyrra verkefnið er boðið út skal taka fram að þessari aðferð kunni að verða beitt og skal kaupandi taka tillit til áætlaðs heildarkostnaðar síðari verka eða þjónustu þegar hann beitir ákvæðum 15. og 17.-23. gr.
  7. Þegar um er ræða vörur sem skráðar eru og keyptar í kauphöll.
  8. Við hagstæð vörukaup þar sem hægt er að kaupa vörur með því að nýta sérlega hagstæð tækifæri sem bjóðast í mjög stuttan tíma og þar sem verðið er langt undir venjulegu markaðsverði.
  9. Þegar um er ræða vörur eða þjónustu sem eru á sérlega góðum kjörum, annaðhvort frá seljanda sem er að hætta starfsemi eða frá skiptastjóra þrotabús eða fyrirtæki sem er í greiðslustöðvun eða nauðasamningum.
  10. Þegar gera á samning eftir samkeppni um hönnun þegar kveðið er á um að skylt sé að semja við þá þátttakendur, einn eða fleiri, sem sigruðu í keppninni. Ef um fleiri sigurvegara er að ræða er skylt að bjóða öllum sem sigra í hönnunarsamkeppni að taka þátt í viðræðum.

54. gr. Rammasamningar.

Rammasamninga skal gera í samræmi við þau innkaupaferli sem mælt er fyrir um í reglugerð þessari. Rammasamningur er samningur sem einn eða fleiri kaupendur gera við einn eða fleiri bjóðendur í þeim tilgangi að ákveða skilmála samninga sem gerðir verða á tilteknu tímabili, einkum að því er varðar verð og eftir atvikum fyrirhugað magn. Gildistími rammasamnings má ekki vera lengri en átta ár nema í undantekningartilvikum sem helgast af málefnalegum ástæðum, einkum þeim sem tengjast efni rammasamningsins.

Samningar sem byggjast á rammasamningum skulu gerðir á grundvelli hlutlægra reglna og viðmiðana, sem geta tekið til þess að efna til örútboðs meðal þeirra fyrirtækja, sem eru aðilar að rammasamningnum eins og hann var gerður. Hlutlægar reglur og viðmiðanir skulu settar fram í útboðsgögnum fyrir rammasamning og skulu tryggja jafna meðferð fyrirtækja sem eru aðilar að rammasamningi. Þegar efnt er til örútboðs skal kaupandi setja frest sem er nægilega langur til að leggja megi fram tilboð vegna hvers einstaks samnings og kaupandi skal gera hvern samning fyrir sig við bjóðandann sem hefur lagt fram besta tilboðið á grundvelli þeirra valforsendna sem settar eru fram í útboðsskilmálum rammasamningsins.

Kaupandi skal ekki misnota rammasamning eða nota þá á þann hátt að það komi í veg fyrir, takmarki eða raski samkeppni.

55. gr. Gagnvirk innkaupakerfi.

Innkaup innan gagnvirks innkaupakerfis skulu framkvæmd með lokuðu útboði í samræmi við þær reglur sem um slík útboð gilda. Ákvæði 73. gr. skulu gilda um fresti til að skila þátttökubeiðnum vegna gagnvirks innkaupakerfis. Allir bjóðendur sem fullnægt hafa hæfisskilyrðum skv. VIII. kafla skulu eiga rétt á aðild að gagnvirku innkaupakerfi. Þegar gagnvirku innkaupakerfi er komið á fót skal eingöngu stuðst við rafrænar aðferðir í samræmi við 47. gr.

Heimilt er að skipta gagnvirku innkaupakerfi niður í flokka vara, verka og þjónustu sem eru hlutlægt skilgreind á grundvelli eiginleika innkaupa innan viðkomandi flokks. Ef innkaupakerfinu er skipt niður í flokka skal tilgreina gildandi valforsendur fyrir hvern flokk.

Þegar innkaup fara fram innan gagnvirks innkaupakerfis skal kaupandi:

  1. Birta opinberlega útboðsauglýsingu þar sem fram kemur að um gagnvirkt innkaupakerfi sé að ræða.
  2. Tilgreina m.a. í útboðsskilmálum eðli innkaupa samkvæmt kerfinu ásamt áætluðu magni af fyrirhuguðum innkaupum auk nauðsynlegra upplýsinga um kerfið, þann rafræna búnað sem nota á ásamt tæknilegu fyrirkomulagi varðandi tengingu við kerfið og tæknilýsingar.
  3. Tilgreina skiptingu niður í flokka vara, verka eða þjónustu og þá eiginleika sem skilgreina hvern flokk.
  4. Veita með rafrænum aðferðum ótakmarkaðan, beinan og fullan aðgang að útboðsskilmálum og öðrum hugsanlegum útboðsgögnum frá og með birtingu útboðsauglýsingar og til þess tíma þegar kerfið fellur úr gildi. Kaupandi skal í tilkynningu tilgreina vefslóð þar sem hægt er að nálgast umrædd gögn.

Meðan á gildistíma gagnvirks innkaupakerfis stendur skal kaupandi gefa öllum fyrirtækjum kost á að leggja fram þátttökutilkynningu og fá aðgang að innkaupakerfi með þeim skilyrðum sem um ræðir í 1. mgr. Kaupandi skal taka afstöðu til þess hvort þátttökutilkynning uppfylli skilyrði innan tíu daga frá viðtöku hennar. Þó er heimilt að lengja frestinn í 15 daga í sérstökum rökstuddum tilvikum. Þá er einnig heimilt að framlengja þennan frest svo framarlega sem engin tilboð berast á sama tíma. Kaupandi skal hafa tilgreint tímalengd á framlengdum fresti í útboðsgögnum. Kaupandi skal upplýsa fyrirtæki eins fljótt og kostur er um hvort það hafi fengið aðgang að innkaupakerfi eða ekki.

Kaupandi skal bjóða öllum fyrirtækjum sem aðild hafa fengið að gagnvirku innkaupakerfi að leggja fram tilboð fyrir einstök innkaup sem gera á innan kerfisins. Hafi innkaupakerfinu verið skipt niður í flokka vara, verka eða þjónustu skal kaupandi bjóða öllum fyrirtækjum að leggja fram tilboð sem fengið hafa aðgang að þeim flokki sem svarar til hinna tilteknu innkaupa. Gefa skal minnst tíu almanaksdaga til að leggja fram tilboð. Kaupandi skal grundvalla val tilboðs á hagkvæmasta tilboði samkvæmt forsendum fyrir vali tilboðs sem fram komu í útboðsauglýsingu innkaupakerfisins eða í boði um að staðfesta áhuga, eða í boði um að leggja fram tilboð þegar tilkynning um hæfismatskerfi er notuð til að kynna útboð. Þessar forsendur má skilgreina nánar í boði um að leggja fram tilboð.

Kaupanda er hvenær sem er á gildistíma gagnvirks innkaupakerfis heimilt að krefjast þess að fyrirtæki sem fengið hefur aðild að gagnvirku innkaupakerfi leggi fram endurnýjaða og uppfærða hæfisyfirlýsingu, sbr. 84. gr., innan fimm virkra daga frá þeim degi þegar beiðni um það var lögð fram.

Kaupandi skal tilgreina gildistíma gagnvirks innkaupakerfis í útboðsauglýsingu. Ekki er heimilt að heimta gjald vegna umsókna um aðild að innkaupakerfi eða aðildar að því.

56. gr. Rafræn uppboð.

Kaupanda er heimilt að kaupa með rafrænu uppboði samkvæmt nánari ákvæðum þessarar greinar.

Þegar um er að ræða almennt eða lokað útboð eða samningskaup að undangenginni útboðsauglýsingu og unnt er að ákvarða efni útboðsgagna, einkum tæknilýsingar, af nákvæmni getur kaupandi ákveðið að samningur verði gerður með rafrænu uppboði. Að uppfylltum sömu skilyrðum er heimilt að notast við rafrænt uppboð þegar samkeppni fer fram milli fleiri rammasamningshafa skv. 2. mgr. 54. gr. og við útboð í gagnvirku innkaupakerfi skv. 55. gr. Rafrænt uppboð skal fara fram á grundvelli:

  1. verðs eingöngu, þegar forsendur byggjast á lægsta verði, eða
  2. verðs og/eða nýs verðgildis tilboðsþátta ef samningur byggist á kostnaðarhagkvæmni eða besta hlutfalli milli verðs og gæða.

Kaupandi sem ákveður að halda rafrænt uppboð skal lýsa þeirri fyrirætlun sinni í útboðsauglýsingu eða boði um að staðfesta áhuga, eða boði um að leggja fram tilboð þegar tilkynning um hæfismatskerfi er notuð til að kynna útboð.

Áður en rafrænt uppboð hefst skal kaupandi að fullu taka afstöðu til fram kominna tilboða bjóðenda í samræmi við forsendur fyrir vali tilboðs og vægi þeirra. Öllum bjóðendum sem lagt hafa fram gild tilboð skal samtímis boðið að taka þátt í rafrænu uppboði. Í tilkynningu til bjóðenda skulu koma fram allar nauðsynlegar upplýsingar um hvernig viðkomandi bjóðandi skal tengjast rafrænu uppboðskerfi ásamt upplýsingum um upphafsdag og upphafstíma rafræns uppboðs. Rafrænu uppboði má skipta í fleiri áfanga. Rafrænt uppboð skal ekki hefjast fyrr en tveimur virkum dögum eftir að tilkynning var send bjóðendum.

Þegar gera á samning á grundvelli fjárhagslega hagkvæmasta tilboðs skal fylgja tilkynningu til bjóðanda mat á tilboði hans sem fram hefur farið í samræmi við 90. gr. Í tilkynningu skal einnig koma fram reiknilíkan sem nota á í rafrænu uppboði til að ákveða sjálfkrafa röð tilboða á grundvelli nýrra verða og/eða verðgilda sem boðin hafa verið. Reiknilíkan skal taka tillit til vægis allra forsendna sem skilgreina fjárhagslega hagkvæmasta tilboð eins og þessar forsendur hafa verið tilgreindar í útboðsauglýsingu eða útboðsgögnum. Hugsanleg vikmörk vægis við mat verðgildis sem fram hafa komið í útboðsauglýsingu eða útboðsgögnum skal skilgreina sem fast verðgildi. Ef frávikstilboð eru heimil skal setja fram sérstakt reiknilíkan fyrir hvert leyfilegt frávik.

Í hverjum áfanga rafræns uppboðs skal kaupandi láta bjóðendum í té nægilegar upplýsingar svo að þeir geti metið niðurröðun tilboðs síns á hvaða tímamarki sem er. Kaupandi getur einnig upplýst bjóðendur um önnur atriði sem varða verð eða verðgildi sem sett hafa verið fram, enda hafi þetta komið fram í útboðsskilmálum. Kaupandi getur einnig upplýst um fjölda bjóðenda í viðkomandi áfanga uppboðs. Kaupanda er þó ekki undir neinum kringumstæðum heimilt að upplýsa um nafn bjóðanda á hvaða stigi uppboðs sem er.

Kaupandi skal ljúka rafrænu uppboði á einn eða fleiri eftirfarandi máta:

  1. Með því að tilgreina fyrirfram ákveðinn dag og tíma um lok uppboðs í tilkynningu.
  2. Þegar ekki berast fleiri verð eða verðgildi sem fullnægja kröfum um lágmarksbreytingar. Við þessar aðstæður skal taka fram í tilkynningu þann frest sem látinn verður líða frá því að síðasta tilboð barst þar til uppboði er lokið.
  3. Þegar þeim áföngum uppboðs sem kveðið var á um í tilkynningu hefur verið lokið.

Þegar kaupandi ákveður að ljúka uppboði í samræmi við c-lið 7. mgr., eftir atvikum einnig með vísan til þeirrar aðferðar sem um getur í b-lið 7. mgr., skal tímaáætlun fyrir hvern áfanga uppboðs koma fram í tilkynningu þar sem bjóðanda var gefinn kostur á að taka þátt í uppboði.

Þegar rafrænu uppboði hefur verið lokið skal kaupandi velja hagkvæmasta tilboð sem fram hefur komið við uppboðið í samræmi við 90. gr.

57. gr. Rafrænir vörulistar.

Ef farið er fram á rafræn samskipti í innkaupaferli er kaupanda heimilt að krefjast þess að tilboð séu lögð fram í formi rafræns vörulista eða að tilboði fylgi rafrænn vörulisti. Fyrirtæki skulu útbúa rafræna vörulista til að taka þátt í tilteknu innkaupaferli í samræmi við þær tæknilýsingar og með því sniði sem kaupandi ákveður. Rafrænir vörulistar skulu vera í samræmi við kröfur um rafræn samskipti og aðrar viðbótarkröfur sem settar eru fram, sbr. 47. gr.

Þegar framlagningar tilboða í formi rafrænna vörulista er krafist skal kaupandi tilgreina það í útboðsauglýsingu eða boði um að staðfesta áhuga, eða boði um að leggja fram tilboð þegar tilkynning um hæfismat er notuð til að kynna útboð. Þá skal einnig tilgreina í útboðsskilmálum allar nauðsynlegar upplýsingar, sbr. 47. gr., um snið, þann rafræna búnað sem nota á, ásamt tæknilegu fyrirkomulagi varðandi tengingu við kerfið og tæknilýsingar í því sambandi.

Þegar rammasamningur hefur verið gerður við fleiri en eitt fyrirtæki eftir að lögð hafa verið fram tilboð í formi rafrænna vörulista er kaupanda heimilt að láta örútboð fara fram milli rammasamningshafa vegna tiltekinna innkaupa á grundvelli uppfærðra vörulista. Í slíku örútboði skal kaupandi gera annaðhvort:

  1. bjóða fyrirtækjum að leggja fram rafræna vörulista að nýju eftir að hafa aðlagað þá að kröfu viðkomandi samnings, eða
  2. tilkynna fyrirtækjum að hann hafi í hyggju að safna úr þeim rafrænu vörulistum, sem þegar hafa verið lagðir fram, nauðsynlegum upplýsingum til að setja saman tilboð sem löguð eru að kröfum viðkomandi samnings, að því tilskildu að notkun þessarar aðferðar hafi verið tilgreind í útboðsskilmálum fyrir rammasamning.

Þegar örútboð fer fram vegna einstakra samninga, sbr. b-lið 3. mgr., skal upplýsa fyrirtæki hvaða dag og á hvaða tíma kaupandi hyggst safna saman nauðsynlegum gögnum til að setja saman tilboð sem löguð eru að kröfum hins tiltekna samnings. Gefa skal fyrirtækjum tækifæri á að hafna slíkri upplýsingaöflun. Hæfilegur tími skal líða á milli tilkynningar og upplýsingasöfnunar. Áður en samningur er gerður skal kaupandi tilkynna viðkomandi fyrirtæki um þær upplýsingar sem safnað var og gefa því tækifæri á að andmæla eða staðfesta að innihald tilboðs sé efnislega rétt.

Kaupanda er einnig heimilt að gera samninga á grundvelli gagnvirks innkaupakerfis þar sem krafist er að tilboð vegna einstakra samninga séu lögð fram í formi rafræns vörulista. Kaupandi getur einnig gert samninga á grundvelli gagnvirks innkaupakerfis í samræmi við b-lið 3. mgr. og 4. mgr., að því tilskildu að með tilkynningu um þátttöku í innkaupakerfið fylgi rafrænn vörulisti í samræmi við þær tæknilýsingar og með því sniði sem kaupandi ákveður. Fyrirtæki skulu fullgera vörulistann í kjölfar tilkynningar um fyrirætlun kaupanda að setja saman tilboð úr rafrænum vörulistum, sbr. b-lið 3. mgr.

58. gr. Tilhögun hönnunarsamkeppni.

Ákvæði þessarar greinar gilda um hönnunarsamkeppni þar sem samanlagt virði verðlauna eða annarra greiðslna til þátttakanda er yfir viðmiðunarfjárhæðum vegna þjónustukaupa skv. 15. gr.

Þegar hönnunarsamkeppni er haldin sem liður í kaupum á þjónustu skal taka tillit til heildarvirðis samnings, án virðisaukaskatts, auk þeirra greiðslna sem um ræðir í 1. mgr. Þegar hönnunarsamkeppni er haldin og kaupandi hefur ekki afsalað sér heimild til að gera þjónustusamning með samningskaupum skv. j-lið 1. mgr. 53. gr. að aflokinni hönnunarsamkeppni skal einnig taka tillit til heildarvirðis mögulegs þjónustusamnings, án virðisaukaskatts, auk þeirra greiðslna sem um ræðir í 1. mgr.

Óheimilt er að takmarka aðgang að hönnunarsamkeppni með vísan til þjóðernis eða búsetu á ákveðnu svæði eða einskorða aðgang við annaðhvort lögaðila eða einstaklinga.

Kaupandi sem hyggst halda hönnunarsamkeppni skal birta opinberlega auglýsingu um hana. Ef kaupandi hyggst gera þjónustusamning síðar, í samræmi við j-lið 1. mgr. 53. gr., skal það koma fram í auglýsingu um samkeppni. Í auglýsingu eða skýringargögnum, sem vísað er til í auglýsingu, skulu koma fram upplýsingar um tilhögun keppninnar, forsendur fyrir vali þátttakenda, ef fjöldi þeirra er takmarkaður, og forsendur fyrir vali áætlunar eða tillögu. Við gerð auglýsingar og birtingu skal að öðru leyti farið eftir reglum um útboðsauglýsingar og birtingu þeirra, eftir því sem við á. Tilkynna skal þátttakendum í hönnunarsamkeppni um niðurstöður keppninnar. Ef birting upplýsinga mundi hindra löggæslu, vera andstæð almannahagsmunum eða stofna í hættu lögmætum viðskiptahagsmunum tiltekins fyrirtækis, hvort heldur er einkarekins eða í opinberri eigu, eða gæti hindrað samkeppni milli veitenda þjónustu er ekki skylt að birta upplýsingar.

Ef ákveðið er að takmarka fjölda þátttakenda í hönnunarsamkeppni við ákveðinn fjölda skal gæta jafnræðis með því að setja fram málefnalegar forsendur fyrir vali þátttakenda. Fjöldi þátttakenda skal alltaf vera nægilegur til að tryggja raunhæfa samkeppni.

Dómnefnd skal aðeins skipuð einstaklingum sem eru óháðir þátttakendum í samkeppni. Þar sem tiltekinnar menntunar eða starfshæfni er krafist af þátttakendum skal a.m.k. einn þriðji hluti dómnefndarmanna hafa þá menntun eða sambærilega starfshæfni.

Dómnefnd skal vera sjálfstæð í ákvörðunum og áliti sínu. Hún skal kanna áætlanir og tillögur sem þátttakendur leggja fram eingöngu á grundvelli forsendna sem eru tilgreindar í tilkynningu um samkeppni, sbr. 4. mgr. Dómnefnd skal útbúa skýrslu, sem allir dómnefndarmenn skulu undirrita, þar sem fram kemur mat á hverri tillögu ásamt athugasemdum eða atriðum sem talin eru þarfnast skýringar. Heimilt er að gefa þátttakendum kost á að svara spurningum sem dómnefnd hefur áður fært til bókar í því skyni að skýra atriði í tillögu. Spurningar dómnefndar og svör þátttakenda skulu koma fram í endanlegri fundargerð dómnefndar.

VII. KAFLI Útboðsgögn og undirbúningur innkaupa.

59. gr. Undanfarandi markaðskannanir.

Áður en innkaupaferli hefst er kaupanda heimilt að gera markaðskannanir til að undirbúa innkaup og upplýsa fyrirtæki um áformuð innkaup og kröfur varðandi þau.

Kaupandi getur í þessu skyni fengið ráðgjöf frá fyrirtækjum, sjálfstæðum sérfræðingum eða öðrum opinberum aðilum. Ráðgjöf má nota við skipulagningu og framkvæmd innkaupaferlis með því skilyrði að samkeppni sé ekki raskað og að meginreglum um gagnsæi og jafnræði sé framfylgt.

60. gr. Aðkoma fyrirtækis að undirbúningi innkaupa.

Þegar fyrirtæki eða aðili sem tengist fyrirtæki hefur veitt kaupanda ráðgjöf eða komið að undirbúningi innkaupa skal kaupandi gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að fyrri aðkoma þess raski ekki samkeppni. Ráðstafanir skulu m.a. felast í því að láta öðrum þátttakendum og bjóðendum í té upplýsingar sem máli skipta og setja hæfilegan tilboðsfrest.

Aðeins skal útiloka hlutaðeigandi fyrirtæki frá innkaupaferli ef ekki er með neinu öðru móti unnt að tryggja jafnræði. Áður en fyrirtæki er útilokað skal því gefinn kostur á að sýna fram á að aðkoma þess, eða aðila sem tengist því, að undirbúningi innkaupaferlisins geti ekki raskað samkeppni.

61. gr. Tæknilýsingar.

Tæknilýsingar skulu vera í útboðsgögnum. Í tæknilýsingu skal koma fram hvaða eiginleika verk, vara eða þjónusta þurfi að uppfylla. Þessir eiginleikar geta vísað til sérstaks ferlis eða aðferðar við framleiðslu eða afhendingu viðkomandi verka, vara eða þjónustu eða til sérstaks ferlis á öðru stigi vistferils þeirra, jafnvel þótt slíkir þættir séu ekki hluti af þeim, að því tilskildu að þeir tengist efni samningsins og séu í réttu hlutfalli við verðgildi hans og markmið. Í tæknilýsingum má einnig tilgreina hvort krafist verður yfirfærslu hugverkaréttinda.

Í tæknilýsingum skal taka tillit til viðmiðana um aðgengi fyrir fatlað fólk eða hönnun fyrir alla notendur nema málefnaleg rök kaupanda leiði til annarrar niðurstöðu. Hafi lögboðnar kröfur verið settar um aðgengi fatlaðs fólks eða hönnun fyrir alla notendur skulu tæknilýsingar skilgreindar með tilvísun til þeirra.

Tæknilýsingar skulu veita fyrirtækjum jöfn tækifæri. Þær mega ekki leiða til ómálefnalegra hindrana á samkeppni við opinber innkaup.

Að svo miklu leyti sem annað kemur ekki fram í óundanþægum innlendum reglum, sem eru í samræmi við skuldbindingar íslenska ríkisins samkvæmt EES-samningnum, skal kveða á um tæknilýsingar á einhvern eftirgreindan hátt:

  1. Með tilvísun til einhvers af eftirfarandi í þeirri forgangsröð sem hér greinir:

    1. innlendra staðla sem fela í sér innleiðingu á evrópskum stöðlum,
    2. evrópsks tæknisamþykkis,
    3. sameiginlegra tækniforskrifta,
    4. alþjóðlegra staðla,
    5. annarra tæknilegra tilvísunarkerfa sem evrópskar staðlastofnanir hafa komið á fót.

Ef framangreind gögn eru ekki fyrir hendi er heimilt að vísa til íslenskra staðla, íslensks tæknisamþykkis eða íslenskra tækniforskrifta sem tengjast hönnun, útreikningi og framkvæmd verks og notkun vöru. Hverri tilvísun skal fylgja orðalagið "eða jafngildur" eða sambærilegt orðalag.

  1. Með lýsingu á virkni eða kröfum til hagnýtingar, þar á meðal kröfum til eiginleika sem tengjast umhverfinu. Slík viðmið verða þó að vera nægilega nákvæm til að gera bjóðendum kleift að gera sér grein fyrir efni samnings og gera kaupanda mögulegt að gera upp á milli tilboða.
  2. Með lýsingu á virkni eða kröfum til hagnýtingar, sbr. b-lið, þó þannig að tæknilýsingar sem fjallað er um í a-lið séu notaðar til að kanna hvort kröfum um þessi atriði sé fullnægt.
  3. Með því að vísa til forskrifta, sbr. a-lið, um suma eiginleika og með því að vísa til frammistöðu eða krafna til hagnýtingar, sbr. b-lið, um aðra.

Tæknilýsingar skulu ekki vísa til sérstakrar gerðar, framleiðanda, sérstakrar vinnslu, vörumerkja, einkaleyfa, tegundar, uppruna eða framleiðslu með þeim afleiðingum að fyrirtækjum er mismunað eða ákveðin fyrirtæki eru útilokuð frá þátttöku í innkaupum, enda helgist slík tilvísun ekki beinlínis af efni samnings. Í undantekningartilvikum er tilvísun sem þessi heimil þegar lýsing á efni samnings er ekki möguleg skv. 4. mgr., enda fylgi slíkri tilvísun orðalagið "eða jafngildur" eða sambærilegt orðalag.

Ef kaupandi nýtir heimild í a-lið 4. mgr. skal hann ekki vísa frá tilboði á þeim grundvelli að vara eða þjónusta sem boðin er fram sé í ósamræmi við tæknilýsingar, enda sýni bjóðandi fram á, með einhverjum viðeigandi hætti, að lausnir hans fullnægi með sambærilegum hætti þeim kröfum sem leitast er við að fullnægja með hlutaðeigandi tæknilýsingum. Sönnun með viðeigandi hætti í framangreindum skilningi gæti falist í tæknilegri lýsingu framleiðanda eða prófunarskýrslu frá viðurkenndri stofnun, sbr. 63. gr.

Ef kaupandi nýtir sér heimild í 4. mgr. til að slá föstum tæknilýsingum með lýsingu á virkni eða kröfum til hagnýtingar skal hann ekki vísa frá tilboði í verk eða þjónustu sem er í samræmi við innlenda staðla sem innleiða evrópska staðla eða í samræmi við evrópskt tæknisamþykki, sameiginlegar tækniforskriftir, alþjóðlegan staðal eða önnur tæknileg tilvísunarkerfi sem evrópskar staðlastofnanir hafa komið á fót, enda fjalli þessar forskriftir um þá virkni eða kröfur um hagnýtingu sem kaupandi hefur slegið föstum. Í tilboði sínu verður bjóðandi að sýna fram á það með viðeigandi hætti, þannig að kaupandi telji það fullnægjandi, að verk, vara eða þjónusta sem er í samræmi við staðal fullnægi kröfum kaupanda um frammistöðu og hagnýtingu. Sönnun með viðeigandi hætti í framangreindum skilningi gæti falist í tæknilegri lýsingu framleiðanda eða prófunarskýrslu frá viðurkenndri stofnun, sbr. 63. gr.

62. gr. Merki.

Kaupanda sem hyggst kaupa verk, vöru eða þjónustu með sérstökum umhverfis- eða félagslegum eiginleikum er heimilt að krefjast sérstaks merkis til sönnunar um að tilheyrandi kröfum sé fullnægt. Kaupandi getur farið fram á kröfur um sérstaka umhverfis- eða félagslega eiginleika í tæknilýsingum, forsendum fyrir vali tilboðs eða skilyrðum varðandi framkvæmd samnings enda sé eftirfarandi skilyrðum fullnægt:

  1. Að kröfur sem liggja til grundvallar merki varði einungis viðmiðanir sem tengjast efni samnings og séu til þess fallnar að skilgreina eiginleika verka, vöru eða þjónustu sem samningur fjallar um.
  2. Að kröfur sem liggja til grundvallar merki byggist á hlutlægt sannprófanlegum viðmiðunum án mismununar.
  3. Að merki sé stofnað á grundvelli opinnar og gagnsærrar málsmeðferðar sem allir sem eiga hagsmuna að gæta, svo sem ríkisstofnanir, neytendur, aðilar vinnumarkaðarins, framleiðendur, dreifingaraðilar og önnur félagasamtök, geta tekið þátt í.
  4. Að merki sé aðgengilegt öllum hlutaðeigandi aðilum.
  5. Að kröfur sem liggja til grundvallar merki séu settar af þriðja aðila sem fyrirtæki, sem sækir um merkið, getur ekki haft afgerandi áhrif á.

Fari kaupandi ekki fram á að verk, vara eða þjónusta uppfylli allar kröfur sem liggja til grundvallar merki skal hann tilgreina hvaða kröfur þarf að uppfylla í útboðsskilmálum. Samþykkja ber öll merki sem staðfesta að verk, vara eða þjónusta uppfylli jafngildar kröfur.

Hafi fyrirtæki bersýnilega ekki haft möguleika á að afla sér merkis sem kaupandi tilgreinir, innan tiltekins frests, af ástæðum sem ekki verða raktar til fyrirtækisins, skal kaupandi samþykkja önnur viðeigandi sönnunargögn. Skilyrði er að fyrirtæki sýni fram á að verkið, varan eða þjónustan uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til merkis eða þær kröfur sem kaupandi hefur tilgreint í útboðsskilmálum.

Uppfylli merki skilyrði sem kveðið er á um í b-, c-, d- og e-lið 1. mgr. en taki einnig til krafna sem tengjast ekki efni samnings skal kaupandi ekki krefjast merkisins sem slíks. Kaupanda er þó heimilt að setja fram tæknilýsingu með tilvísun til forskrifta merkisins eða, ef nauðsyn krefur, hluta þeirra, sem tengjast eða eru til þess fallnar að skilgreina efni samningsins.

63. gr. Prófunarskýrslur, vottun og önnur sönnunargögn.

Kaupandi getur krafist þess að fyrirtæki leggi fram prófunarskýrslu eða vottorð frá samræmismatsstofu sem sönnunargagn fyrir því að kröfur eða viðmiðanir sem settar eru fram í tæknilýsingum, forsendum fyrir vali tilboðs eða skilyrðum varðandi framkvæmd samnings séu uppfylltar. Krefjist kaupandi vottorðs frá sérstakri vottunarstofu skal hann þó jafnframt samþykkja vottorð frá öðrum jafngildum stofum.

Hafi fyrirtæki ekki aðgang að vottorðum eða prófunarskýrslum sem um getur í 1. mgr., eða hafi engan möguleika á að afla þeirra innan tiltekins frests, skal kaupandi samþykkja önnur viðeigandi sönnunargögn en þau sem um getur í 1. mgr. Skilyrði er að ástæður hindrunar megi ekki rekja til fyrirtækisins sjálfs og það sýni með sönnunargögnunum fram á að verkið, varan eða þjónustan sem það býður uppfylli kröfur eða viðmiðanir sem settar eru fram í tæknilýsingum, forsendum fyrir vali tilboðs eða skilyrðum varðandi framkvæmd samnings.

64. gr. Afhending tæknilýsinga.

Kaupandi skal að fenginni beiðni frá fyrirtæki sem hafa áhuga á samningi, gera aðgengilegar þær tæknilýsingar, sem reglulega er vísað til í vöru-, verk- eða þjónustusamningum, eða þær tæknilýsingar sem hann hefur í hyggju að nota fyrir samninga þegar notast er við forauglýsingu sem útboðsauglýsingu.

Tæknilýsingar skv. 1. mgr. skulu gerðar aðgengilegar með rafrænum aðferðum án endurgjalds með ótakmörkuðum og beinum aðgangi.

Þegar ekki er hægt að veita ótakmarkaðan og beinan aðgang án endurgjalds með rafrænum aðferðum að tilteknum útboðsgögnum vegna ástæðna sem koma fram í 2. mgr. 47. gr. eða 2. mgr. 42. gr. skal kaupandi veita aðgang að tæknilýsingum með öðrum hætti en rafrænum. Ef tæknilýsingar byggjast á skjölum, sem áhugasöm fyrirtæki hafa þegar ótakmarkaðan beinan aðgang að með rafrænum aðferðum, án endurgjalds, nægir að vísa til slíkra skjala.

65. gr. Frávikstilboð.

Kaupandi getur heimilað eða krafist þess að bjóðandi leggi fram frávikstilboð, sem uppfylla lágmarkskröfur. Kaupandi skal tilgreina í útboðsgögnum hvort hann heimilar eða krefst þess að lagt verði fram frávikstilboð.

Kaupandi skal gera grein fyrir lágmarkskröfum sem frávikstilboð þarf að uppfylla og öðrum sérkröfum sem varða framlagningu þess. Taka skal fram hvort einungis er heimilt að leggja fram frávikstilboð samhliða tilboði sem ekki er frávikstilboð. Kaupandi skal tryggja að valforsendur geti jafnt átt við um frávikstilboð sem uppfylla lágmarkskröfur sem og gild tilboð sem ekki eru frávikstilboð.

Kaupandi sem býður út vöru- eða þjónustusamning og hefur heimilað eða auglýst eftir frávikstilboðum skal ekki hafna frávikstilboði af þeirri ástæðu einni að samningur, ef hann yrði gerður, yrði þjónustusamningur í stað vörusamnings eða vörusamningur í stað þjónustusamnings.

66. gr. Skipting samninga í hluta.

Kaupandi getur ákveðið að skipta samningi upp í hluta og ákvarðað stærð og efni slíkra samningshluta.

Kaupandi skal taka fram í útboðsauglýsingu eða í boði um að staðfesta áhuga, eða í boði um að leggja fram tilboð eða ganga til samninga þegar tilkynning um hæfismatskerfi er notuð til að kynna útboð, hvort gera má tilboð í aðeins einn, nokkra eða alla hluta samnings.

Kaupanda er heimilt að setja hámark á fjölda samninga sem gera má við hvern bjóðanda enda hafi það verið tekið fram í útboðsauglýsingu eða í boði um að staðfesta áhuga, leggja fram tilboð eða ganga til samninga. Kaupandi skal tilgreina í útboðsgögnum hvaða hlutlægu forsendur verða notaðar til að ákveða um hvaða hluta gerðir verða samningar við bjóðendur ef valforsendur leiða til þess að einn bjóðandi fær fleiri hluta en sem nemur hámarksfjölda.

Kaupanda er heimilt að gera samninga um fleiri en einn hluta samnings við sama bjóðandann með því að sameina nokkra eða alla hluta samnings. Skilyrði er að kaupandi hafi gert áskilnað um möguleika á því í útboðsauglýsingu eða í boði um að staðfesta áhuga, leggja fram tilboð eða ganga til samninga og tilgreint hvaða hluta er heimilt að sameina.

67. gr. Forauglýsing.

Kaupanda er heimilt að kynna fyrirhuguð innkaup með birtingu forauglýsingar í samræmi við VI. og IX. viðauka.

Þegar tilkynnt er um lokað útboð og samningskaup að undangenginni útboðsauglýsingu með forauglýsingu skal tilkynning uppfylla öll eftirfarandi skilyrði:

  1. Vísað er sérstaklega til þeirrar vöru, þjónustu eða verks sem samningur tekur til.
  2. Fram kemur að samningur verði gerður á grundvelli lokaðs útboðs eða samningskaupa án frekari birtingar útboðsauglýsingar og fyrirtækjum boðið að láta áhuga sinn í ljós skriflega eða með rafrænum aðferðum.
  3. Auglýsing inniheldur upplýsingar sem fram koma í I. og II. þætti A-hluta VI. viðauka.
  4. Auglýsing hefur verið send til birtingar minnst 35 dögum og mest 12 mánuðum fyrir þann dag sem boð um að staðfesta áhuga er sent.

Forauglýsingu skal ekki birta í upplýsingaskrá kaupanda. Viðbótarbirting á landsvísu, skv. 72. gr. getur hins vegar farið fram í upplýsingaskrá kaupanda.

Tímabil sem forauglýsing tekur til skal vera mest 12 mánuðir frá þeim degi þegar auglýsing er send til birtingar.

68. gr. Tilkynning um hæfismatskerfi.

Kaupandi sem hyggst koma upp hæfismatskerfi í samræmi við 85. gr. skal birta almenna tilkynningu um að hæfismatskerfi sé fyrir hendi í samræmi við X. viðauka. Í tilkynningu skal koma fram hvaða tilgangi hæfismatskerfið eigi að þjóna og hvernig sé hægt að nálgast reglur um notkun þess. Í tilkynningu skal jafnframt tilgreina gildistíma hæfismatskerfisins.

Kaupandi skal tilkynna útgáfuskrifstofu Evrópusambandsins um hvers konar breytingu á gildistíma með eftirtöldum stöðluðum eyðublöðum:

  1. Ef gildistímanum er breytt án þess að bundinn sé endi á kerfið, með eyðublaði fyrir tilkynningar um að hæfismatskerfi sé fyrir hendi.
  2. Ef bundinn er endi á kerfið, með tilkynningu um gerð samnings í samræmi við 93. gr.

69. gr. Auglýsing útboða.

Útboð sem fara fram samkvæmt 49.-52. gr. á vörum, þjónustu og verki yfir viðmiðunarfjárhæðum skv. 15. gr. skulu auglýst á útboðsvef sem er sameiginlegur auglýsingavettvangur fyrir opinber útboð. Jafnframt skal birta almenna tilkynningu um að hæfismatskerfi sé fyrir hendi, að lágmarki einu sinni á ári, á útboðsvef, sbr. 68. gr. Auk þess er heimilt að auglýsa hvers konar innkaup með áberandi hætti þannig að öll áhugasöm fyrirtæki geti tekið þátt í innkaupaferli.

Í útboðsauglýsingu skulu koma fram upplýsingar sem settar eru fram í viðkomandi hluta XI. viðauka.

Samtímis því, eða eftir að auglýst er, getur kaupandi hvatt tiltekna aðila til þátttöku í innkaupaferli. Ekki má þó veita slíkum aðilum aðrar upplýsingar en fram koma í auglýsingu.

70. gr. Auglýsing og tilkynning innkaupa til útgáfuskrifstofu Evrópusambandsins.

Auglýsingar og tilkynningar vegna innkaupa sem eru yfir viðmiðunarfjárhæðum á Evrópska efnahagssvæðinu skulu gerðar á stöðluðum eyðublöðum, sbr. reglugerð um staðlað eyðublað fyrir samevrópska hæfisyfirlýsingu og stöðluð eyðublöð fyrir birtingu tilkynninga við opinber innkaup, og sendar með rafrænum aðferðum til útgáfuskrifstofu Evrópusambandsins og birtar í samræmi við IX. viðauka. Kaupandi skal geta sýnt fram á hvaða dag tilkynning er send til útgáfuskrifstofunnar.

Ekki skal birta auglýsingar og tilkynningar innanlands áður en þær hafa verið birtar á erlendum vettvangi skv. 1. mgr. Þó má birting fara fram innanlands hafi kaupanda ekki verið tilkynnt um birtingu innan tveggja daga frá staðfestingu á móttöku tilkynningar frá útgáfuskrifstofu Evrópusambandsins. Auglýsingar og tilkynningar sem birtar eru innanlands skulu ekki innihalda aðrar upplýsingar en þær sem birtast á erlendum vettvangi.

71. gr. Meginreglur um fresti.

Frestur til að skila tilboðum skal vera nægjanlega langur til að bjóðandi geti undirbúið tilboð. Lengd frests skal einkum taka mið af því hversu flókinn samningur er og hve langan tíma þarf til að semja tilboð.

Frestur reiknast frá deginum eftir að útboðsauglýsing er birt að meðtöldum opnunardegi nema annað sé tekið fram. Allir almanaksdagar eru taldir með.

Ákveða skal fresti til að taka við tilboðum sem eru lengri en lágmarksfrestir skv. 72. og 73. gr. ef ekki er unnt að gera tilboð fyrr en að lokinni vettvangsskoðun eða athugun á fylgiskjölum útboðsgagna á vettvangi, þannig að öll fyrirtæki geti kynnt sér nauðsynlegar upplýsingar við gerð tilboðs.

Kaupandi skal lengja frest til að taka við tilboðum svo að öll fyrirtæki geti kynnt sér nauðsynlegar upplýsingar við gerð tilboðs ef mikilvægar viðbótarupplýsingar hafa ekki verið afhentar að lágmarki sex dögum áður en tilboðsfrestur rennur út eða þegar umtalsverðar breytingar hafa verið gerðar á útboðsgögnum. Ef um hraðútboð er að ræða skal afhenda viðbótarupplýsingar að lágmarki fjórum dögum áður en tilboðsfrestur rennur út. Lengd framlengingar skal að öðru leyti taka mið af mikilvægi viðbótarupplýsinga og breytinga sem gerðar eru á útboðsgögnum. Hafi ekki verið beðið um viðbótarupplýsingar með hæfilegum fyrirvara, eða mikilvægi þeirra við undirbúning tilboða er óverulegt, er kaupanda ekki skylt að lengja tilboðsfrest.

Kaupandi skal lengja frest til að leggja fram tilboð um fimm daga þegar ekki er unnt að veita aðgang að útboðsgögnum án endurgjalds með rafrænum aðferðum, sbr. 2. og 3. mgr. 74. gr.

72. gr. Frestur í almennu útboði.

Tilboðsfrestur í almennu útboði yfir viðmiðunarfjárhæðum skal vera minnst 35 almanaksdagar.

Heimilt er að stytta tilboðsfrest skv. 1. mgr. um fimm daga ef leggja má fram rafræn tilboð í samræmi við 47. gr. Einnig er heimilt að stytta tilboðsfrest skv. 1. mgr. niður í 15 almanaksdaga þegar forauglýsing skv. 67. gr. hefur verið birt minnst 35 dögum áður og mest 12 mánuðum fyrir birtingu almennrar auglýsingar.

Ef brýn nauðsyn krefst þess að hraða þurfi útboði er kaupanda heimilt að víkja frá þeim frestum sem greinir í ákvæði þessu. Frestur til að skila tilboðum skal þó aldrei vera skemmri en 15 almanaksdagar frá birtingu auglýsingar.

73. gr. Frestir í lokuðu útboði, samningskaupum að undangenginni útboðsauglýsingu, samkeppnisviðræðum og nýsköpunarsamstarfi.

Frestur til að skila þátttökubeiðnum í forvali vegna lokaðs útboðs og samningskaupa að undangenginni útboðsauglýsingu, samkeppnisviðræðum og nýsköpunarsamstarfi, sem er yfir viðmiðunarfjárhæðum, skal almennt vera 30 almanaksdagar frá birtingu útboðsauglýsingar og aldrei skemmri en 15 dagar.

Ef forauglýsing er notuð til að kynna innkaup skal miða frest til að skila inn þátttökubeiðnum, sbr. 1. mgr., frá þeim degi þegar boð um að staðfesta áhuga var sent.

Í lokuðu útboði og samningskaupum að undangenginni útboðsauglýsingu er heimilt að ákveða frest til að taka við tilboðum með gagnkvæmu samkomulagi milli kaupanda og valinna þátttakenda, að því tilskildu að allir valdir þátttakendur hafi sama tíma til að semja og leggja fram tilboð sín. Ef ekki næst samkomulag um frest til að taka við tilboðum, skal fresturinn vera að lágmarki 10 dagar frá deginum þegar boð um að leggja fram tilboð er sent.

74. gr. Rafrænt aðgengi að útboðsgögnum.

Kaupandi skal án endurgjalds veita ótakmarkaðan og beinan aðgang að útboðsgögnum með rafrænum aðferðum frá og með birtingardegi auglýsingar eða tilkynningar, sbr. 70. gr., eða þegar boð um að staðfesta áhuga var sent. Þegar tilkynning um að hæfismatskerfi sé fyrir hendi er notuð til að kynna útboð skal bjóða aðgang eins fljótt og unnt er og eigi síðar en þegar boð um að leggja fram tilboð eða ganga til samninga er sent. Í tilkynningu eða boði um að staðfesta áhuga skal koma fram hvar hægt sé að nálgast útboðsgögn með rafrænum aðferðum.

Ef ekki er unnt að veita ótakmarkaðan og beinan aðgang að tilteknum útboðsgögnum án endurgjalds með rafrænum aðferðum af ástæðum sem um ræðir í 2. mgr. 47. gr., getur kaupandi tekið það fram í tilkynningu eða í boði um að staðfesta áhuga að viðkomandi útboðsgögn verði send með öðrum hætti, í samræmi við 2. mgr. 47. gr. Í því tilviki skal lengja frestinn til að leggja fram tilboð um fimm daga nema í brýnum og vel rökstuddum tilvikum, sbr. 3. mgr. 72. gr. eða þegar frestur er settur með gagnkvæmu samkomulagi, sbr. 3. mgr. 73. gr.

Ef ekki er hægt að veita ótakmarkaðan og beinan aðgang með rafrænum aðferðum án endurgjalds að tilteknum útboðsgögnum vegna trúnaðarskyldu skv. 2. mgr. 42. gr. skal taka fram í tilkynningu eða í boði um að staðfesta áhuga hvaða ráðstafana er krafist til að vernda trúnaðarupplýsingar og hvernig er hægt að fá aðgang að viðkomandi gögnum. Í því tilviki skal lengja frestinn til að leggja fram tilboð um fimm daga nema í brýnum og vel rökstuddum tilvikum, sbr. 3. mgr. 72. gr., eða þegar frestur er settur með gagnkvæmu samkomulagi, sbr. 3. mgr. 73. gr.

Kaupandi lætur öllum bjóðendum sem taka þátt í innkaupaferli í té viðbótarupplýsingar sem einkum tengjast tæknilýsingu og fylgiskjölum, ef einhver eru, eigi síðar en sex dögum áður en frestur til að taka við tilboðum rennur út, ef óskað hefur verið eftir viðbótarupplýsingum með hæfilegum fyrirvara. Sé um að ræða hraðútboð skv. 3. mgr. 72. gr. skal fresturinn vera fjórir dagar.

75. gr. Boð til þátttakenda.

Í lokuðum útboðum, samningskaupum að undagenginni útboðsauglýsingu, samkeppnisviðræðum og nýsköpunarsamstarfi með forvali skal kaupandi bjóða völdum þátttakendum, samtímis og skriflega, að leggja fram tilboð sín eða, þegar um viðræður er að ræða, að taka þátt í þeim.

Ef forauglýsing er notuð til að auglýsa útboð í samræmi við 2. mgr. 54. gr. skal kaupandi, samtímis og skriflega, bjóða fyrirtækjum, sem lýst hafa yfir áhuga, að staðfesta að sá áhugi sé enn fyrir hendi.

Í boði til þátttakanda skal koma fram hvar hægt sé að nálgast útboðsgögn með rafrænni aðferð. Útboðsgögn skulu fylgja með boði ef ótakmarkaður og beinn aðgangur hefur ekki verið veittur að þeim án endurgjalds, sbr. 2. og 3. mgr. 74. gr., og hafi ekki verið veittur aðgangur að þeim á annan hátt. Í boði til þátttakenda skulu að öðru leyti koma fram upplýsingar sem settar eru fram í XIII. viðauka.

76. gr. Opnun tilboða og afturköllun.

Kaupandi skal ákveða fyrirfram hvernig skal staðið að opnun tilboða.

Bjóðandi getur afturkallað tilboð sitt áður en tilboð eru opnuð, enda sé það gert skriflega eða með öðrum jafntryggum hætti.

VIII. KAFLI Val á þátttakendum og gerð samnings.

77. gr. Almennar reglur um val á bjóðanda og tilboði.

Eftirfarandi reglur skulu gilda um val á bjóðanda í innkaupaferli:

  1. Að bjóðandi uppfylli kröfur, skilyrði og viðmiðanir sem settar hafa verið fram í innkaupaferli, sbr. 79., 80. og 86. gr.
  2. Að bjóðandi hafi ekki verið útilokaður í innkaupaferli samkvæmt þeim reglum og viðmiðunum sem kaupandi hefur sett fram í innkaupaferli, sbr. 86. gr.
  3. Í lokuðum útboðum, samningskaupum að undangenginni útboðsauglýsingu, samkeppnisviðræðum og nýsköpunarsamstarfi, skal fækka bjóðendum í innkaupaferli í samræmi við a- og b-lið 1. mgr. eftir því sem við á.

Þegar hæfismatskerfi er notað til að kynna útboð og til stendur að velja bjóðendur með það fyrir augum að gera sérstaka samninga, sem útboðstilkynning á við um, skal kaupandi:

  1. Meta hæfi bjóðanda í samræmi við 85. gr.
  2. Beita ákvæðum 1. mgr., sem varða lokuð útboð eða samningskaup, samkeppnisviðræður eða nýsköpunarsamstarf, gagnvart bjóðendum sem standast hæfismat.

Þegar kaupandi ákvarðar um hæfi við val á þátttakendum í lokuðu útboði eða samningskaupum, í samkeppnisviðræðum eða í nýsköpunarsamstarfi eða uppfærir forsendur og reglur skal kaupandi ekki:

  1. Setja tilteknum bjóðendum stjórnunarleg, tæknileg eða fjárhagsleg skilyrði sem gilda ekki fyrir aðra.
  2. Krefjast prófana eða sönnunargagna sem þegar eru til í formi hlutlægra gagna.

Þegar upplýsingar eða gögn sem bjóðandi leggur fram virðast vera ófullkomin eða innihalda villur eða ef tiltekin skjöl vantar getur kaupandi farið fram á að bjóðandi leggi fram, bæti við, skýri eða fullgeri upplýsingar eða gögn innan hæfilegs frests. Slíkar skýringar, lagfæringar eða viðbótarupplýsingar mega þó ekki fela í sér breytingar á grundvallarþáttum tilboðs eða vera líkleg til að raska samkeppni eða ýta undir mismunun.

Kaupandi skal gæta þess að tilboð, sem valdir bjóðendur leggja fram, séu í samræmi við reglur og kröfur sem gilda um útboð og velja úr tilboðum á grundvelli þeirra forsendna sem mælt er fyrir um í 90. og 92. gr., að teknu tilliti til 65. gr.

Kaupanda er heimilt að hafna gerð samnings við þann bjóðanda sem boðið hefur fjárhagslega hagkvæmasta tilboðið ef hægt er að sýna fram á að það uppfyllir ekki kjarasamninga, löggjöf um umhverfisvernd eða félagsleg réttindi.

Í almennu útboði er kaupanda heimilt að meta tilboð áður en kannað er hvort bjóðandi uppfylli kröfur um hæfi skv. 77.-92. gr. Fullnægjandi mat á hæfiskröfum skal þó fara fram áður en samningur er gerður við bjóðanda.

78. gr. Almennar reglur um fyrirtæki.

Óheimilt er að vísa frá þátttakanda eða bjóðanda með vísan til þess að innlendar reglur áskilji að veitandi þjónustu þurfi að vera annaðhvort einstaklingur eða lögaðili, enda sé þátttakandanum eða bjóðandanum heimilt að veita þá þjónustu sem til stendur að kaupa samkvæmt lögum staðfesturíkis síns. Þegar um er að ræða þjónustusamninga, eða verksamninga ásamt vörusamningum sem fela einnig í sér þjónustu og/eða eftirlit og uppsetningu, er heimilt að krefjast þess af lögaðila að hann tilgreini í tilboði eða þátttökutilkynningu nöfn og starfsmenntun þeirra starfsmanna sem munu sjá um framkvæmd samningsins.

Fleiri fyrirtækjum er heimilt að standa að tilboði eða þátttökutilkynningu sameiginlega, enda teljast þau þá bera sameiginlega ábyrgð á efndum samnings. Óheimilt er kaupanda að krefjast þess að slíkur hópur fyrirtækja stofni til sérstaks lögákveðins rekstrarforms nema það sé nauðsynlegt fyrir fullnægjandi framkvæmd samnings. Kaupanda er þó heimilt að krefjast þess að eitt fyrirtæki komi fram fyrir hönd hinna við framkvæmd samnings og standi kaupanda öll skil.

79. gr. Ástæður til útilokunar vegna persónulegra aðstæðna.

Þátttakandi eða bjóðandi sem hefur verið sakfelldur með endanlegum dómi fyrir eftirtalin afbrot skal útilokaður frá þátttöku í innkaupaferli:

  1. þátttöku í skipulögðum glæpasamtökum,
  2. spillingu,
  3. sviksemi,
  4. hryðjuverk eða brot sem tengjast hryðjuverkastarfsemi,
  5. peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka,
  6. barnaþrælkun eða annars konar mansal.

Skylda til að útiloka þátttakanda eða bjóðanda gildir einnig þegar einstaklingur, sem hefur verið sakfelldur með endanlegum dómi fyrir brot skv. 1. mgr., er í stjórn, framkvæmdastjórn eða eftirlitsstjórn viðkomandi fyrirtækis eða hefur heimild til fyrirsvars, ákvörðunartöku eða yfirráða í því.

Þátttakandi eða bjóðandi skal útilokaður frá þátttöku í innkaupaferli hafi hann brotið gegn skyldum um greiðslu opinberra gjalda, lífeyrissjóðsiðgjalda eða annarra lögákveðinna gjalda og því hefur verið endanlega slegið föstu með ákvörðun dómstóls eða stjórnvalds þar sem bjóðandi er skráður eða í aðildarríki innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Heimilt er að útiloka þátttakanda eða bjóðanda frá þátttöku í innkaupaferli þegar kaupandi getur sýnt fram á með viðeigandi hætti að þátttakandi eða bjóðandi hafi brotið gegn skyldum um greiðslu opinberra gjalda, lífeyrissjóðsiðgjalda eða annarra lögákveðinna gjalda. Hafi þátttakandi eða bjóðandi uppfyllt skyldur sínar með því að greiða upp vanskil fyrir opnunardag tilboða á opinberum gjöldum eða gert samning um greiðslu þeirra, þ.m.t. vexti eða sektir, skal hann ekki útilokaður samkvæmt þessari málsgrein.

Í undantekningartilvikum vegna ástæðna sem varða almannahagsmuni, svo sem lýðheilsu eða umhverfisvernd, er heimilt að veita undanþágu frá útilokun skv. 3. og 4. mgr. enda vegi þær ástæður þyngra en ástæður fyrir útilokun bjóðanda.

Heimilt er að útiloka fyrirtæki frá þátttöku í innkaupaferli við einhverjar af eftirfarandi aðstæðum:

  1. Fyrirtæki hefur brotið gegn innlendum eða alþjóðlegum kröfum á sviði umhverfis-, félagsmála- og vinnuréttar sem kaupanda er unnt að sýna fram á.
  2. Bú fyrirtækis er undir gjaldþrotaskiptum eða félagi hefur verið slitið, það hefur fengið heimild til nauðasamninga eða greiðslustöðvunar eða er í annarri sambærilegri stöðu.
  3. Óskað hefur verið gjaldþrotaskipta eða slita á fyrirtæki, það hefur leitað heimildar til nauðasamninga eða greiðslustöðvunar eða er í annarri sambærilegri stöðu.
  4. Fyrirtæki hefur sýnt alvarlega vanrækslu í starfi, t.d. með broti gegn samkeppnislögum, sem kaupanda er unnt að sýna fram á.
  5. Fyrirtæki hefur gengið til samninga við önnur fyrirtæki í þeim tilgangi að raska samkeppni, t.d. með verðsamráði í útboði, sem kaupanda er unnt að sýna fram á með nægilegum líkum.
  6. Hagsmunaárekstrar eru til staðar í innkaupaferli sem ekki er hægt að lagfæra með aðgerðum sem ganga skemur.
  7. Fyrri aðkoma fyrirtækis á undirbúningsstigi, sbr. 60. gr., er talin raska samkeppni og ekki er hægt að lagfæra það með aðgerðum sem ganga skemur.
  8. Verulegir eða viðvarandi annmarkar hafa verið á framkvæmd fyrirtækis á efnislegum kröfum samkvæmt fyrri opinberum samningum sem hafa leitt til riftunar á samningi, kröfu um skaðabætur eða annarra svipaðra viðurlaga.
  9. Fyrirtæki hefur veitt rangar upplýsingar, leynt upplýsingum eða getur ekki lagt fram viðhlítandi fylgiskjöl sem krafist er, sbr. 84. gr., sem nauðsynleg eru til að sannreyna að ekki séu til staðar útilokunarástæður eða að hæfisforsendur séu uppfylltar.
  10. Fyrirtæki hefur með óréttmætum hætti reynt að hafa áhrif á ákvörðunartöku kaupanda til að öðlast trúnaðarupplýsingar sem geta veitt því óréttmætt forskot í innkaupaferli eða hefur af gáleysi veitt villandi upplýsingar sem geta haft efnisleg áhrif á ákvarðanir varðandi útilokun, val eða samningsgerð.

Við mat á því hvort 3., 4. og 6. mgr. eigi við um fyrirtæki skal litið til þess hvort um sé að ræða sömu rekstrareiningu, með sömu eða nær sömu eigendur í sömu eða nær sömu atvinnustarfsemi á sama markaði, án tillits til þess hvort fyrirtækið hafi skipt um kennitölu eða verið stofnað að nýju. Í þessu skyni er heimilt að kanna viðskiptasögu stjórnenda og helstu eigenda.

Þrátt fyrir b- og c-lið 6. mgr. er kaupanda heimilt að útiloka ekki viðkomandi fyrirtæki þegar hægt er að slá því föstu að fyrirtækið muni geta staðið við samninginn.

Fyrirtæki sem er í einhverjum þeim aðstæðum sem segir í 1. mgr. og 6. mgr. er heimilt að færa fram sönnur á að ráðstafanir sem það hefur gripið til dugi til að sýna fram á áreiðanleika þess þrátt fyrir að til staðar sé útilokunarástæða. Ef sönnun er talin fullnægjandi skal ekki útiloka viðkomandi fyrirtæki frá innkaupaferli.

Þegar útilokunartímabil hefur ekki verið ákvarðað með endanlegum dómi skal tímabil útilokunar ekki vara lengur en fimm ár frá dómsuppkvaðningu í þeim málum sem um getur í 1. mgr. og ekki lengur en í þrjú ár í þeim málum sem um getur í 6. mgr. Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja nánari reglur um hámarksútilokunartímabil.

80. gr. Hæfi bjóðanda.

Kaupanda er heimilt að setja skilyrði fyrir þátttöku fyrirtækja á grundvelli eftirfarandi krafna um hæfi:

  1. Vegna starfsréttinda, sbr. 81. gr.
  2. Vegna fjárhagsstöðu, sbr. 82. gr.
  3. Vegna tæknilegrar og faglegrar getu, sbr. 83. gr.

Aðeins er heimilt að setja skilyrði skv. 1. mgr. sem eru til þess fallin að tryggja lagalegt og fjárhagslegt hæfi og tæknilega og faglega getu til að efna skyldur samkvæmt fyrirhuguðum samningi. Skilyrði fyrir þátttöku skulu tengjast samningi og vera í hæfilegu hlutfalli við efni hans.

Í útboðsauglýsingu eða útboðsgögnum skal koma fram hvaða skilyrða skv. 1. mgr. er krafist fyrir þátttöku og hvaða gögn fyrirtæki þarf að leggja fram til sönnunar.

81. gr. Starfsréttindi.

Heimilt er að krefjast þess að fyrirtæki sýni fram á að það sé skráð í fyrirtækjaskrá. Þegar um er að ræða fyrirtæki frá öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða aðildarríkjum stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu má krefjast þess að fyrirtæki sýni fram á fullnægjandi skráningu í heimaríki sínu með vottorði.

Þegar um er að ræða gerð þjónustusamninga og bjóðendur eða þátttakendur þurfa að hafa sérstakt leyfi eða vera meðlimir í tilteknum samtökum til að mega veita hlutaðeigandi þjónustu í heimaríki sínu er heimilt að krefjast þess að þeir sýni fram á að þeir hafi slíkt leyfi eða séu félagar í slíkum samtökum.

82. gr. Fjárhagsstaða bjóðanda.

Fjárhagsstaða fyrirtækis skal vera það trygg að það geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart kaupanda. Í því skyni er kaupanda heimilt að krefjast þess að fyrirtæki hafi tiltekna lágmarksveltu á ári, þ.m.t. tiltekna lágmarksveltu á því sviði sem samningur fellur undir. Kaupanda er auk þess heimilt að gera kröfu um að fyrirtæki veiti upplýsingar úr ársreikningi sem sýni hlutfallstölur, t.d. milli eigna og skulda. Þá er kaupanda heimilt að gera kröfu um lágmarks eigið fé á grundvelli ársreiknings. Kaupanda er einnig heimilt að krefjast starfsábyrgðartryggingar.

Ekki má setja skilyrði um hærri lágmarksársveltu en nemur tvöföldu áætluðu verðmæti samnings nema þegar slík skilyrði eru réttlætanleg vegna sérstakrar áhættu í ljósi eðlis verkframkvæmdar, þjónustu eða vöru. Kaupandi skal gera grein fyrir meginástæðum slíks skilyrðis í útboðsgögnum.

Heimilt er að taka tillit til hlutfalls milli eigna og skulda þegar þær aðferðir og viðmiðanir sem beita á hafa verið tilgreindar í útboðsgögnum. Slíkar aðferðir og viðmiðanir skulu vera gagnsæjar, hlutlægar og án mismununar.

Þegar samningi er skipt í hluta skulu kröfur um fjárhagsstöðu eiga við um hvern einstakan hluta. Þó má gera kröfu um lágmarksársveltu fyrirtækis með tilliti til fleiri samningshluta ef fyrirtæki sem verður fyrir valinu hlýtur samning um nokkrar samningslotur sem framkvæma á samtímis.

Þegar innkaup eru gerð með örútboðum eða verðkönnun innan rammasamnings reiknast hámarksársvelta skv. 2. mgr. á grundvelli væntrar hámarksstærðar tiltekinna samninga, sem framkvæmdir verða samtímis, eða ef hún er ekki þekkt, á grundvelli áætlaðs verðmætis rammasamningsins. Þegar um er að ræða gagnvirkt innkaupakerfi reiknast krafan um hámarksársveltu skv. 2. mgr. á grundvelli væntrar hámarksstærðar tiltekinna samninga sem gerðir verða innan þess kerfis.

83. gr. Tæknileg og fagleg geta.

Tæknileg og fagleg geta fyrirtækis skal vera það trygg að það geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart kaupanda. Í því skyni er kaupanda heimilt að setja skilyrði um að fyrirtæki hafi nauðsynlegan mannauð, tækniúrræði og reynslu til að framkvæma samning í samræmi við viðeigandi gæðastaðal.

Kaupandi getur krafist þess að fyrirtæki hafi nægilega reynslu og sýni fram á það með viðeigandi gögnum í tengslum við samninga sem fyrirtækið hefur áður framkvæmt. Kaupanda er heimilt að álykta að fyrirtæki skorti faglega getu þegar hann hefur komist að raun um hagsmunaárekstra fyrirtækisins sem geta haft neikvæð áhrif á efndir samnings.

Þegar um er að ræða innkaupaferli sem felur í sér ísetningu og uppsetningu, þjónustu eða verk er heimilt að meta sérstaklega getu fyrirtækis til þess að veita þjónustuna, sjá um uppsetninguna eða vinna verkið, einkum með hliðsjón af hæfni, skilvirkni, reynslu og áreiðanleika.

84. gr. Hæfisyfirlýsing bjóðanda.

Fyrirtæki er heimilt að leggja fram sérstaka hæfisyfirlýsingu, sem eigin yfirlýsingu og bráðabirgðasönnun fyrir því að það uppfylli kröfur kaupanda, í stað vottorða sem gefin eru út af stjórnvöldum eða sambærilegum aðilum, til staðfestingar á að það uppfylli eftirfarandi skilyrði:

  1. Að ástæður til útilokunar vegna persónulegra aðstæðna skv. 79. gr. séu ekki til staðar.
  2. Að fyrirtæki uppfylli viðeigandi hæfiskröfur sem settar hafa verið fram skv. 80.-83. gr.
  3. Að fyrirtæki uppfylli, eftir því sem við á, hlutlægar reglur og viðmiðanir sem settar hafa verið fram skv. 86. gr.

Ef fyrirtæki byggir á getu annars aðila í samræmi við 87. gr. skal hæfisyfirlýsing bjóðanda einnig innihalda viðeigandi upplýsingar skv. 1. mgr. um þann aðila.

Hæfisyfirlýsing bjóðanda skal vera formleg yfirlýsing fyrirtækis um að viðeigandi ástæða til útilokunar eigi ekki við eða að það uppfylli viðeigandi hæfiskröfur og innihalda viðeigandi upplýsingar sem kaupandi krefst. Hæfisyfirlýsing bjóðanda skal einnig tilgreina það opinbera stjórnvald eða þann þriðja aðila sem ber ábyrgð á að útbúa fylgiskjöl og innihalda formlega yfirlýsingu um að fyrirtæki muni tafarlaust geta lagt fram þessi fylgiskjöl sé um það beðið. Þegar kaupandi getur haft beinan aðgang að fylgiskjölum í gagnasafni, sbr. 8. mgr., skulu nauðsynlegar upplýsingar um slíkan aðgang koma fram í hæfisyfirlýsingu bjóðanda, t.d. veffang gagnasafnsins, auðkennisgögn og, ef við á, nauðsynleg yfirlýsing um samþykki.

Fyrirtæki er heimilt að nota aftur sömu hæfisyfirlýsingu sem lögð var fram í fyrra innkaupaferli ef það staðfestir að upplýsingarnar í því séu enn réttar.

Ráðuneytið skal gefa út staðlað eyðublað fyrir hæfisyfirlýsingu bjóðanda sem skal aðeins vera aðgengileg á rafrænu formi.

Kaupandi getur hvenær sem er á meðan á innkaupaferli stendur farið fram á að fyrirtæki leggi fram öll eða hluta fylgiskjala ef það er nauðsynlegt til að tryggja eðlilegan framgang innkaupaferlis.

Kaupandi skal áður en opinber samningur er gerður krefjast þess að fyrirtæki, sem ákveðið hefur verið að gera samning við, leggi fram uppfærð fylgiskjöl, í samræmi við 88. gr. og eftir atvikum 89. gr., ásamt nauðsynlegum skýringum ef þess þykir þörf. Ekki er skylt að krefjast þess að leggja þurfi fram fylgiskjöl við gerð rammasamnings skv. 4. mgr. og 1. málsl. 5. mgr. 54. gr.

Þá skal fyrirtæki ekki krafið um fylgiskjöl ef kaupandi, sem gerir samning eða rammasamning, er þegar með þessi skjöl undir höndum. Þegar kaupandi hefur beinan gjaldfrjálsan aðgang að landsbundnum gagnagrunni þar sem unnt er að nálgast fylgiskjöl, vottorð eða önnur skrifleg gögn um hæfi bjóðanda skal kaupandi jafnframt ekki krefjast þess að fyrirtæki leggi fram gögn eða uppfærslur á þeim.

85. gr. Hæfismatskerfi.

Kaupanda er heimilt að koma á fót og starfrækja kerfi til að meta hæfi bjóðenda. Kaupandi sem kemur á fót eða starfrækir hæfismatskerfi skal gæta þess að bjóðandi geti ávallt óskað eftir hæfismati.

Hæfismatskerfi getur falið í sér mismunandi stig hæfismats. Kaupandi skal setja hlutlægar reglur og viðmiðanir hvað varðar útilokun og val á bjóðanda, sem óska eftir hæfismati, og hlutlægar reglur og viðmiðanir varðandi starfrækslu hæfismatskerfisins, sem taka á atriðum á borð við skráningu í kerfið, reglubundna uppfærslu upplýsinga um hæfi, ef þörf krefur, og gildistíma kerfisins. Ef þessar viðmiðanir og reglur fela í sér tæknilýsingar gilda 61.-63. gr. Uppfæra má þessar viðmiðanir og reglur eftir þörfum.

Bjóðandi skal fá aðgang að þeim viðmiðunum og reglum, sem um getur í 2. mgr., ef óskað er eftir því. Tilkynna skal bjóðanda, sem málið varðar, um þessar uppfærðu viðmiðanir og reglur. Ef kaupandi telur að hæfismatskerfi tiltekinna annarra aðila eða stofnana uppfylli kröfur hans skal hann veita bjóðanda, sem málið varðar, upplýsingar um nöfn þeirra.

Halda skal skriflega skrá yfir hæfa bjóðendur. Skránni má skipta í flokka eftir því hvers konar hæfi hver tegund samnings útheimtir.

Ef tilkynnt er um útboð með tilkynningu um að hæfismatskerfi sé fyrir hendi skulu sérstakir vöru-, verk- eða þjónustusamningar, sem falla undir þetta kerfi, gerðir í lokuðu útboði eða með samningskaupum þar sem allir þátttakendur eru valdir úr hópi hæfra bjóðenda í samræmi við það kerfi.

Gjöld, sem eru innheimt í tengslum við beiðnir um hæfismat eða uppfærslu á eða viðhald upplýsinga um hæfi sem þegar eru fyrir hendi, samkvæmt kerfinu, skulu vera í réttu hlutfalli við þann kostnað sem stofnað er til.

86. gr. Forsendur fyrir hæfismiðuðu vali.

Kaupandi skal miða við hlutlægar reglur og viðmiðanir hvað varðar útilokun og val á bjóðendum eða umsækjendum. Þessar reglur og viðmiðanir skulu vera aðgengilegar viðkomandi bjóðendum.

Þegar kaupandi þarf að tryggja viðeigandi jafnvægi milli tiltekinna eiginleika innkaupaferlisins og þeirra tilfanga sem þarf til að framkvæma það getur hann, í lokuðum útboðum eða samningskaupum, samkeppnisviðræðum eða nýsköpunarsamstarfi, sett hlutlægar reglur eða viðmiðanir sem endurspegla þessa þörf og gera kaupanda kleift að draga úr fjölda þátttakenda sem verður boðið að leggja fram tilboð eða ganga til samninga. Valdir bjóðendur skulu þó vera nógu margir til að tekið sé tillit til krafna um næga samkeppni.

87. gr. Byggt á getu annarra aðila.

Þegar hlutlægar reglur og viðmiðanir, er varða útilokun og val á bjóðanda, sem óska eftir hæfismati innan hæfismatskerfis, í almennu útboði, lokuðu útboði eða við samningskaup, í samkeppnisviðræðum eða nýsköpunarsamstarfi, fela í sér kröfur sem varða efnahagslega og fjárhagslega getu fyrirtækis eða tæknilega og faglega getu þess, getur bjóðandi, ef þörf krefur, byggt á getu annarra aðila, óháð lagalegu eðli tengsla hans við þá aðila. Að því er varðar viðmiðanir sem tengjast menntun og faglegu hæfi þjónustuveitanda eða verktaka eða stjórnunarliðs fyrirtækisins eða viðeigandi starfsreynslu, má bjóðandi hins vegar aðeins reiða sig á getu annarra aðila ef hinir síðarnefndu sjá um að framkvæma verkið eða veita þjónustuna sem þessa getu þarf til. Þegar bjóðandi vill reiða sig á getu annarra aðila, skal hann sanna fyrir kaupanda að hann hafi yfir viðkomandi föngum að ráða allan gildistíma hæfismatskerfisins, t.d. með því að leggja fram skuldbindingu þeirra aðila þess efnis.

Þegar kaupandi hefur vísað til útilokunarviðmiðana eða hæfiskrafna, skal hann sannreyna, í samræmi við 84. og 88. gr., hvort aðrir aðilar, sem bjóðandi hyggst reiða sig á varðandi getu, uppfylla viðeigandi hæfiskröfur eða fyrir liggi ástæður til útilokunar, sem kaupandi hefur vísað til, skv. 79. gr. Kaupandi skal krefjast þess að bjóðandi finni nýjan aðila í stað aðila sem ekki uppfyllir viðeigandi hæfiskröfu eða þegar til staðar eru bindandi útilokunarástæður. Kaupanda er heimilt að krefjast þess að bjóðandi skipti út aðila þótt útilokunarástæður, sem eiga við um hann, séu ekki bindandi.

Þegar fyrirtæki byggir á fjárhagslegri eða efnahagslegri getu annars aðila getur kaupandi krafist þess að fyrirtækið og viðkomandi aðili beri sameiginlega ábyrgð á efndum samnings. Með sömu skilyrðum getur hópur fyrirtækja, sbr. 2. mgr. 78. gr., byggt á getu þátttakenda í hópnum eða annarra aðila.

Þegar um er að ræða verksamninga, þjónustusamninga og ísetningu eða uppsetningu innan ramma vörusamnings getur kaupandi krafist þess að tiltekin og sérlega mikilvæg verkefni séu framkvæmd beint af bjóðanda sjálfum eða, ef tilboðið er lagt fram af hópi fyrirtækja, sbr. 2. mgr. 78. gr., af tilteknum þátttakanda í þeim hópi.

88. gr. Sönnunargögn.

Kaupandi getur krafist þess að lögð séu fram vottorð, yfirlýsingar og önnur gögn til sönnunar á því að ekki séu fyrir hendi ástæður til útilokunar, skv. 79. gr., og að viðeigandi hæfiskröfur séu uppfylltar skv. 80.-83. gr. Kaupandi skal ekki krefjast annarra sönnunargagna en þeirra sem fram koma í þessari grein og í 89. gr. um gæða- og umhverfisstaðla. Að því er varðar 87. gr. geta fyrirtæki notað hvers konar viðeigandi aðferðir til að sanna fyrir kaupanda að þau muni ráða yfir nauðsynlegum úrræðum.

Ef fyrirtæki er krafið um sönnun um þau atriði sem greinir í 79. gr. skal eftirfarandi metið sem fullnægjandi sönnun:

  1. Að því er varðar skilyrði 1. og 2. mgr. 79. gr., framlagning sakavottorðs, vottorðs dómstóls eða, ef þessi vottorð eru ekki tiltæk, sambærilegs vottorðs frá stjórnvaldi eða dómstóli í uppruna- eða heimaríki viðkomandi fyrirtækis sem sýnir að umræddum skilyrðum sé fullnægt.
  2. Að því er varðar 3. og 4. mgr. og b- og c-lið 6. mgr. 79. gr., vottorð gefið út af þar til bæru stjórnvaldi í viðkomandi ríki.

Ef heimaríki fyrirtækis gefur ekki út skjöl eða vottorð sem þessi, eða slík skjöl og vottorð ná ekki yfir öll þau tilvik sem greinir í 1., 3. og 4. mgr. og b- og c-lið 6. mgr. 79. gr., skal þess í stað meta fullgildan eið eða drengskaparheit sem bjóðandi hefur unnið um umrædd atriði fyrir dómara eða yfirvaldi, lögbókanda eða þar til bæru fagfélagi í heimaríki sínu.

Fyrirtæki getur fært sönnur á fjárhagslega stöðu sína, sbr. 82. gr., með einni eða fleiri af þeim aðferðum sem taldar skulu upp í reglugerð sem ráðherra setur. Geti fyrirtæki, af gildri ástæðu, ekki lagt fram þau gögn sem kaupandi krefst getur það sýnt fram á efnahagslega og fjárhagslega stöðu sína með öðrum gögnum sem kaupandi telur fullnægjandi.

Fyrirtæki getur fært sönnur á tæknilega getu sína, sbr. 83. gr., með einni eða fleiri af þeim aðferðum sem taldar skulu upp í reglugerð sem ráðherra setur, eftir því sem nauðsynlegt er eftir eðli, umfangi, mikilvægi eða fyrirhugaðri notkun verks, vöru eða þjónustu.

89. gr. Gæða- og umhverfisstaðlar.

Þegar kaupandi krefst þess að lögð séu fram vottorð frá óháðum aðilum, sem staðfesta að fyrirtæki uppfylli tiltekna gæðastaðla, þ.m.t. varðandi aðgengi fyrir fatlað fólk, skal hann vísa til gæðakerfa sem grundvallast á viðeigandi evrópskum stöðlum sem hafa fengið vottun faggiltra stofnana. Kaupandi skal viðurkenna jafngild vottorð frá stofnunum sem hafa staðfestu í öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða ríkjum stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu. Kaupandi skal einnig taka gild önnur gögn, sem fyrirtæki leggur fram, sem veita sambærilega sönnun fyrir því að fullnægjandi ráðstafanir hafi verið gerðar með tilliti til gæðakrafna.

Þegar kaupandi krefst þess að lögð séu fram vottorð frá óháðum aðilum, til staðfestingar á því að fyrirtæki fullnægi ákveðnum umhverfisstjórnunarstöðlum og kerfum, skal hann vísa til umhverfisstjórnunarkerfis Evrópusambandsins (EMAS) eða til umhverfisstjórnunarkerfa, sem viðurkennd eru í samræmi við ákvæði reglugerðar þar um, eða annarra umhverfisstjórnunarstaðla sem grundvallast á viðeigandi evrópskum eða alþjóðlegum stöðlum faggiltra stofnana. Kaupandi skal viðurkenna jafngild vottorð frá stofnunum sem hafa staðfestu í öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða ríkjum stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu.

Hafi fyrirtæki bersýnilega ekki haft aðgang að vottorðum skv. 1. og 2. mgr. eða neinn möguleika á að afla sér þeirra innan þess frests sem gefinn var, af ástæðum sem ekki verða raktar til fyrirtækisins, skal kaupandi samþykkja önnur jafngild sönnunargögn.

90. gr. Forsendur fyrir vali tilboðs.

Kaupandi skal velja fjárhagslega hagkvæmasta tilboð á grundvelli:

  1. lægsta verðs,
  2. minnsta kostnaðar eða
  3. besta hlutfalls milli verðs og gæða.

Forsendur fyrir vali á tilboði á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. skulu metnar út frá kostnaðarhagkvæmni, t.d. útreikningi á vistferilskostnaði.

Forsendur fyrir vali á tilboði á grundvelli 3. tölul. 1. mgr. skulu tengjast efni samnings og geta t.d. náð yfir:

  1. Gæði, þar á meðal tæknilega kosti, útlit og notagildi, aðgengi, hönnun fyrir alla notendur, félagslega, umhverfislega og nýjungakennda eiginleika og viðskipti og skilyrði þeirra.
  2. Skipulagningu, menntun, hæfi og reynslu starfsfólks sem framkvæma á samninginn, einkum ef hæfni starfsfólks sem framkvæmir samning getur haft veruleg áhrif á framkvæmd hans.
  3. Þjónustu eftir verklok og tæknilega aðstoð, afhendingarskilmála, þ.e. afhendingardag, afhendingarferli og afhendingartíma eða frest til að ljúka verki.

Við val á tilboði á grundvelli 3. tölul. 1. mgr. er kaupanda heimilt að ákvarða fast verð eða fastan kostnað og velja tilboð eingöngu út frá gæðum, umhverfislegum eða félagslegum þáttum.

Forsendur fyrir vali tilboðs skulu tengjast efni samnings ef þær varða verk, vöru eða þjónustu sem láta á í té samkvæmt samningi, að einhverju leyti eða á einhverju stigi vistferils hans, þar á meðal vegna þátta sem varða:

  1. Sérstakt ferli við framleiðslu, afhendingu eða viðskipti með slík verk, vöru eða þjónustu.
  2. Sérstakt ferli á öðru stigi vistferils hans, jafnvel þótt slíkir þættir séu ekki hluti af honum.

Kaupandi skal haga forsendum fyrir vali tilboðs þannig að þær tryggi möguleika á virkri samkeppni. Einnig verður að vera unnt að sannreyna upplýsingar frá bjóðendum til að meta hversu vel tilboðin uppfylla forsendurnar.

Kaupandi skal tilgreina í útboðsgögnum hlutfallslegt vægi hverrar forsendu sem liggur til grundvallar vali á fjárhagslega hagkvæmasta tilboði, nema þegar val á tilboði byggist eingöngu á verði. Þetta vægi má setja fram sem ákveðið bil með hæfilegum hámarksvikmörkum. Ef ómögulegt er að tilgreina tiltekið vægi forsendna vegna hlutlægra ástæðna skal forgangsraða forsendum eftir mikilvægi þeirra.

91. gr. Útreikningur vistferilskostnaðar.

Útreikningur vistferilskostnaðar skal, eftir því sem við á, taka til hluta eða alls eftirfarandi kostnaðar á vistferli vöru, þjónustu eða verks:

  1. Kostnaðar sem kaupandi eða aðrir notendur bera, svo sem:

    1. kostnaðar í tengslum við öflun,
    2. notkunarkostnaðar, t.d. við orkunotkun og notkun annarra auðlinda,
    3. viðhaldskostnaðar,
    4. úrvinnslukostnaðar, t.d. kostnaðar við söfnun og endurvinnslu.
  2. Kostnaðar sem skrifast á umhverfisleg úthrif í tengslum við vöru, þjónustu eða verk meðan á vistferli þeirra stendur, að því tilskildu að hægt sé að ákvarða og sannreyna verðgildi þeirra. Slíkur kostnaður getur falið í sér kostnað við losun gróðurhúsalofttegunda og aðra losun mengandi efna og annan kostnað við það að draga úr loftslagsbreytingum.

Þegar kaupandi metur kostnað sem grundvallast á útreikningi á vistferilskostnaði skal hann taka fram í útboðsgögnum hvaða gögn bjóðendur þurfa að leggja fram og hvaða aðferð kaupandi mun nota til að ákvarða vistferilskostnað á grundvelli þessara gagna. Aðferðin sem notuð er til að meta kostnað sem skrifast á umhverfisleg úthrif skal uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. byggjast á hlutlægt sannprófanlegum viðmiðunum án mismununar; sé hún ekki til endurtekinnar eða stöðugrar notkunar skal hún ekki vera hagstæðari eða óhagstæðari tilteknum fyrirtækjum þannig að óréttmætt sé,
  2. vera aðgengileg öllum hlutaðeigandi aðilum,
  3. fyrirtæki skulu geta lagt fram tilskilin gögn sem talin eru fullnægjandi án þess að það leiði til mismununar.

Hafi tiltekin aðferð við útreikning á vistferilskostnaði verið gerð lögbundin skal beita henni við mat á vistferilskostnaði.

92. gr. Óeðlilega lág tilboð.

Ef tilboð virðist óeðlilega lágt miðað við verk, vöru eða þjónustu skal kaupandi óska eftir því að bjóðandi skýri verð eða kostnað sem fram kemur í tilboði. Skýringarnar geta einkum varðað:

  1. hagkvæmni framleiðsluferlis, þjónustu eða byggingaraðferðar,
  2. tæknilegar lausnir, sem hafa verið valdar, og hvers konar óvenjulega hagstæðar aðstæður bjóðanda við framkvæmd verks, afhendingu vöru eða veitingu þjónustu,
  3. frumleika í tillögum bjóðanda varðandi verk, vöru eða þjónustu,
  4. samræmi við gildandi ákvæði kjarasamninga og löggjafar um umhverfisvernd, félagsleg réttindi og um vinnuvernd og vinnuskilyrði á staðnum þar sem framkvæmd verks, afhending vöru eða veiting þjónustu fer fram,
  5. skyldur bjóðanda vegna undirverktaka, sbr. 97. gr.,
  6. möguleika bjóðanda á því að fá ríkisaðstoð.

Kaupandi skal meta upplýsingarnar sem lagðar eru fram með viðræðum við bjóðanda. Aðeins má hafna tilboði á þessum grunni ef sönnunargögnin sem lögð eru fram skýra ekki með viðunandi hætti hið lága verð eða kostnað sem lagður er til, að teknu tilliti til þeirra atriða sem um getur í 1. mgr.

Komist kaupandi að þeirri niðurstöðu að tilboð sé óeðlilega lágt vegna þess að það er ekki í samræmi við skyldur skv. d-lið 1. mgr. skal hafna tilboði.

Komist kaupandi að þeirri niðurstöðu að tilboð sé óeðlilega lágt vegna þess að bjóðandi hafi hlotið ríkisaðstoð verður boði hans því aðeins hafnað að bjóðanda hafi ekki tekist, innan hæfilegs frests sem ákveðinn var eftir að bjóðanda var gefinn kostur á að tjá sig, að sýna fram á að ríkisstyrkur hafi verið löglega veittur. Ef kaupandi vísar tilboði frá við þessar aðstæður skal hann tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA um þá ákvörðun ef innkaup eru yfir viðmiðunarfjárhæðum 15. gr.

Kaupanda er skylt að rökstyðja ákvörðun um að hafna tilboði á þeim grundvelli að það sé óeðlilega lágt.

93. gr. Tilkynning um samningsgerð.

Þegar innkaup eru yfir viðmiðunarfjárhæðum skal kaupandi tilkynna um gerð samnings eigi síðar en 30 dögum eftir gerð samnings eða rammasamnings með niðurstöðum innkaupaferlis. Einnig skal tilkynna um gerð samnings innan gagnvirks innkaupakerfis en þó skal heimilt að safna tilkynningum saman og senda út innan 30 daga frá lokum hvers ársfjórðungs. Þegar um er að ræða rammasamning, sem er gerður í samræmi við 54. gr., ber kaupanda ekki skylda til að senda tilkynningu um niðurstöður innkaupaferlisins fyrir hvern samning sem er grundvallaður á þeim rammasamningi.

Í tilkynningu um samningsgerð skulu koma fram upplýsingar sem settar eru fram í XII. viðauka og birting fara fram í samræmi við IX. viðauka. Tilkynningar skulu sendar útgáfuskrifstofu Evrópusambandsins sem annast birtingu þeirra, sbr. 70. gr.

Ef samningur hefur verið boðinn út með forauglýsingu og kaupandi ákveðið að gera ekki fleiri samninga á tímabilinu sem forauglýsingin tekur til, skal það koma sérstaklega fram í tilkynningu um samningsgerð.

Heimilt er að halda eftir tilteknum upplýsingum um gerð samnings eða rammasamnings ef birting slíkra upplýsinga kynni að hindra eða torvelda löggæslu. Sama á við ef upplýsingagjöf gengur að öðru leyti gegn almannahagsmunum eða myndi skaða lögmæta viðskiptahagsmuni einstakra fyrirtækja, einkarekinna eða opinberra, eða samkeppni milli þeirra.

Þegar um er að ræða samninga um þjónustu tengda rannsóknum og þróun geta upplýsingarnar um eðli og umfang þjónustunnar verið takmarkaðar við:

  1. tilgreininguna "þjónusta tengd rannsóknum og þróun" þar sem samningar hafa verið gerðir með samningskaupum án útboðsauglýsingar í samræmi við b-lið 1. mgr. 53. gr.,
  2. upplýsingar sem eru a.m.k. jafn ítarlegar og þær sem eru tilgreindar í tilkynningunni sem var notuð til að auglýsa útboðið.

Upplýsingar, sem kveðið er á um í samræmi við XII. viðauka, og merktar þannig að þær séu ekki ætlaðar til birtingar, skulu einungis birtar í einfölduðu formi og í samræmi við IX. viðauka sem tölfræðiupplýsingar.

94. gr. Tilkynning um val á tilboði og rökstuðningur um höfnun tilboðs.

Kaupandi skal tilkynna þátttakendum eða bjóðendum um ákvarðanir um val tilboðs, gerð rammasamnings eða aðgang að gagnvirku innkaupakerfi eins fljótt og mögulegt er. Í tilkynningu skulu koma fram, eftir því sem við á, upplýsingar vegna ákvarðana um að gera ekki rammasamning, taka engu tilboði þrátt fyrir útboð eða hefja að nýju útboð eða stofna til gagnvirks innkaupakerfis. Þessar upplýsingar skal kaupandi veita skriflega ef þess er óskað.

Tilkynningu skv. 1. mgr. skal senda öllum fyrirtækjum sem ekki hefur verið hafnað eða vísað frá innkaupaferli með endanlegri ákvörðun. Ákvörðun um útilokun telst ekki endanleg fyrr en hún hefur verið tilkynnt bjóðanda og frestir til að bera hana undir kærunefnd útboðsmála eru runnir út eða hún hefur verið staðfest af nefndinni.

Eftir beiðni skal kaupandi, eins fljótt og mögulegt er, veita rökstuðning fyrir ákvörðun sinni sem hér segir:

  1. Upplýsa ber þátttakanda, sem ekki hefur verið valinn til að gera tilboð, um ástæður þess að umsókn hans var hafnað.
  2. Upplýsa ber bjóðanda um ástæður þess að tilboði hans var hafnað. Ef tilboði hefur verið hafnað með vísan til þess að tilboð var í ósamræmi við tæknilýsingar, sbr. 6. og 7. mgr. 61. gr., skal rökstyðja hvers vegna tilboð telst ekki fullnægja kröfum tæknilýsinga eða hvers vegna það er ófullnægjandi með tilliti til krafna um virkni og hagnýtingu.
  3. Upplýsa skal bjóðanda, sem lagt hefur fram gilt tilboð, um eiginleika og kosti þess tilboðs sem kaupandi valdi og nafn bjóðanda sem var valinn eða rammasamningshafa.
  4. Upplýsa skal bjóðanda, sem lagt hefur fram gilt tilboð, um framkvæmd og framvindu samningsviðræðna og viðræðna við bjóðendur.

Beiðni um rökstuðning skv. 3. mgr. skal bera fram innan 14 daga frá því að bjóðanda var tilkynnt ákvörðun og skal rökstuðningur liggja fyrir eigi síðar en 15 dögum eftir að beiðni um það barst kaupanda eða umsjónarmanni útboðs. Í rökstuðningi skal þó ekki upplýsa um atriði varðandi val tilboðs, gerð rammasamnings eða aðgengi að gagnvirku innkaupakerfi ef upplýsingagjöf gæti torveldað löggæslu. Sama á við ef upplýsingagjöf gengur að öðru leyti gegn almannahagsmunum eða mundi skaða lögmæta viðskiptahagsmuni einstakra fyrirtækja, einkarekinna eða opinberra, eða samkeppni milli þeirra.

Kaupandi, sem kemur á fót og starfrækir hæfismatskerfi, skal upplýsa þátttakendur um ákvörðun sína varðandi hæfismatið innan sex mánaða. Ef ákvörðun tekur lengri tíma en fjóra mánuði frá framlagningu umsóknar skal kaupandi greina þátttakanda, innan tveggja mánaða frá því að umsókn er lögð fram, frá ástæðunum fyrir því að fresturinn er framlengdur og fyrir hvaða dag umsókn hans verður samþykkt eða henni hafnað.

Þátttakendur, sem kaupandi hafnar á grundvelli hæfis, skulu upplýstir um ástæður fyrir ákvörðuninni svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en 15 dögum eftir dagsetningu tilkynningar um höfnun. Ástæður fyrir höfnun skulu byggjast á hæfisviðmiðunum sem um getur í 2. mgr. 85. gr.

Kaupandi, sem kemur á fót og starfrækir hæfismatskerfi, getur einungis afturkallað hæfismat fyrirtækis á grundvelli viðmiðana um hæfismat sem um getur í 2. mgr. 88. gr. Tilkynna skal fyrirtæki skriflega um öll áform um að afturkalla hæfismat a.m.k. 15 dögum fyrir þann dag sem afturköllun hæfismatsins tekur gildi, ásamt ástæðunni eða ástæðunum fyrir þeirri aðgerð.

95. gr. Biðtími samningsgerðar og samþykkt tilboðs.

Óheimilt er að gera samning í kjölfar ákvörðunar um val tilboðs fyrr en að liðnum tíu daga biðtíma, vegna innkaupa yfir viðmiðunarfjárhæðum, frá deginum eftir að tilkynning skv. 1. mgr. 94. gr. telst birt. Biðtíma telst þó ætíð lokið þegar liðnir eru 15 dagar frá deginum eftir sendingu tilkynningar að telja. Um birtingu rafrænna tilkynninga skal taka mið af fyrirmælum stjórnsýslulaga um rafræna málsmeðferð eftir því sem við á.

Biðtími skv. 1. mgr. gildir ekki í eftirfarandi tilvikum:

  1. Við gerð samnings sem heimilt er að gera án undangenginnar útboðsauglýsingar.
  2. Við gerð samnings þar sem endanlega liggur fyrir að aðeins einn bjóðandi eða þátttakandi er fyrir hendi.
  3. Við gerð samnings á grundvelli rammasamnings eða gagnvirks innkaupakerfis.

Tilboð skal samþykkja endanlega með skriflegum hætti innan gildistíma þess og er þá kominn á bindandi samningur á grundvelli útboðsgagna og tilboðs bjóðanda.

Þegar kaupanda er ekki unnt að taka afstöðu til tilboða innan gildistíma tilboðs er heimilt að óska eftir því að bjóðendur framlengi tilboð sín í stuttan tíma. Skilyrði er að fyrir liggi samþykki allra þátttakenda eða málefnalegar ástæður réttlæti framlengingu. Með sama skilyrði er heimilt að óska eftir því, eftir að gildistími tilboðs hefur runnið út, að bjóðendur lýsi því yfir að tilboð þeirra séu að nýju gild, þó aðeins í mjög stuttan tíma. Þegar samningur hefur verið lýstur óvirkur samkvæmt ákvæðum XII. kafla laga um opinber innkaup er heimilt að samþykkja það tilboð sem hefði með réttu átt að velja án tillits til gildistíma tilboðs.

Heimilt er að gera sérstakan samning um kaup á vöru, þjónustu eða verki á grundvelli útboðsins eftir að tilboð hefur verið samþykkt, en ekki skal þá breyta grundvallarþáttum tilboðs þannig að samkeppni sé raskað eða um mismunun verði að ræða.

Þegar kominn er á samningur skal það tilkynnt öllum bjóðendum án tafar.

IX. KAFLI Framkvæmd samnings.

96. gr. Skilyrði sem tengjast framkvæmd samnings.

Kaupanda er heimilt að kveða á um sérstök skilyrði varðandi framkvæmd samnings ef skilyrðin tengjast efni samnings, sbr. 5. mgr. 90. gr., og hafa verið tilgreind í útboðsauglýsingu eða útboðsskilmálum. Skilyrðin geta einkum verið vegna atriða sem varða efnahagsleg, nýsköpunartengd, umhverfisleg, félagsleg eða atvinnutengd sjónarmið.

97. gr. Undirverktaka.

Skylt er að krefjast þess í útboðsgögnum að bjóðandi upplýsi hvaða hluta samnings hann hyggst láta þriðja aðila framkvæma sem undirverktaka og skulu þær upplýsingar liggja fyrir áður en samningur er undirritaður.

Bjóðandi skal upplýsa verkkaupa um hvaða undirverktaka hann hyggst nota og leita samþykkis verkkaupa áður en undirverktaki hefur störf. Kaupanda er jafnframt heimilt að krefjast þess að bjóðandi leggi fram hæfisyfirlýsingu skv. 84. gr. fyrir undirverktaka. Ef útilokunarástæður eiga við undirverktaka skal kaupandi eftir atvikum krefjast þess að nýr undirverktaki komi í hans stað.

Upplýsingar bjóðanda um undirverktaka hafa ekki áhrif á ábyrgð bjóðanda gagnvart kaupanda. Undirverktaka skal í öllum tilvikum byggjast á skriflegum verksamningi.

98. gr. Breytingar á samningi á gildistíma.

Heimilt er að breyta samningi og rammasamningi án þess að hefja nýtt innkaupaferli í eftirfarandi tilvikum:

  1. Þegar skilmálar um breytingar, án tillits til verðmætis þeirra, hafa komið fram með skýrum hætti í endurskoðunarákvæðum samnings, þ.m.t. í ákvæðum um verðbreytingar og valmöguleika. Slíkir skilmálar skulu kveða á um umfang og eðli mögulegra breytinga eða valmöguleika og skilyrða fyrir þeim.
  2. Þegar um er að ræða viðbótarverk, -þjónustu eða vörur, án tillits til verðmætis þeirra, sem hafa orðið nauðsynleg og voru ekki hluti af upphaflegum innkaupum enda myndi breyting á fyrirtæki valda kaupanda verulegu óhagræði eða talsverði tvítekningu vegna tæknilegra eða fjárhagslegra ástæðna.
  3. Þegar þörf fyrir breytingar kemur til vegna ófyrirsjáanlegra atvika sem kaupandi gat ekki séð fyrir.
  4. Þegar annað fyrirtæki kemur í stað þess sem kaupandi gerði upphaflegan samning við vegna beitingar endurskoðunarákvæðis, sbr. a-lið, endurskipulagningar á fyrirtæki þar sem annað fyrirtæki, sem uppfyllir forsendur hæfismiðaðs vals, gengur inn í stöðu upphaflegs samningsaðila í heild eða að hluta að því tilskildu að slíkt hafi ekki í för með sér aðrar verulegar breytingar á samningi eða vegna þess að kaupandi tekur sjálfur við skyldum aðalverktaka gagnvart undirverktaka.
  5. Þegar breytingar, óháð verðmæti þeirra, eru ekki verulegar, sbr. 4. mgr.
  6. Þegar verðmæti breytinga er minna en nemur viðmiðunarfjárhæðum skv. 15. gr. og þegar verðmæti breytinga er minna en 10% af upphaflegu verðmæti þjónustu- og vörusamnings og 15% af upphaflegu verðmæti verksamnings. Þegar breytingar eru gerðar í röð, hver á eftir annarri, skal meta verðmæti þeirra á grundvelli uppsafnaðs verðmætis breytinganna.

Ekki er heimilt að kveða á um breytingar skv. a-, c- og f-lið 1. mgr. sem fela í sér breytingar á eðli samnings eða rammasamnings í heild. Að því er varðar útreikning verðmætis sem um getur í f-lið 1. mgr. skal miða við uppfært verð þegar samningurinn hefur að geyma ákvæði um verðbætur.

Ef kaupandi ákveður að breyta samningi í samræmi við þau skilyrði sem koma fram í b- og c-lið 1. mgr. skal birta tilkynningu þess efnis að breyting hafi verið gerð á samningi. Í tilkynningu skulu koma fram upplýsingar sem settar eru fram í XVI. viðauka og skulu birtar í samræmi við 93. gr.

Breyting á samningi eða rammasamningi á gildistíma skal talin veruleg í skilningi e-liðar 1. mgr. þegar efni samnings verður annað en upphaflega var samið um. Breyting skal ávallt teljast veruleg ef eitt af eftirtöldum skilyrðum er til staðar:

  1. Breyting hefði gert fleiri bjóðendum kleift að taka þátt í upphaflegu innkaupaferli hefði hún verið til staðar í upphafi.
  2. Breyting verður á fjárhagslegu jafnvægi samnings eða rammasamnings í þágu fyrirtækis sem ekki var gert ráð fyrir í upphaflegum samningi eða rammasamningi.
  3. Breyting víkkar verulega út gildissvið samnings eða rammasamnings.
  4. Ef annað fyrirtæki kemur í stað þess sem kaupandi gerði upphaflegan samning við í öðrum tilvikum en þeim sem kveðið er á um í d-lið 1. mgr.

Hefja skal nýtt innkaupaferli ef gera á aðrar breytingar á samningi eða rammasamningi á gildistíma hans en kveðið er á um í 1. mgr.

99. gr. Uppsögn samnings.

Kaupanda er heimilt að segja samningi upp einhliða meðan á gildistíma hans stendur við eftirfarandi aðstæður:

  1. Ef veruleg breyting hefur verið gerð á samningi sem hefði átt að leiða til þess að hefja skyldi nýtt innkaupaferli, sbr. 98. gr.
  2. Ef fyrirtæki, sem upphaflega var valið, hefði átt að vera útilokað frá innkaupaferli sbr. 1. og 2. mgr. 79. gr.
  3. Ef ekki hefði átt að gera samning við fyrirtæki í ljósi alvarlegs brots á reglugerðinni.

X. KAFLI Sérreglur um félagsþjónustu og aðra sértæka þjónustu.

100. gr. Gerð samninga um félagsþjónustu og aðra sértæka þjónustu.

Samningar um félagsþjónustu og aðra sértæka þjónustu, sem talin er upp í XVII. viðauka, skulu gerðir í samræmi við þennan kafla ef verðmæti samninganna er yfir viðmiðunarfjárhæðum skv. c-lið 1. mgr. 15. gr.

Kaupanda er heimilt að nota hvaða innkaupaaðferð sem lýst er í reglugerð þessari en ber að ákveða hana fyrirfram og auglýsa í samræmi við reglur skv. 101. gr.

Ákvæði XI. og XII. kafla laga um opinber innkaup gilda um innkaup skv. 1. mgr. Að öðru leyti en fram kemur í þessum kafla tekur reglugerð þessi ekki til slíkra innkaupa nema annað sé tekið fram.

101. gr. Birting tilkynninga.

Kaupandi sem hyggst gera samning um þjónustu, skv. 100. gr. skal láta vita um fyrirætlun sína með þeim hætti sem hér segir:

  1. með sérstakri útboðstilkynningu,
  2. með sérstakri forauglýsingu sem skal birt endurtekið. Í forauglýsingunni skal vísað sérstaklega til þeirrar tegundar þjónustu sem gera á samninga um. Þar skal koma fram að samningarnir verði gerðir án frekari birtingar og áhugasömum aðilum boðið að láta áhuga sinn í ljós skriflega,
  3. eða með tilkynningu um að hæfismatskerfi sé fyrir hendi sem skal birt endurtekið.

Þrátt fyrir 1. mgr. er kaupanda heimilt að ganga til samningskaupa án undangenginnar auglýsingar í samræmi við 53. gr.

Kaupandi skal upplýsa um niðurstöðu innkaupaferlis með tilkynningu um gerð samnings. Heimilt er að safna tilkynningum saman og senda þær ársfjórðungslega. Senda skal slíkar tilkynningar innan 30 daga frá lokum hvers ársfjórðungs.

Í tilkynningum skv. 1. og 3. mgr. skulu koma fram upplýsingar sem settar eru fram í XVIII. viðauka eftir því sem við á, í samræmi við stöðluð eyðublöð tilkynninga, sbr. reglugerð um staðlað eyðublað fyrir samevrópska hæfisyfirlýsingu og stöðluð eyðublöð fyrir birtingu tilkynninga við opinber innkaup yfir EES-viðmiðunarfjárhæðum. Tilkynningar skulu jafnframt sendar útgáfuskrifstofu Evrópusambandsins sem annast birtingu þeirra, sbr. 70. gr.

102. gr. Meginreglur um val tilboða.

Við val á tilboði skal kaupandi gæta að meginreglum um innkaup skv. 40. gr. Kaupanda er ávallt heimilt að taka tillit til sérstakra eiginleika þjónustunnar og leggja þá eiginleika til grundvallar við val tilboða. Í þeim tilgangi getur hann við samningsgerðina tekið m.a. tillit til nauðsynlegra gæða þjónustu, hagkvæmni, nýsköpunar, sérþarfa mismunandi flokka notenda þjónustunnar og aðkomu og valdeflingar notenda. Einnig er kaupanda frjálst að velja þjónustuveitanda á grundvelli þess tilboðs sem felur í sér besta hlutfall milli verðs og gæða að teknu tilliti til gæða- og sjálfbærniviðmiða fyrir félagsþjónustu.

XI. KAFLI Starfsemi innkaupastofnunar, skýrslur og Eftirlitsstofnun EFTA.

103. gr. Starfsemi innkaupastofnunar.

Ríkiskaup er miðlæg innkaupastofnun á vegum ríkisins sem heyrir undir ráðherra, sbr. X. kafli laga um opinber innkaup nr. 120/2016.

Kaupendum sem falla undir gildissvið reglugerðar þessarar, sbr. 3. og 4. gr., er heimilt að nota þjónustu Ríkiskaupa.

Opinberum fyrirtækjum á vegum ríkisins er þar að auki heimilt að taka þátt í tilteknum sameiginlegum innkaupum eða vera aðilar að rammasamningum á vegum Ríkiskaupa, enda verði þeim ekki jafnað við einkaaðila í samkeppnisrekstri.

104. gr. Stakar skýrslur vegna innkaupa yfir viðmiðunarfjárhæðum.

Fyrir hvern samning eða rammasamning og í hvert sinn sem gagnvirku innkaupakerfi er komið á fót, sem er yfir viðmiðunarfjárhæðum skv. 15. gr., skal kaupandi varðveita viðeigandi upplýsingar sem færa rök fyrir ákvörðunum sem teknar voru í innkaupaferli, einkum er varða eftirfarandi:

  1. Hæfismat, val á bjóðanda og gerð samnings.
  2. Notkun samningskaupa án undangenginnar útboðsauglýsingar, sbr. 53. gr.
  3. Að beita ekki 44. gr., 45. gr., 54.-57. gr. og 59.-99. gr. með skírskotun í undanþágur sem kveðið er á um í II. og III. kafla.
  4. Ef nauðsyn krefur, ástæður fyrir því að notaðar hafa verið aðrar samskiptaaðferðir en rafrænar við framlagningu tilboða.

Að svo miklu leyti sem tilkynning um gerð samnings skv. 93. gr. eða 3. mgr. 101. gr., inniheldur upplýsingarnar sem krafist er samkvæmt þessari málsgrein, er kaupanda heimilt að vísa til þeirrar tilkynningar.

Kaupandi skal skrá framvindu allra innkaupaferla, hvort sem þau eru rafræn eða ekki. Í því skyni skal hann sjá til þess að geymd séu fullnægjandi gögn til að rökstyðja ákvarðanir sem teknar eru á öllum stigum innkaupaferlisins, svo sem gögn um samskipti við fyrirtæki og innri umfjöllun, samningu útboðsgagna, viðræður eða samningsviðræður, ef einhverjar eru, val og gerð samnings. Gögnin skulu geymd í a.m.k. þrjú ár frá dagsetningu ákvörðunar um samningsgerð.

Upplýsingarnar, eða helstu þættir þeirra, skulu sendar ráðuneytinu eða eftir atvikum Eftirlitsstofnun EFTA, sé farið fram á það.

105. gr. Skýrslur um opinber innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum.

Ráðuneytið skal útbúa skýrslu í samræmi við 99. og 101. gr. tilskipunarinnar og senda hana Eftirlitsstofnun EFTA. Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um hvaða aðilar skulu senda ráðuneytinu stakar skýrslur um innkaup og hvaða upplýsingar skuli koma fram í skýrslunum.

106. gr. Rannsókn Eftirlitsstofnunar EFTA vegna innkaupa yfir viðmiðunarfjárhæðum.

Eftirlitsstofnun EFTA er heimilt að grípa til þeirrar málsmeðferðar sem kveðið er á um í 2.-4. mgr. ef stofnunin telur, áður en samningur yfir viðmiðunarfjárhæðum 15. gr. hefur verið gerður, að við framkvæmd innkaupaferlis sem fellur undir tilskipunina eins og hún hefur verið tekin upp í EES-samninginn hafi verið framið alvarlegt brot gegn reglum EES-samningsins um opinber innkaup. Ráðherra skal vera í fyrirsvari fyrir íslenska ríkið við þessa málsmeðferð. Í þágu þessarar málsmeðferðar er ráðherra heimilt að stöðva um stundarsakir útboð eða annað innkaupaferli eftir að tilkynning Eftirlitsstofnunar EFTA hefur borist.

Eftirlitsstofnun EFTA tilkynnir íslenska ríkinu um ástæður fyrir því að stofnunin telur að alvarlegt brot hafi verið framið og fer fram á að það verði leiðrétt með viðeigandi hætti. Eigi síðar en 21 degi eftir að tilkynningin berst skal ráðuneytið senda eftirlitsstofnuninni staðfestingu á því að bætt hafi verið úr brotinu, rökstudda greinargerð um ástæður þess að engar úrbætur hafi verið gerðar eða tilkynningu um að innkaupaferli og gerð samnings hafi verið stöðvuð um stundarsakir, hvort heldur er fyrir atbeina ráðherra eða kærunefndar útboðsmála.

Greinargerð um ástæður þess að engar úrbætur hafi verið gerðar getur grundvallast á því að brot sé þegar til umfjöllunar hjá kærunefnd útboðsmála eða dómstólum eða þá að úrlausn kærunefndar hafi verið borin undir dómstóla. Við þessar aðstæður skal ráðuneytið tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA um niðurstöðu slíks máls um leið og hún verður kunn.

Þegar tilkynnt hefur verið um stöðvun innkaupaferlis um stundarsakir, sbr. 2. mgr., skal ráðuneytið tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA um það þegar stöðvun er aflétt eða innkaupaferli vegna sömu innkaupa, að hluta eða í heild, er hafið á ný. Í þessari tilkynningu skal greint frá því að úrbætur hafi verið gerðar eða færðar fram ástæður fyrir því hvers vegna það hefur ekki verið gert.

107. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari er innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/25/EB frá 26. febrúar 2014 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu, eins og hún var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 97/2016 frá 29. apríl 2016.

Viðaukar tilskipunarinnar eru birtir sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

108. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 9. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og öðlast þegar gildi.

Samhliða gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð nr. 755/2007 um innkaup stofnana sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og fjarskipti.

Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast ákvæði 1. og 2. mgr. 47. gr. gildi 18. október 2018.

Þrátt fyrir 1. mgr. skal auglýsingakylda á sameiginlegum útboðsvef skv. 1. mgr. 69. gr. taka gildi 15. júní 2017.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.