Samgönguráðuneyti

372/1992

Reglugerð um breytingu á reglugerð um vörubifreiðar og sendibifreiðar, sem notaðar eru til leiguaksturs og takmarkanir á fjölda þeirra, nr.121/1990, ásamt síðari breytingum. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um vörubifreiðar og sendibifreiðar,

sem notaðar eru til leiguaksturs og takmarkanir á fjölda þeirra,

nr.121/1990, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

20. tl. 7. gr. orðist svo:

Á félagssvæði Vörubílstjórafélagsins Vémundar, sem er Búða-, Fáskrúðsfjarðar-, Breið­dals- og Stöðvarhreppur, allir í Suður-Múlasýslu. Hámarkstala er 12 vörubifreiðar.

 

2. gr.

21. tl. 7. gr. orðist svo:

Á félagssvæði Vörubílstjórafélagsins Ökuþórs, sem er Djúpavogshreppur í Suður-­Múlasýslu. Hámarkstala er 6 vörubifreiðar.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um leigubifreiðar, nr. 77/1989, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

 

Samgönguráðuneytið, 15. október 1992.

 

Halldór Blöndal.

Ólafur S. Valdimarsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica