Utanríkisráðuneyti

283/2015

Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Túnis.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1.

Ákvörðun ráðsins 2011/72/SSUÖ frá 31. janúar 2011 um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstaklingum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Túnis, fylgiskjal 1.

 

1.1

Ákvörðun ráðsins 2012/724/SSUÖ frá 26. nóvember 2012 um breytingu á ákvörðun 2011/72/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum og rekstrareiningum í ljósi ástandsins í Túnis, fylgiskjal 2.

 

1.2

Ákvörðun ráðsins 2014/49/SSUÖ frá 30. janúar 2014 um breytingu á ákvörðun 2011/72/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Túnis, fylgiskjal 3.

 

1.3

Ákvörðun ráðsins 2015/157/SSUÖ frá 30. janúar 2015 um breytingu á ákvörðun 2011/72/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum og rekstraraðilum með tilliti til ástandsins í Túnis, fylgiskjal 4.

2.

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 101/2011 frá 4. febrúar 2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, sjá reglugerð um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum aðilum í Túnis nr. 543/2011.

 

2.1

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1100/2012 frá 26. nóvember 2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, fylgiskjal 5.

 

2.2

Framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 81/2014 frá 30. janúar 2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, fylgiskjal 6.

 

2.3

Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/147 frá 30. janúar 2015 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, fylgiskjal 7.



Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

3. gr.

Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

 

a)

ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins ("EB", "ESB", "Bandalagsins" eða "sameiginlega markaðarins") eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,

 

b)

ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,

 

c)

tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,

 

d)

tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,

 

e)

tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,

 

f)

vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/ thvingunaradgerdir.



4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 2. mars 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica