1. gr. orðist svo:
Landinu er skipt í 26 stjórnsýsluumdæmi. Eiga sveitarfélög undir hvert þeirra, sem hér segir:
| 1. | Umdæmi sýslumannsins, lögreglustjórans og tollstjórans í Reykjavík: |
| Reykjavíkurborg, Seltjarnarneskaupstaður, Mosfellsbær og Kjósarhreppur. | |
| 2. | Umdæmi sýslumannsins á Akranesi: |
| Akraneskaupstaður. | |
| 3. | Umdæmi sýslumannsins í Borgarnesi: |
| Hvalfjarðarstrandarhreppur, Skilmannahreppur, Innri-Akraneshreppur, Leirár- og Melahreppur, Skorradalshreppur, Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppur og Borgarbyggð. | |
| 4. | Umdæmi sýslumannsins í Stykkishólmi: |
| Kolbeinsstaðahreppur, Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsbær, Eyrarsveit, Helgafellssveit og Stykkishólmsbær. | |
| 5. | Umdæmi sýslumannsins í Búðardal: |
| Dalabyggð og Saurbæjarhreppur. | |
| 6. | Umdæmi sýslumannsins á Patreksfirði: |
| Reykhólahreppur, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur. | |
| 7. | Umdæmi sýslumannsins í Bolungarvík: |
| Bolungarvíkurkaupstaður. | |
| 8. | Umdæmi sýslumannsins á Ísafirði: |
| Ísafjarðarbær og Súðavíkurhreppur. | |
| 9. | Umdæmi sýslumannsins á Hólmavík: |
| Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Hólmavíkurhreppur, Kirkjubólshreppur, Broddaneshreppur og Bæjarhreppur. | |
| 10. | Umdæmi sýslumannsins á Blönduósi: |
| Húnaþing vestra, Áshreppur, Sveinsstaðahreppur, Torfalækjarhreppur, Blönduóssbær, Svínavatnshreppur, Bólstaðarhlíðarhreppur, Engihlíðarhreppur, Vindhælishreppur, Höfðahreppur og Skagahreppur. | |
| 11. | Umdæmi sýslumannsins á Sauðárkróki: |
| Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur. | |
| 12. | Umdæmi sýslumannsins á Siglufirði: |
| Siglufjarðarkaupstaður. | |
| 13. | Umdæmi sýslumannsins á Ólafsfirði: |
| Ólafsfjarðarkaupstaður. | |
| 14. | Umdæmi sýslumannsins á Akureyri: |
| Grímseyjarhreppur, Dalvíkurbyggð, Hríseyjarhreppur, Arnarneshreppur, Hörgárbyggð, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. | |
| 15. | Umdæmi sýslumannsins á Húsavík: |
| Hálshreppur, Ljósavatnshreppur, Bárðdælahreppur, Skútustaðahreppur, Reykdælahreppur, Aðaldælahreppur, Reykjahreppur, Húsavíkurkaupstaður, Tjörneshreppur, Kelduneshreppur, Öxarfjarðarhreppur, Raufarhafnarhreppur, Svalbarðshreppur og Þórshafnarhreppur. | |
| 16. | Umdæmi sýslumannsins á Seyðisfirði: |
| Skeggjastaðahreppur, Vopnafjarðarhreppur, Norður-Hérað, Fljótsdalshreppur, Fellahreppur, Austur-Hérað, Borgarfjarðarhreppur og Seyðisfjarðarkaupstaður. | |
| 17. | Umdæmi sýslumannsins á Eskifirði: |
| Mjóafjarðarhreppur, Fjarðabyggð, Fáskrúðsfjarðarhreppur, Búðahreppur, Stöðvarhreppur, Breiðdalshreppur og Djúpavogshreppur. | |
| 18. | Umdæmi sýslumannsins á Höfn: |
| Sveitarfélagið Hornafjörður. | |
| 19. | Umdæmi sýslumannsins í Vík: |
| Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur. | |
| 20. | Umdæmi sýslumannsins á Hvolsvelli: |
| Austur-Eyjafjallahreppur, Vestur-Eyjafjallahreppur, Austur-Landeyjahreppur, Vestur-Landeyjahreppur, Fljótshlíðarhreppur, Hvolhreppur, Rangárvallahreppur, Holta- og Landsveit, Ásahreppur og Djúpárhreppur. | |
| 21. | Umdæmi sýslumannsins í Vestmannaeyjum: |
| Vestmannaeyjabær. | |
| 22. | Umdæmi sýslumannsins á Selfossi: |
| Gaulverjabæjarhreppur, Sveitarfélagið Árborg, Hraungerðishreppur, Villingaholtshreppur, Skeiðahreppur, Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Biskupstungnahreppur, Laugardalshreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Þingvallahreppur, Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus. | |
| 23. | Umdæmi sýslumannsins í Keflavík: |
| Grindavíkurkaupstaður, Sandgerðisbær, Gerðahreppur, Reykjanesbær og Vatnsleysustrandarhreppur, þó ekki svæði sem falla undir lið 24. | |
| 24. | Umdæmi sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli: |
| Svæði á Suðurnesjum sem eru varnarsvæði og varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna frá 5. maí 1951 tekur til og sýnd eru á uppdrætti er fylgir reglugerð þessari. | |
| 25. | Umdæmi sýslumannsins í Hafnarfirði: |
| Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær og Bessastaðahreppur. | |
| 26. | Umdæmi sýslumannsins í Kópavogi: |
| Kópavogsbær. |
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt ákvæðum í 1. mgr. 2. gr. laga um framkvæmdarvald ríkisins í héraði nr. 92 1. júní 1989, öðlast þegar gildi.