Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 67/2026 frá 20. mars 2026, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2224 frá 5. nóvember 2025 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1925/2006 og II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/46/EB að því er varðar mónónatríumsalt af L-5-metýltetrahýdrófólínsýru sem fólínsýrugjafa sem er bætt við matvæli og sem fólatgjafa sem er notaður við framleiðslu á fæðubótarefnum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 111.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, og 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 18. maí 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
Svava Pétursdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 20. maí 2026