|
|
560/2000
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð nr. 294/1997, um endurgreiðslu á virðisaukaskatti
til aðila búsettra erlendis, með síðari breytingum.
1. gr. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Endurgreiðsluaðili skal fyrir 20. hvers mánaðar skila skattstjóranum í því umdæmi er endurgreiðsluaðili hefur lögheimili, uppgjörsskýrslu á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður, vegna endurgreiðslna á tímabilinu frá 1. til 15. þess mánaðar. Jafnframt skal hann fyrir 5. dag næsta mánaðar senda skattstjóranum uppgjörsskýrslu vegna endurgreiðslna á tímabilinu frá 16. til loka mánaðar. Fallist skattstjóri á uppgjörsskýrslu skal endurgreiðsluaðili fá endurgreidda heildarfjárhæð þess virðisaukaskatts sem aðilar búsettir erlendis hafa greitt af keyptri vöru samkvæmt uppgjörsskýrslu.
2. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 43. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. september 2000.
Fjármálaráðuneytinu, 24. júlí 2000.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir. Bergþór Magnússon.
Stofnreglugerð: 294/1997 - Reglugerð um endurgreiðslu á virðisaukaskatti til erlendra ferðamanna.
|