Samgönguráðuneyti

494/1991

Reglugerð um breytingu á reglugerð um vörubifreiðar og sendibifreiðar, sem notaðar eru til leituaksturs og takmarkanir á fjölda þeirra nr.121/1990, ásamt síðari breytingum. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um vörubifreiðar og sendibifreiðar,

sem notaðar eru til leiguaksturs og takmarkanir á fjölda þeirra,

nr.121/1990, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

27. tölul. 7. gr. orðist svo:

Á félagssvæði Vörubílstjórafélags Suðurnesja, sem er Keflavík, Njarðvík, Sandgerði, Vatnsleysustrandar-, Gerða- og Hafnahreppur. Hámarkstala er 25 vörubifreiðar.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um leigubifreiðar, nr. 77/1989, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur brott reglugerð nr. 442/1991 um breytingu á reglugerð um vörubifreiðar og sendibifreiðar, sem notaðar eru til leiguaksturs og takmarkanir á fjölda þeirra, nr. 121/1990.

Samgönguráðuneytið, 11. október 1991.

Halldór Blöndal.

Elín Helgadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica