Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

562/2004

Reglugerð um breyting á reglugerð um stjórnsýsluumdæmi sýslumanna, nr. 57 5. febrúar 1992. - Brottfallin

1. gr.

Í stað orðsins "Bessastaðahreppur" í 25. tölulið 1. gr., sbr. reglugerð nr. 102 23. janúar 2001, komi: Sveitarfélagið Álftanes.


2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 11. gr. laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, nr. 92 1. júní 1989, öðlast þegar gildi.


Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 23. júní 2004.

Björn Bjarnason.
Þorsteinn Geirsson.

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica