Félagsmálaráðuneyti

215/1990

Reglugerð um stólalyftur. - Brottfallin

1. gr.

Skilgreining og gildissvið.

1.1       Stólalyfta er vélbúnaður sem gerður er til að flytja fólk í stólum sem festir eru við stálvír og bornir uppi af honum. Vírinn er samfelldur og gengur um hjól á drifstöð og endastöð. Á milli stöðvanna er vírinn borinn uppí af möstrum.

1.2       Reglugerð þessi gildir um gerð, búnað, rekstur og viðhald á stólalyftum og eftirlit með þeim.

 

2.gr.

Rekstrarleyfi.

2.1       Óheimilt er að reisa eða reka stólalyftu nema að fengnu leyfi Vinnueftirlits ríkisins.

Umsókn skulu fylgja fullnægjandi gögn um hönnun, gerð, búnað, staðsetningu, uppsetningu og tilhögun rekstrar lyftunnar.

2.2       Verði breyting á hönnun eða áætlunum skal það tilkynnt Vinnueftirlitinu.

 

3. gr,

Almenn ákvæði.

3.1       Sá sem hefur með höndum rekstur stólalyftu er ábyrgur fyrir því að búnaður hennar og rekstur sé í samræmi við gildandi lög og reglur. Hann skal hafa tryggingu sem bætir tjón sem hann kann að verða ábyrgur fyrir.

3.2       Sá sem selur eða afhendir stólalyftu skal láta fylgja henni fullnægjandi leiðbeiningar á íslensku. Einnig skal hann láta fylgja henni þau sérverkfæri sem nauðsynleg eru vegna stillingar og viðhalds.

3.3       Merki með nafni framleiðanda, gerð, árgerð og framleiðslunúmeri lyftunnar skal vera á henni.

 

4. gr.

Hönnun og staðsetning.

4.1       Hönnun, smíði og uppsetning stólalyftu skal vera samkvæmt viðurkenndum stöðlum og reglum. Sérstakt tillit skal tekið til vindálags og jarðskjálftahættu.

4.2       Stólalyfta og vélbúnaður hennar skal þannig gerður og uppsettur að í rekstri sé fyllsta öryggi tryggt við allar aðstæður. Farþegar skulu geta farið í lyftuna og úr henni á öruggan hátt.

4.3       Stólalyftu má ekki staðsetja þar sem hætta er á snjóflóðum, eða þar sem hætta getur stafað af giljum, klettum eða mannvirkjum. Um staðsetningu stólalyftu í nágrenni við háspennuvirki skal farið eftir reglum Rafmagnseftirlits ríkisins.

 

5. gr.

Fjarlægðir, girðingar og höggvörn.

5.1       Fjarlægð stóla frá endastöðvum, möstrum, girðingum og öðrum föstum hlutum skal vera það mikil að stólar eða farþegar geti ekki snert þá þegar lyftan er í notkun. Við mat á fjarlægð skal gera ráð fyrir sveiflu stóls.

5.2       Svæði þar sem farið er í stólana og úr þeim og þar sem þeir fara um í minni hæð en 2,2 m skulu vera afgirt.

5.3       Setja skal upp girðingar að því marki sem nauðsynlegt er til að stjórna umferð skíðamanna í stólalyftuna og úr henni.

 

6. gr.

Vírar.

6.1       Gerð og prófun þeirra skal vera í samræmi við viðurkennda staðla og reglur.

6.2       Lyftuvír skal hafa öryggisstuðul minnst 5 og strekkivírar 5,5 miðað við mesta stöðuálag sem þeir geta orðið fyrir.

6.3       Lyftuvír skal settur saman á viðurkenndan hátt. Samsetningu mega þeir emir annast sem hlotið hafa viðurkenningu Vinnueftirlitsins til þess.

 

7. gr.

Hjólasamstæður.

7.1       Á öllum hjólasamstæðum skal vera öryggi sem hindrar að lyftuvírinn geti farið inn fyrir hjólin.

7.2       Á öllum hjólasamstæðum skal vera búnaður til að grípa vírinn, fari hann út af hjólunum. Stólaklemmur skulu geta runnið framhjá gripbúnaðinum.

7.3       Allar hjólasamstæður og stýrihjól við endastöðvar skulu vera með búnaði sem stöðvar lyftuna, fari vírinn út af þeim.

 

8. gr.

Vélbúnaður.

8.1       Stólalyfta skal búin hjálparhreyfli, auk aðalhreyfils. Sé aðalhreyfill rafknúinn skal hjálparhreyfill vera eldsneytisknúinn. Með hreyflunum skal vera unnt að keyra lyftuna í hvora áttina sem er. Með hjálparhreyfli skal vera unnt að draga alla stóla til endastöðvar á innan við 1 klst, en hraði lyftunnar má þó ekki vera meiri en 1 m/s.

8.2       Brunahreyfill skal búinn hljóðdeyfi. Tryggt skal að útblástur hans valdi ekki stjórnend­um eða farþegum heilsutjóni eða óþægindum.

8.3       Vélbúnaður og það sem honum tilheyrir, svo sem hreyflar, hemlar og gírkassar, skal varið aðgangi óviðkomandi. Búnaðurinn skal varinn veðri og vindum og við hann skal vera fullnægjandi lýsing.

8.4       Frágangur vélbúnaðar, stiga og papa skal vera í samræmi við reglur um öryggisbúnað véla,nr.492/1987.

8.5       Við vélbúnað skal vera til staðar handhægur og viðeigandi slökkvibúnaður.

 

9. gr.

Strekkibúnaður.

9.1       Lyftuvír skal haldið hæfilega strekktum með andvægi eða vökvabúnaði.

9.2       Andvægi skal vera í lokuðu rými, eða afgirt þannig að hreyfingar þess geti ekki skapað slysahættu.

9.3       Stýringum andvægis skal þannig komið fyrir að unnt sé að skoða víra, hjól og festingar. Stillibúnaður andvægis skal vera læsanlegur.

9.4       Sé lyftuvírinn strekktur með vökvastrokkum skal sjálfvirkur búnaður tryggja að strekking sé ávallt hæfileg.

 

10.gr.

Möstur.

10.1     Unnt skal vera að komast að vírahjólum í möstrum og endastöðvum á auðveldan og öruggan hátt til viðhalds og viðgerða.

10.2     Á möstrum skulu vera festingar fyrir búnað til að koma lyftuvírnum inn á hjólasamstæð­ur, fari hann út af þeim.

10.3     Á möstrum, endastöðvum og strekkibúnaði skulu vera stigar og pallar. Við vinnu í yfir 4 m hæð skal ávallt nota öryggisbelti af viðurkenndri gerð.

10.4     Liggi skíðabraut það nærri mastri stólalyftu að hætta geti stafað af, skal komið fyrir höggvörn á mastrinu.

 

11.gr.

Öryggisbúnaður.

11.1     Á milli endastöðva skal vera fjarskiptasamband. Sími tengdur almenna símakerfinu skal vera í eða við a.m.k, aðra endastöðina. Færanleg talstöð skal vera til staðar til notkunar við eftirlit, viðhald og björgunaraðgerðir.

11.2     Neyðarstöðvunarrofar skulu vera þar sem farið er í lyftuna og úr henni. Þeir skulu vera greinilega merktir og auðvelt að komast að þeim.

11.3     Við stjórnstöð stólalyftu skal vera búnaður sem gerir stjórnanda kleift að koma upplýsingum til starfsfólks og farþega þegar þörf krefur.

11.4     Við stólalyftu skal vera tiltækur vindhraðamælir.

 

12. gr.

Rafbúnaður.

12.1     Allur rafbúnaður skal vera af viðurkenndri gerð og í samræmi við reglugerðir um raforkuvirki.

12.2     Rafbúnaður fyrir víraöryggi, sbr. gr. 6.3, skal þannig gerður að útleiðsla geti ekki haft það í för með sér að lyftan gangi áfram, eða hægt sé að gangsetja hana, hafi víraöryggi rofið straumrásina.

12.3     Gangsetningarrofar skulu vera þannig staðsettir að engin hætta sé á að lyftan verði gangsett í ógáti. Rofabúnaður skal vera þannig að aðalhreyfill fari ekki í gang sjálfkrafa eftir straumrof.

12.4     Unnt skal vera að gangsetja aðalhreyfil til að ná farþegum úr lyftunni, þó öryggisstraum­rás sé rofin. Ekki er öðrum en rekstrarstjóra eða staðgengli hans heimilt að sjá um þá aðgerð. Hraði lyftunnar má í því tilviki ekki vera meiri en 1 m/s.

12.5     Stöðvunarrofar skulu vera í stjórnstöð, þar sem farið er í lyftuna og úr henni.

 

13. gr.

Stjórnstaðir.

13.1     Stólalyftu má eingöngu vera unnt að gangsetja frá þeim stað þar sem farið er í hang og frá stjórnstöð,

13.2     Frá stjórnstöð og endastöð skal vera gott útsýni yfir þá staði þar sem farið er í og úr lyftunni og eins mikinn hluta hennar og mögulegt er. Í stjórnstöð og endastöð skal vera upphitun.

13.3     Gangsetningarbúnaði utan stjórnstöðvar skal vera unnt að læsa.

 

14. gr.

Merki.

14.1     Við stólalyftu skulu vera áberandi merki úr varanlegu efni með nauðsynlegum leiðbein­ingum og fyrirmælum til þeirra sem nota lyftuna.

14.2     Merki mega ekki vera með skörpum brúnum eða hvössum hornum.

 

15. gr.

Starfsmannaaðstaða.

15.1     Starfsmenn við stólalyftu skulu hafa aðgang að fullnægjandi starfsmannaaðstöðu sbr. reglur nr. 493/1987 um húsnæði vinnustaða og reglugerð nr. 84/1982 um starfsmannabú­staði og starfsmannabúðir.

 

16. gr.

Rekstrarstjóri og starfsfólk.

16.1     Sá sem hefur með höndum rekstur stólalyftu skal tilnefna rekstrarstjóra sem hefur yfirumsjón með rekstri og viðhaldi lyftunnar svo og staðgengil hans. Tilnefningar þessar skal tilkynna Vinnueftirliti ríkisins.

16.2     Rekstrarstjóri og staðgengill hans skulu hafa nægilega þekkingu og reynslu til að stjórna rekstrinum á öruggan hátt. Þeir skulu kunna góð skil á búnaði lyftunnar, rekstrar- og viðhaldsleiðbeiningum framleiðanda og ákvæðum laga og reglna sem varða störf þeirra.

16.3     Þegar stólalyfta er í notkun skal hún vera undir stöðugri gæslu. Gæslumenn skulu vera við þá staði þar sem farið er í lyftuna og úr henni. Þeir skulu vera orðnir 18 ára.

 

17. gr.

Rekstur og eftirlit.

17.1     Sá sem hefur með höndum rekstur stólalyftu skal gera rekstrar- og viðhaldsáætlun sem lögð skal fyrir Vinnueftirlit ríkisins til samþykktar. Áætlunin skal m.a. fjalla um:

a)    daglegt eftirlit,

b)    vikulegt og/eða mánaðarlegt eftirlit,

c)    árlegt eftirlit,

d)    eftirlit fimmta hvert ár,

e)    eftirlit með vírum.

17.2     Verulegar breytingar eða viðgerðir á búnaði lyftunnar eru háðar samþykki Vinnueftir­litsins áður en framkvæmdir hefjast. Sérstök skoðun skal fara fram eftir slíkar breyting­ar.

17.3     Á hverjum degi, áður en lyftan er opnuð almenningi, skal ganga úr skugga um að hún sé í öruggu rekstrarástandi.

17.4     Þegar rekstri lýkur skal gæslumaður fullvissa sig um að ekki séu farþegar í lyftunni. Áður en hann yfirgefur stjórnstöð skal vera slökkt á lyftunni og tryggt að utanaðkomandi geti ekki gangsett hana.

17.5     Rekstur skal stöðva sé rekstraröryggi ekki tryggt vegna veðurs, bilana eða annarra orsaka. Ennfremur þegar dimma tekur nema fullnægjandi lýsing sé við endastöðvar lyftunnar.

17.6     Þegar nauðsynlegt er að keyra lyftuna við slæmar aðstæður skal sýnd sérstök aðgát. Rekstrarstjóri eða staðgengill hans skal þá vera viðstaddur.

17.7     Þegar viðgerð fer fram á lyftunni skal gangsetningarbúnaður vera tryggilega læstur ef gangsetning getur haft í för með sér hættu.

17.8     Þegar ætla má að lyftan hafi laskast eða vírar skemmst skal skoða hana vandlega. Rekstur má ekki hefja aftur fyrr en rekstrarstjóri hefur fullvissað sig um að öryggi sé tryggt.

 

18. gr.

Dagbækur.

18.1     Færa skal rekstrardagbók þar sem skráð er:

a)    tímasetning keyrslu og fjöldi keyrslutíma, b) nöfn gæslumanna,

c)    veðurfar, hiti og úrkoma,

d)    staðfesting á því að daglegt eftirlit og reynslukeyrsla hafi farið fram,

e)    öll óhöpp eða óvenjuleg atvik við rekstur lyftunnar eða daglegt eftirlit, þar með taldar rekstrarstöðvanir, orsakir þeirra og tímalengd.

Færslur í dagbók skal staðfesta með undirskrift.

18.2     Rekstrarstjóri skal færa dagbók yfir viðhald og eftirlit þar sem fram kemur hvaða búnaður hefur verið athugaður og ástand hans, svo og viðgerðir sem framkvæmdar eru. Færsla á stólaklemmum skal færð í viðhaldsdagbók. Færslur skal staðfesta með undir­skrift.

18.3     Færa skal dagbók fyrir lyftuvír og strekkivír og eftirlit með þeim. Þar skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar:

a)    hvenær vír er tekinn í notkun,

b)    viðgerð og stytting á lyftuvír og nafn þess sem verkið vann, c) sjónskoðun og atriði sem koma fram við hana,

d)    annað eftirlit.

Auk þess skulu fylgja dagbók upplýsingar um þann staðal sem vírinn er framleiddur eftir og afrit af víraskírteini.

 

19. gr.

Fyrsta skoðun.

19.1     Áður en ný stólalyfta er tekin í notkun, eða eftir verulegar breytingar á eldri lyftum, skal fara fram fyrsta skoðun sem Vinnueftirlit ríkisins framkvæmir.

19.2     Þegar skoðun fer fram á eftirfarandi að liggja fyrir:

a)    leiðréttar teikningar hafi breytingar verið gerðar frá hönnun, b) niðurstöður mælinga á legu lyftuvírs,

c)    staðfesting viðurkennds aðila á því að undirstöður mastra og stöðva séu í samræmi við samþykktar teikningar,

d)    staðfesting löggilts aðila á því að rafbúnaður sé í samræmi við gildandi reglur um raforkuvirki.

 

20.gr.

Árleg skoðun.

20.1     Svo lengi sem stólalyfta er í rekstri skal hún skoðuð árlega af Vinnueftirliti ríkisins. Kostnað vegna eftirlits skal eigandi greiða samkvæmt gjaldskrá.

20.2     Komi í ljós að stólalyfta eða búnaður hennar brjóti í bága við reglugerð þessa er Vinnueftirliti ríkisins heimilt að afturkalla rekstrarleyfi hennar.

20.3     Ákvörðun eftirlitsmanna og forstjóra Vinnueftirlits ríkisins má vísa til stjórnar Vinnueft­irlitsins innan fjögurra vikna frá því hún var birt, sbr. 98. gr. laga nr. 46/1980. Ákvörðun stjórnar má á sama hátt áfrýja til ráðherra.

 

21. gr.

Björgun.

21.1     Sá sem hefur með höndum rekstur stólalyftu skal sjá um að gerð sé áætlun um hvernig bjarga skuli farþegum úr lyftunni, komi til rekstrarstöðvunar þannig að ekki sé hægt að keyra hana.

21.2     Fullnægjandi björgunarbúnaður skal vera fyrir hendi og unnt að ná farþegum úr lyftunni á það skömmum tíma að ekki skapist hætta fyrir þá. Unnt skal vera að ná farþegum úr lyftunni án hjálpar frá þeim sjálfum.

21.3     Rekstrarstjóri skal sjá um að starfsfólk skíðasvæðisins fái þjálfun í björgun og skyndi­hjálp. Björgunaræfingar skulu vera a.m.k. í upphafi hvers rekstrartímabils. Á lama tíma skal yfirfara björgunarbúnað.

21.4     Teppi skulu vera til staðar til að koma í veg fyrir að farþegar ofkælist. Hentug ljós skulu vera til staðar til notkunar við björgunaraðgerðir í myrkri.

 

22. gr.

Slys og slysatilkynningar.

22.1     Við stólalyftu skal vera búnaður til að veita skyndihjálp, beri slys að höndum.

22.2     Verði slys á farþega, sem ætla má að leiði til líkamstjóns eða umtalsverðs skaða, skal það tilkynnt Vinnueftirliti ríkisins. Vinnuslys skal tilkynna í samræmi við reglur þar að lútandi.

 

23. gr.

Viðurlög.

23.1     Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum samkvæmt ákvæðum laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

 

24. gr

Gildistaka.

24.1     Reglugerð þessi er sett samkvæmt 3. mgr. 3. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og öðlast gildi 1. júní 1990.

 

Bráðabirgðaákvæði.

1.                  Þrátt fyrir ákvæði í gr. 8.1 er heimilt að reka þær stólalyftur sem teknar hafa verið í notkun fyrir gildistöku reglugerðar þessarar, þó ekki sé unnt að keyra þær afturábak.

2.                  Ákvæði í gr. 10.3 gilda ekki um þær lyftur sem teknar hafa verið í notkun fyrir gildistöku reglugerðar þessarar, nema endastöðvar og möstur ásamt undirstöðum þeirra séu hönnuð fyrir það aukna álag sem ákvæðinu fylgir.

3.                  Fyrir 1. nóv. 1990 skal fara fram ítarleg skoðun á þeim stólalyftum sem eru í rekstri fyrir gildistöku reglugerðar þessarar. Úttekt skal framkvæmd af viðurkenndum aðila og í samráði við Vinnueftirlit ríkisins.

 

Félagsmálaráðuneytið, 9. maí 7990.

 

Jóhanna Sigurðardóttir.

Óskar Hallgrímsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica