Dómsmálaráðuneyti

597/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár nr. 1170/2012 með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "Víkingalottó kr. 100" kemur: Víkingalottó kr. 90.
  2. Í stað orðanna "EuroJackpot 300 kr." kemur: EuroJackpot 280 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um talnagetraunir nr. 26/1986. A-liður 1. gr. reglugerðarinnar öðlast gildi 10. ágúst 2017 og b-liður 12. ágúst 2017.

Dómsmálaráðuneytinu, 19. júní 2017.

F. h. r.

Haukur Guðmundsson.

Bryndís Helgadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica