Innanríkisráðuneyti

1170/2012

Reglugerð fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár.

Breytingareglugerðir:

I. KAFLI

Leyfishafi.

1. gr.

Leyfishafi.

Íslensk getspá er félag í eigu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), Ungmenna­félags Íslands (UMFÍ) og Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), sem stofnað er til að starf­rækja talnagetraunir og/eða bókstafagetraunir í þeim tilgangi að afla fjár til eflingar íþróttum á vegum áhugamanna um íþróttir í landinu í félögum innan ÍSÍ og UMFÍ og til að greiða stofnkostnað við íbúðarhúsnæði fyrir öryrkja á vegum ÖBÍ eða til að standa undir annarri starfsemi þess í þágu öryrkja.

Heimili félagsins, aðalskrifstofa og varnarþing er í Reykjavík.

II. KAFLI

Tegundir.

2. gr.

Tegundir talnagetrauna.

Félagið starfrækir talnagetraunir (lottó) undir heitunum Lottó 5/40, Jóker, Víkingalottó (Lottó 6/48) og EuroJackpot (5/50 + 2/8).

Víkingalottó er starfrækt í samvinnu við eftirgreind talnagetraunafyrirtæki: AB Svenska Spel, Svíþjóð, Norsk Tipping A/S, Noregi, OY Veikkaus ab, Finnlandi, Danske Spil AS, Danmörku, AS Eesti Loto, Eistlandi, OlifejaLotto, Litháen og Latvia Loto, Lettlandi.

EuroJackpot er starfrækt í samvinnu við eftirgreind fyrirtæki: AB Svenska Spel, Svíþjóð, Norsk Tipping A/S, Noregi, OY Veikkaus ab, Finnlandi, Danske Spil AS, Danmörku, AS Eesti Loto, Eistlandi, OlifejaLotto, Litháen, Latvia Loto, Lettlandi, Bremer Toto und Lotto GmbH, Deutsche Klassenlotterie Berlin, Land Brandenburg Lotto GmbH, Lotterie Treuhandgesellschaft mbH Hessen, Lotterie-Treuhandgesellschaft mbH Thüringen, Lotto Hamburg GmbH, Lotto Rheinland-Pfalz GmbH, Lotto-Toto GmbH Sachsen-Anhalt, NordwestLotto Schleswig-Holstein GmbH & Co.KG, Saarland-Sporttoto GmbH, Sächsische Lotto-GmbH, Staatliche Lotterieverwaltung in Bayern, StaatlicheToto-Lotto GmbH Baden-Württemberg, Toto-Lotto Niedersachsen GmbH, Verwaltungsgesellschaft Lotto und Toto in Mecklenburg-Vorpommern mbH, Westdeutsche Lotterie GmbH & Co.OHG, Þýskalandi, De Lotto, Hollandi, Loterija Slovenije, Sloveníu, Sisal, Ítalíu og Once, Spáni.

III. KAFLI

Leikspjöld, útfylling þeirra og greiðsla.

3. gr.

Leikspjöld.

Íslensk getspá gefur út og dreifir leikspjöldum til þátttöku í talnagetraununum. Leikspjöld má einnig nálgast með rafrænum hætti í gegnum tölvu, síma eða gagnvirkt sjónvarp.

Á hverju leikspjaldi Lottó 5/40 eru 10 leikir (raðir), sem merktir eru bókstöfunum A, B, C, D, E, F, G, H, I og J, og er hver leikur með tölunum 1-40. Getur hver þátttakandi tekið þátt í einum til tíu leikjum á hverju leikspjaldi. Á leikspjöldum fyrir Lottó 5/40 er sérstakur reitur sem þátttakendur merkja í ef þeir vilja taka þátt í Jóker. Þátttakendur geta valið 5 tölur úr tölunum 0-9 til að mynda Jókertölur sínar.

Á hverju leikspjaldi Víkingalottós eru 10 leikir (raðir), sem merktir eru bókstöfunum A, B, C, D, E, F, G, H, I og J, og er hver leikur með tölunum 1-48. Getur hver þátttakandi tekið þátt í einum til tíu leikjum á hverju leikspjaldi. Á leikspjöldum fyrir Víkingalottó er sérstakur reitur sem þátttakendur merkja í ef þeir vilja taka þátt í Jóker. Þátttakendur geta valið 5 tölur úr tölunum 0-9 til að mynda Jókertölur sínar.

Á hverju leikspjaldi EuroJackpot eru 5 leikir (raðir), sem merktir eru bókstöfunum A, B, C, D og E, og er hver leikur með tölunum 1-50 auk stjörnutalna 1-8. Getur hver þátttakandi tekið þátt í einum til fimm leikjum á hverju leikspjaldi. Á leikspjöldum fyrir EuroJackpot er sérstakur reitur sem þátttakendur merkja í ef þeir vilja taka þátt í Jóker. Þátttakendur geta valið 5 tölur úr tölunum 0-9 til að mynda Jókertölur sínar.

Á sölustöðum skulu vera leiðbeiningar um þátttöku í viðkomandi talnagetraun. Þar skal og vera hvatning til þátttakenda að rita nafn sitt á þátttökukvittun í öryggisskyni.

4. gr.

Útfylling.

Leikirnir felast í því að þátttakandi strikar lóðrétt með blýanti eða dökkum penna (ekki rauðum lit) í reiti fimm mismunandi talna í Lottó 5/40 og EuroJackpot en í reiti sex mismunandi talna í Víkingalottó, sem hann velur af þeim tölum sem tilgreindar eru í hverri röð. Í EuroJackpot strikar þátttakandi lóðrétt með blýanti eða dökkum penna í reiti fimm mismunandi talna 5/50 og auk þess velur þátttakandi tvær stjörnutölur á bilinu 1 til 8. Ef þátttaka fer fram með rafrænum hætti, í gegnum tölvu, síma eða gagnvirkt sjónvarp, velur þátttakandi tölur á tilheyrandi skjá. Geri þátttakandi villu skal hann ógilda þá röð með því að strika lóðrétt yfir, eða velja með því að ýta (smella) á ef um rafrænt leikspjald er að ræða, þar til gerðan ógildingarreit viðkomandi raðar, og gildir þá ekki sú röð. Þátttakandi í Jóker ritar, eða velur með því að ýta (smella) á ef um rafrænt leikspjald er að ræða, þær fimm tölur sem hann velur úr tölunum 0-9 í þar til gerða reiti á leikspjaldinu.

Að loknu vali á tölum samkvæmt 1. mgr. er leikspjaldið afhent söluaðila sem rennir því í sölukassa sem tengdur er tölvukerfi Íslenskrar getspár og skráir sjálfvirkt valdar Lottótölur. Jókertölur sem valdar eru á leikspjaldinu skráir söluaðili þó inn í tölvukerfið. Þátttakandi getur einnig tilkynnt þátttöku sína með því að skýra söluaðila munnlega frá vali sínu á tölum og þá sér söluaðili um skráningu þeirra talna í tölvukerfi Íslenskrar getspár. Þá getur þátttakandi óskað eftir að tölur hans verði valdar af handahófi í sölukassa. Þegar um rafræna þátttöku er að ræða staðfestir þátttakandi val sitt með því að ýta (smella) á "staðfesta" eða sambærilegan lykil og fara upplýsingarnar þá með rafrænum hætti til Íslenskrar getspár.

Söluaðili skal síðan afhenda þátttakanda þátttökukvittun ásamt viðkomandi leikspjaldi gegn greiðslu. Á kvittun skal koma fram bókstafur þeirrar eða þeirra raða sem þátttaka er bundin við og þær tölur, er þátttakandi hefur valið í hverri röð, svo og Jókertölur ef þær eru valdar. Þá skal koma fram heildartala þeirrar fjárhæðar, sem greidd hefur verið, dagsetning útdráttar eða gildistími, ef tekið er þátt í fleiri en einni leikviku, og öryggis­númer, sem auðkennir viðkomandi afgreiðslu.

Þátttakandi skal ganga úr skugga um að samræmi sé milli kvittunar og merkja á leik­spjaldi, eða að hún sé í samræmi við munnleg fyrirmæli hans, hafi hann gefið tölur sínar upp munnlega. Þá ber þátttakanda að ganga úr skugga um að þátttökukvittun greini útdráttar­dag(a) eða gildistíma sem þátttaka er bundin við.

5. gr.

Verð, greiðsla og þátttökukvittun.

Verð fyrir hvern leik (röð) í Lottó 5/40 er kr. 130, Jóker kr. 200, í Víkingalottó kr. 70 og í EuroJackpot 320 kr. Aðeins er unnt að gerast þátttakandi hjá söluaðilum Íslenskrar getspár eða með rafrænum hætti, sbr. 1. mgr. 3. gr.

Þegar greiðsla er innt af hendi með rafrænum hætti leitar móðurtölva Íslenskrar getspár heimildar hjá viðkomandi kortafyrirtæki eða banka og fær staðfestingu á að viðkomandi greiðslukort/bankareikningur sé í gildi og heimild sé fyrir úttekt. Þegar greiðsla hefur verið staðfest getur þátttakandi prentað út eigin kvittun eða óskað eftir því að fá hana senda í pósti eða tölvupósti. Upplýsingar um greiðslu eru færðar á kvittunina.

Stjórn Íslenskrar getspár er heimilt að ákveða að þátttakanda, sem keypt hefur þátttöku­kvittun sem á eru 10 raðir eða fleiri, sé látin í té án greiðslu, sem kaupauki, þátttöku­kvittun sem á er 1-ein-röð.

Þátttakandi getur gert skriflegan samning um kaup á leikjum Íslenskrar getspár með því að gerast áskrifandi og greiða með greiðslukorti. Gildir sá samningur þar til honum er sagt upp eða ef samningur viðkomandi við greiðslukortafyrirtækið fellur úr gildi. Áskriftarsamningi fylgir kaupauki, þannig að þátttakandi greiðir einungis fyrir fjóra útdrætti mánaðarlega, þó svo að útdrættir séu fimm í einstökum mánuðum.

Leikspjald fyrir Lottó 5/40, Jóker, Víkingalottó og EuroJackpot gildir aldrei sem kvittun, en þátttakandi getur notað það aftur eða látið það gilda í 2, 5 eða 10 leikvikur, að eigin vali, ef hann óskar eftir óbreyttu talnavali, með því að strika lóðrétt yfir viðkomandi reit á leikspjaldi um fjölda vikna.

Þátttaka í talnagetraunum fer fram í samræmi við það er þátttökukvittun greinir. Telji þátttakandi að þátttökukvittun sé ekki í samræmi við leikspjald eða þær munnlegu upplýsingar er hann gaf skal hann bera fram kvörtun sína þegar í stað. Að öðrum kosti verður litið svo á að hann hafi með móttöku þátttökukvittunar samþykkt þátttöku í samræmi við þær tölur er kvittunin greinir. Þátttakandi ber einn ábyrgð á þátttökukvittun sinni og á enga kröfu til vinnings nema gegn framvísun hennar. Íslensk getspá ber ekki ábyrgð á villu í prentun kvittunar og ábyrgð félagsins á rangri kvittun er takmörkuð við ógildingarverðmæti hennar samkvæmt 7. mgr. Félagið ber ekki ábyrgð á stolnum eða glötuðum kvittunum.

Þátttökukvittun má ógilda með því að skila henni aftur til söluaðila, enda sé það gert samdægurs og sala fór fram og það tímanlega að unnt sé að ljúka ógildingu á innfærslu hennar í tölvukerfi Íslenskrar getspár, áður en útdráttur fer fram. Sé þátttökukvittun ógilt á greiðandi rétt á endurgreiðslu á sömu fjárhæð og hann greiddi. Þeir sem taka þátt með rafrænum hætti geta einnig óskað eftir því að fá endurgreiðslu og leggst þá fjárhæðin á sama reikning og notaður var til þess að greiða fyrir þátttöku í leiknum.

Þátttökukvittun er því aðeins gild að notað sé þar til gert eyðublað sem gefið er út af Íslenskri getspá og að hún hafi verið gefin út af söluaðila viðurkenndum af stjórn félagsins með áritun úr sölukassa tengdum tölvukerfi þess. Þátttökukvittun má ekki vera árituð á framhlið, brotin eða skemmd með einhverjum hætti, þannig að hætta sé á að hún verði ekki læsileg fyrir tölvukerfi félagsins eða fullnægi ekki kröfum þess á annan hátt. Þegar þannig er ástatt getur félagið hafnað þátttökukvittuninni. Þegar um rafræna þátttöku er að ræða eru kvittanir geymdar miðlægt í móðurtölvu Íslenskrar getspár. Þátttakendur sem taka þátt með rafrænum hætti geta prentað út eigin kvittun eða óskað eftir því að fá hana senda í pósti eða tölvupósti. Ef mismunur er á þátttökukvittun í móðurtölvu og prentaðri kvittun þá gildir sú í móðurtölvunni.

6. gr.

Kerfisleikspjöld.

Heimilt er að gera sérstök leikspjöld fyrir þá sem óska þess að nota kerfi við talna­getraunir. Í Lottó 5/40 skulu leikspjöld þessi vera fyrir 6, 7, 8, 9 eða 10 talna­möguleika og samsvara tölur þessar 6, 21, 56, 126 eða 252 mismunandi fimm stafa tölu­röðum (leikjum) þeirra talna sem valdar eru. Kerfisleikspjald skal þátttakandi fylla út á þann veg að hann strikar lóðrétt í reiti þeirra talna er hann velur úr tölunum 1-40 og stað­festir fjölda þeirra (6, 7, 8, 9 eða 10) með því að merkja aftan við viðkomandi tölur á leik­spjaldinu.

Í Víkingalottó skulu leikspjöld þessi vera fyrir 7, 8, 9 eða 10 talnamöguleika og samsvara tölur þessar 7, 28, 84 eða 210 mismunandi 6 stafa talnaröðum þeirra talna sem valdar eru. Kerfisleikspjald skal þátttakandi fylla út á þann veg að hann strikar lóðrétt í reiti þeirra talna er hann velur úr tölunum 1-48 og staðfestir fjölda þeirra (7, 8, 9 eða 10) með því að merkja aftan við viðkomandi tölur á leikspjaldinu.

Í EuroJackpot skulu leikspjöld þessi vera fyrir 6, 7, 8, 9 eða 10 talnamöguleika og sam­svara tölur þessar 6, 21, 56, 126 eða 252 mismunandi fimm stafa töluröðum (leikjum) þeirra talna sem valdar eru. Kerfisleikspjald skal þátttakandi fylla út á þann veg að hann strikar lóðrétt í reiti þeirra talna er hann velur úr tölunum 1-50 auk 2 stjörnu­talna frá 1-8 og staðfestir fjölda þeirra (6, 7, 8, 9 eða 10) með því að merkja aftan við viðkomandi tölur á leikspjaldinu.

Í framangreindum kerfum ákvarðast verð af fjölda raða og verði fyrir hvern leik (röð) sbr. 1. mgr. 5. gr.

7. gr.

Útdráttur.

Útdrættir í talnagetraununum Lotto 5/40, Víkingalottó og EuroJackpot fara að jafnaði fram einu sinni í viku samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar Íslenskrar getspár en í Jóker samtímis útdrætti í Lottó 5/40, Víkingalottó og EuroJackpot.

Útdráttur vinninga í Lottó 5/40 fer fram opinberlega á laugardegi eða samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar Íslenskrar getspár að viðstöddum fulltrúa hennar og skipuðum eftirlitsmanni samkvæmt 1. mgr. 16. gr. Útdráttur vinninga fer þannig fram að í þar til gerðri útdráttarvél eru valdar fimm vinningstölur, aðaltölur, af tölunum 1-40. Því næst er valin bónustala af þeim tölum sem þá eru eftir. Verði bilun í þar til gerðri vél, sem velur vinningstölur og síðan bónustölu, skal dregið úr þar til gerðum spjaldastokki með 40 spjöldum með tölunum 1-40, fyrst fimm vinningstölur og síðan bónustölu, af þeim tölum sem þá eru eftir. Áður en slíkur útdráttur fer fram skal gengið úr skugga um að í spjaldastokknum séu spjöldin merkt tölunum frá 1-40.

Niðurstöður útdráttar og aðrar upplýsingar um framkvæmd hans skal færa í sérstaka gerðabók og undirrita af fulltrúa stjórnarinnar og eftirlitsmanninum.

Samtímis útdrætti í Lottó 5/40 fer fram útdráttur í Jóker tengdum þeirri talnagetraun, með Jóker útdráttarvél sem varðveitt er í innsigluðum kassa, með eftirfarandi hætti. Útdráttur fer þannig fram að fimm hjól, hvert með tölunum 0-9, eru sett í gang og við stöðvun hjólanna koma fram hinar fimm útdregnu tölur. Tölurnar, í þeirri röð sem þær birtast, mynda Jókertölurnar. Verði bilun í einu eða fleirum af hinum fimm hjólum með tölunum 0-9 skal dregið úr einum eða allt að fimm, eftir því sem við á, þar til gerðum spjaldastokkum þar sem spjöldin eru merkt tölunum 0-9. Áður en slíkur útdráttur fer fram skal gengið úr skugga um að í spjaldastokkunum séu spjöldin merkt tölunum 0-9.

Útdráttur í Víkingalottó fer fram á hverjum miðvikudegi í heimalandi einhvers sam­starfs­aðila, undir eftirliti þarlendra yfirvalda, samkvæmt reglum sem samþykktar eru af opin­berum eftirlitsaðilum samstarfsaðilanna, hér á landi af innanríkisráðuneytinu. Þegar dráttur fer fram hér á landi fer um eftirlitið í samræmi við 2. mgr. Í útdrætti hverrar viku er byrjað á að draga út "Ofurtölu" kvöldsins sem er dregin úr tölunum 48 sem eru notaðar í aðalútdrætti kvöldsins. Talan er síðan sett aftur í pottinn.

Aðalútdrátturinn fer síðan fram með þeim hætti að valdar eru sex aðaltölur af tölunum 1-48 og því næst eru valdar tvær bónustölur af þeim tölum sem þá eru eftir.

Útdráttur í Jóker sem tengdur er Víkingalottó fer fram á miðvikudögum, með Jóker útdráttarvél sem varðveitt er í innsigluðum kassa, með eftirfarandi hætti:

  1. Fimmtán mínútum eftir lokun sölukerfis ræsir starfsmaður Íslenskrar getspár útdrátt í vélinni. Útdrátturinn fer fram með sama hætti og lýst er í 4. mgr. og að við­stöddum eftirlitsmanni skv. 1. mgr. 16. gr.
  2. Útdregnar tölur í Jóker birtast svo á skjánum eftir útdrátt í Víkinga­lottó. Víkingalottó- og Jókertölurnar eru síðan birtar samdægurs í ljósvakamiðlum.

Útdráttur í EuroJackpot fer fram á hverjum föstudegi í heimalandi einhvers samstarfs­aðila, undir eftirliti þarlendra yfirvalda, samkvæmt reglum sem samþykktar eru af opin­berum eftirlitsaðilum samstarfsaðilanna, hér á landi af innanríkisráðuneytinu. Þegar dráttur fer fram hér á landi fer um eftirlitið í samræmi við 2. mgr. Aðalútdrátturinn fer fram með þeim hætti að valdar eru fimm aðaltölur af tölunum 1-50 og því næst eru valdar 2 stjörnutölur úr talnaröð 1-8.

Útdráttur í Jóker sem tengdur er EuroJackpot fer fram á föstudögum, með Jóker útdráttar­vél sem varðveitt er í innsigluðum kassa, með eftirfarandi hætti:

  1. Fimmtán mínútum eftir lokun sölukerfis ræsir starfsmaður Íslenskrar getspár útdrátt í vélinni. Útdrátturinn fer fram með sama hætti og lýst er í 7. mgr. og að viðstöddum eftirlitsmanni skv. 1. mgr. 16. gr.
  2. Útdrátturinn er tekinn upp á myndbandsspólu.

Öll vinnsla í tölvukerfi Íslenskrar getspár hvað varðar Lottó 5/40 og Jóker skal falla niður frá því 15 mínútum áður en útdráttur á að fara fram þar til útdrætti er að fullu lokið. Að því er varðar Víkingalottó skal vinnsla í tölvukerfinu falla niður einni klukkustund áður en útdráttur á að fara fram. Að því er varðar EuroJackpot skal vinnsla í tölvukerfinu falla niður 2 klukkustundum áður en útdráttur á að fara fram þar til útdrætti er að fullu lokið.

Beri útdráttardag upp á hátíðisdag er heimilt að framkvæma útdrátt næsta virkan dag á undan, eða á öðrum degi sem innanríkisráðuneytið samþykkir.

Vinningstölur fyrir Lottó 5/40, Jóker, Víkingalottó og EuroJackpot skulu birtar í fjölmiðlum.

IV. KAFLI

Vinningar.

8. gr.

Almennt um vinninga.

Þeir sem hafa þátttökukvittun með tölum þeim sem valdar hafa verið, annaðhvort allar eða hluta þeirra í sama leik (röð), án tillits til röðunar þeirra sbr. þó 10. gr., fá vinning í samræmi við ákvæði í 9.-12. gr.

Til vinninga í Lottó 5/40 skal verja 45% af heildarsöluverði þátttökukvittana hverrar leik­viku, þar með talið andvirði þátttökukvittana sem látnar eru þátttakendum í té sem kaupauki án endurgjalds.

Til vinninga í Víkingalottó skal verja 40% af heildarsöluverði þátttökukvittana hverrar leik­viku, þar með talið andvirði þátttökukvittana sem látnar eru þátttakendum í té sem kaupauki án endurgjalds.

Til vinninga í EuroJackpot skal verja 50% af heildarsöluverði þátttökukvittana hverrar leik­viku, þar með talið andvirði þátttökukvittana sem látnar eru þátttakendum í té sem kaupauki án endurgjalds.

Vinningar í Lottó 5/40, Víkingalottó og EuroJackpot skulu færðir niður í næsta heilan tug króna. Mismunur sem myndast með því skal yfirfærður til 1. vinnings einu sinni til tvisvar á ári eftir nánari ákvörðun stjórnar.

Stjórn Íslenskrar getspár er heimilt að leggja viðbótarfé frá fyrirtækinu til vinninga í Lottó 5/40 og Víkingalottó í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar og við sérstök tækifæri þar sem lagt er fram fé frá fyrirtækinu til vinninga. Stjórnin skal leita samþykkis innanríkis­ráðuneytisins fyrir slíkum framlögum og fyrirkomulagi útdráttar.

9. gr.

Lottó 5/40.

Vinningar í Lottó 5/40 skiptast þannig:

  1. 57% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa allar 5 aðaltölur réttar. Heimilt er, ef 57% af heildarvinningsfjárhæð nær ekki 5 milljónum króna, að bæta við fyrsta vinningsflokk fjárhæð sem þarf til að vinningsfjárhæðin fari yfir 5 milljónir króna. Viðbót þessi skal hlaupa á 50.000 krónum;
  2. 2,5% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 4 aðaltölur réttar og auk þess rétta bónustölu. Heimilt er, ef 2,5% af heildarvinningsfjárhæð nær ekki 300.000 krónum, að bæta við þennan vinningsflokk fjárhæð sem þarf til að vinnings­fjárhæðin fari yfir 300.000 krónur. Viðbót þessi skal hlaupa á 10.000 krónum;
  3. 14,5% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 4 aðaltölur réttar;
  4. 17,7% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 3 aðaltölur réttar;
  5. 8,5% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 2 aðaltölur réttar og auk þess rétta bónustölu.

Komi í ljós við útdrátt í Lottó 5/40 að:

  1. enginn þátttakandi hafi allar 5 aðaltölur réttar skal vinningsfjárhæð þess flokks, án viðbótar samkvæmt a-lið 1. mgr., yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá allar fimm aðaltölur réttar í þeirri leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með allar aðaltölur réttar í þeirri viku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv.;
  2. enginn þátttakandi hafi 4 aðaltölur réttar auk bónustölu skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá 4 aðaltölur réttar auk bónustölu í þeirri leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með 4 aðaltölur réttar auk bónustölu í þeirri leikviku flyst vinningsupphæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv.;
  3. enginn þátttakandi hafi fengið 4 aðaltölur réttar yfirfærist vinningur þess flokks til þeirra er fá vinning fyrir þrjár aðaltölur réttar.

10. gr.

Jóker.

Vinningar ráðast af því hve margar útdregnar tölur þátttakandi fær miðað við rétta röð útdreginna talna þannig að:

  1. fyrir 5 tölur réttar greiðast kr. 2.000.000;
  2. fyrir 4 fyrstu eða 4 síðustu tölur réttar greiðast kr. 100.000;
  3. fyrir 3 fyrstu eða 3 síðustu tölur réttar greiðast kr. 10.000;
  4. fyrir 2 fyrstu eða 2 síðustu tölur réttar greiðast kr. 2.000.

11. gr.

Víkingalottó.

  1. Fyrsti vinningur er sameiginlegur hjá þátttökuaðilum, sbr. 2. gr. Greiðir hvert talnagetraunafyrirtæki 0,040 evrur af andvirði hvers selds leiks til þessa vinnings. Verðmæti hans í íslenskum krónum ákvarðast af kaupgengi evru á útdráttardegi og skiptist jafnt á milli þeirra sem hafa allar 6 tölurnar réttar.
  2. Vinningur fyrir "Ofurtöluna" er einnig sameiginlegur hjá þátttökuaðilum. Greiðir hvert talnagetraunafyrirtæki 0,034 evrur af andvirði hvers selds leiks til þessa vinnings. Verðmæti hans í íslenskum krónum ákvarðast af kaupgengi evru á útdráttardegi og skiptist jafnt á milli þeirra sem hafa allar 6 tölurnar réttar auk "Ofurtölunnar". Til þess að hljóta vinning fyrir "Ofurtöluna" þarf að hafa allar 6 tölurnar réttar auk "Ofurtölunnar", sem þarf að vera ein af aðaltölum kvöldsins.
  3. Til annarra vinninga renna 40% af heildarsölu hverrar leikviku hér á landi, að frádreginni greiðslu Íslenskrar getspár til fyrsta vinnings, sbr. 1. lið, og skiptast í vinningsflokka í eftirgreindum hlutföllum:
    1. 54% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 5 aðaltölur réttar og auk þess rétta eina af tveim bónustölum;
    2. 9% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 5 aðaltölur réttar;
    3. 21% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 4 aðaltölur réttar;
    4. 16% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 3 aðaltölur réttar og auk þess rétta eina af tveimur bónustölum.

    Komi í ljós við útdrátt í Víkingalottó að:

    1. enginn þátttakandi hafi allar 6 aðaltölur réttar skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá allar sex aðaltölur réttar í þeirri leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með allar aðaltölur réttar í þeirri leikviku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv.;
    2. enginn þátttakandi hafi allar 6 aðaltölur réttar né "Ofurtöluna" flyst upp­hæðin fyrir "Ofurtöluna" yfir á næstu viku. Hafi vinningshafi hins vegar allar sex aðaltölurnar réttar en ekki "Ofurtöluna" þá hlýtur hann fyrsta vinning sem skiptist jafnt á milli þeirra sem hafa allar aðaltölurnar réttar en vinningur fyrir "Ofurtöluna" flyst áfram til næstu viku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með allar aðaltölur réttar í þeirri leikviku flyst vinnings­upphæðin áfram þar til næstu viku o.s.frv.;
    3. enginn þátttakandi hafi 5 aðaltölur réttar auk bónustölu skal vinnings­fjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá 5 aðaltölur réttar auk bónustölu í þeirri leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með 5 aðaltölur réttar auk bónustölu í þeirri leikviku flyst vinnings­fjárhæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv.;
    4. enginn þátttakandi hafi 5 aðaltölur réttar skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá 5 aðaltölur réttar í þeirri leikviku. Verði enginn þátttakandi með 5 aðaltölur réttar í þeirri leikviku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv.;
    5. enginn þátttakandi hafi 4 aðaltölur réttar yfirfærist vinningur þess flokks til þeirra er fá vinning fyrir 3 aðaltölur réttar auk bónustölu.

    12. gr.

    EuroJackpot.

    Til vinninga fara a.m.k. 50% af verði hverrar raðar. Í EuroJackpot eru 12 vinn­ings­flokkar:

    1. 22% vinningsupphæðar skiptast jafnt milli þeirra raða sem innihalda fimm réttar aðaltölur og tvær réttar stjörnutölur.
    2. 5% vinningsupphæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda fimm réttar aðaltölur og eina rétta stjörnutölu.
    3. 1,30% vinningsupphæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda fimm réttar aðaltölur.
    4. 1,20% vinningsupphæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda fjórar réttar aðaltölur og tvær réttar stjörnutölur.
    5. 0,95% vinningsupphæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda fjórar réttar aðaltölur og eina rétta stjörnutölu.
    6. 0,60% vinningsupphæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda fjórar réttar aðaltölur.
    7. 0,85% vinningsupphæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda þrjár réttar aðaltölur og tvær réttar stjörnutölur.
    8. 4,10% vinningsupphæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda þrjár réttar aðaltölur og eina rétta stjörnutölu.
    9. 3,45% vinningsupphæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda tvær réttar aðaltölur og tvær réttar stjörnutölur.
    10. 3,60% vinningsupphæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda þrjár réttar aðaltölur.
    11. 12% vinningsupphæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda eina rétta aðaltölu og tvær réttar stjörnutölur.
    12. 22,95% vinningsupphæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda tvær réttar aðaltölur og eina rétta stjörnutölu.

    Þau 22% af vinningsupphæðinni, sem þá standa eftir, renna í jöfnunarsjóð sem hefur það hlutverk að tryggja að 1. vinningur sé aldrei undir 10 milljónum evra.

    Þátttakendur hljóta eingöngu vinning í samræmi við hæsta fjölda talna í hverri röð, þ.e. sá sem hlýtur vinning samkvæmt 1. lið hlýtur ekki vinning samkvæmt öðrum liðum o.s.frv.

    Komi í ljós við útdrátt í EuroJackpot að:

    1. enginn þátttakandi hafi allar fimm aðaltölur og tvær stjörnutölur réttar skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá allar fimm aðaltölur og tvær stjörnutölur réttar í þeirri leikviku. Verði þá heldur ekki neinn þátttakandi með allar aðaltölur og tvær stjörnu­tölur réttar í þeirri leikviku flyst vinningsfjárhæðin áfram til næstu viku o.s.frv.;
    2. útborgun vinninga í 1. vinningsflokki fer yfir 90 milljón evra hámarkið verður þeirri fjárhæð, sem er yfir markinu, bætt við sama útdrátt fyrir 2. vinningsflokk. Hámark vinningsfjárhæða í 2. vinningsflokki er einnig 90 milljónir evra. Ef útborgun vinninga í 2. vinningsflokki fer yfir 90 milljón evra hámarkið verður þeirri fjárhæð sem umfram er, bætt við vinnings­fjárhæð næsta vinningsflokks fyrir neðan þar sem einn eða fleiri vinnings­hafar eru.

    Fyrir hvern útdrátt verður tryggð útborgun úr 1. vinningsflokki að lágmarki 10 milljónir evra. Ef einn eða fleiri vinningar í 1. vinningsflokki og regluleg útborgun þess vinningsflokks (22% af heildarútborgun) er lægri en tryggða útborgunin, verður útborgun þess vinningsflokks að fjárhæð 10 milljónir evra. Ef það er enginn vinningshafi verður útborgun 1. vinningsflokks í næsta útdrætti aukin um sem samsvarar tryggðu útborguninni (lágmark 10 milljónir evra).

    13. gr.

    Vinningslíkur.

    Tölfræðilegar vinningslíkur í talnagetraununum eru sem hér segir:

    1.

    Lottó 5/40:

     

     

    Fimm réttar aðaltölur

    1:658.008

     

    Fjórar réttar aðaltölur og bónustala

    1:131.602

     

    Fjórar réttar aðaltölur

    1:3.760

     

    Þrjár réttar aðaltölur

    1:111

     

    Tvær réttar aðaltölur og bónustala

    1:117

         

    2.

    Jóker:

     

     

    Fimm réttar tölur

    1:100.000

     

    Fjórar réttar tölur

    1:5.556

     

    Þrjár réttar tölur

    1:556

     

    Tvær réttar tölur

    1:56

     

    Heildarupphæð vinninga er 46% að meðaltali.

     

         

    3.

    Víkingalottó:

     

     

    Sex réttar aðaltölur

    1:12.271.512

     

    Fimm réttar aðaltölur og bónustala

    1:1.022.626

     

    Fimm réttar aðaltölur

    1:52.442

     

    Fjórar réttar aðaltölur

    1:950

     

    Þrjár réttar aðaltölur og bónustala

    1:393

     

    4.

    EuroJackpot

     
     

    Fimm réttar aðaltölur og tvær stjörnutölur

    1:59.325.280

     

    Fimm réttar aðaltölur og ein stjörnutala

    1:4.943.773

     

    Fimm réttar aðaltölur

    1:3.955.019

     

    Fjórar réttar aðaltölur og tvær stjörnutölur

    1:263.668

     

    Fjórar réttar aðaltölur og ein stjörnutala

    1:21.972

     

    Fjórar réttar aðaltölur

    1:17.578

     

    Þrjár réttar aðaltölur og tvær stjörnutölur

    1:5.992

     

    Þrjár réttar aðaltölur og ein stjörnutala

    1:499

     

    Tvær réttar aðaltölur og tvær stjörnutölur

    1:418

     

    Þrjár réttar aðaltölur

    1:399

     

    Ein rétt aðaltala og tvær stjörnutölur

    1:80

     

    Tvær réttar aðaltölur og ein stjörnutala

    1:35

    14. gr.

    Greiðsla vinninga.

    Þátttökukvittunum ber að framvísa til söluaðila. Þar til nafnritun á sér stað aftan á þátttökukvittun er litið á handhafa hennar sem eiganda. Þegar nafnritun hefur átt sér stað skal litið á þann er ritað hefur nafn sitt sem réttan eiganda og rétthafa til vinnings. Hafi fleiri en einn skráð nafn sitt sem eigandi á bakhlið þátttökukvittunar þurfa þeir að kvitta fyrir vinningi eða gefa umboð til móttöku hans.

    Vinningar sem eru lægri en kr. 25.000 skulu greiddir út hjá söluaðila frá fyrsta virkum degi eftir útdrátt.

    Aðalskrifstofa Íslenskrar getspár sér um að greiða út vinninga sem nema kr. 25.000 eða meira innan tveggja vikna frá því að þátttökukvittun er framvísað til söluaðila eða aðalskrifstofu. Heimilt er að draga greiðslu vinninga, sem nema kr. 50.000 eða meira, til þess tíma að kærufrestur samkvæmt 1. mgr. 15. gr. er liðinn eða kærur hafa verið úrskurðaðar, hafi kæra borist. Þegar um vinning að fjárhæð kr. 25.000 eða hærri er að ræða skal vinningshafi framvísa þátttökukvittun sinni ásamt útfylltu útborgunareyðublaði, sem söluaðili lætur honum í té, til einhvers söluaðila eða aðalskrifstofu. Skal hann fá í hendur kvittað eintak útborgunar­eyðublaðsins til staðfestingar á afhendingu greiðslu vinningsins um leið og gengið hefur verið úr skugga um að leikreglum hafi verið fylgt. Vextir reiknast ekki á vinninga.

    Vinnings skal vitjað innan eins árs frá útdráttardegi ella fellur niður réttur vinningshafa til hans.

    V. KAFLI

    Kærur og eftirlit.

    15. gr.

    Kærur.

    Rísi ágreiningur varðandi framkvæmd þessara talnagetrauna skal viðkomandi þátttakandi senda skriflega kæru sem skal hafa borist aðalskrifstofu Íslenskrar getspár fyrir kl. 16.00 á tuttugasta og fyrsta degi frá og með útdráttardegi að telja. Úrskurðaraðili skipaður af innanríkisráðuneytinu samkvæmt 2. mgr. 16. gr. úrskurðar um kæruna innan 15 daga frá því að kærufrestur rann út.

    16. gr.

    Eftirlit.

    Innanríkisráðuneytið skipar eftirlitsmenn til þriggja ára í senn til að annast eftirlit með allri framkvæmd talnagetrauna Íslenskrar getspár.

    Til að úrskurða kærur samkvæmt 15. gr. skipar innanríkisráðuneytið til þriggja ára í senn mann sem fullnægir skilyrðum til að vera dómari og einnig varamann sem fullnægir sömu skilyrðum.

    Eftirlit með tölvukerfi Íslenskrar getspár skal vera í höndum endurskoðunar­skrifstofu sem ráðuneytið samþykkir.

    Kostnaður við almennt eftirlit með getraunastarfseminni, eftirlit með útdrætti vinn­inga og meðferð kæra greiðist af Íslenskri getspá samkvæmt úrskurði innanríkis­ráðuneytisins.

    VI. KAFLI

    Gildistaka.

    17. gr.

    Gildistaka.

    Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum um talnagetraunir nr. 26 2. maí 1986, öðlast gildi 26. janúar 2013. Þó skal hækkun er varðar verð fyrir hvern leik (röð) í Lottó 5/40 öðlast gildi 6. janúar 2013 og hækkun skv. 2. ml. b-liðar 1. mgr. 11. gr. öðlast gildi 24. janúar 2013. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um talnagetraunir nr. 892/1999 ásamt síðari breytingum.

    Innanríkisráðuneytinu, 17. desember 2012.

    Ögmundur Jónasson.

    Ragnhildur Hjaltadóttir.

Reglugerðir sem falla brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica