Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

327/2010

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins nr. 1925/2006
um íblöndun vítamína og steinefna og tiltekinna annarra efna í matvæli.

1. gr.
Innleiðing.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1925/2006 um íblöndun vítamína og steinefna og tiltekinna annarra efna í matvæli, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka við EES-samninginn, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 46/2008 frá 26. apríl, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.


2. gr.
Fylgiskjal.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1925/2006 er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.


3. gr.
Tilkynning – vöktun.
Framleiðandi eða dreifingaraðili skal tilkynna um íblöndun bætiefna í matvæli til Matvælastofnunar og afhenda sýnishorn af merkingu vörunnar.


4. gr.
Eftirlit.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.


5. gr.
Brottfall reglugerða.
Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð nr. 526/2006 um íblöndun bætiefna í matvæli, með áorðnum breytingum.


6. gr.
Þvingunarúrræði og viðurlög.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.


7. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin tekur þegar gildi.


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 6. mars 2010.

Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.

B_nr_327_2010_an_fylgiskjals.docx

Breytingar:
1166/2011 - Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 327/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins nr. 1925/2006 um íblöndun vítamína og steinefna og tiltekinna annarra efna í matvæli.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt