Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 10. maí 2023

590/2005

Reglugerð um fjárvörslureikninga vátryggingamiðlara og vátryggingaumboðsmanna.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Vátryggingamiðlari eða vátryggingaumboðsmaður sem tekur að sér að varðveita fé fyrir viðskiptamenn sína, skal halda þeim skýrt aðgreindum frá eigin fé. Honum er jafnframt skylt að veita Fjármálaeftirlitinu upplýsingar um vörslufé svo sem nánar er kveðið á um í reglugerð þessari.

2. gr. Orðskýringar.

Reglugerð þessi tekur til vátryggingamiðlara sem fengið hafa útgefið starfsleyfi Fjármálaeftirlitsins til vátryggingamiðlunar skv. 9. gr. laga nr. 32/2005 um miðlun vátrygginga og vátryggingaumboðsmanna sem skráðir hafa verið hjá vátryggingafélagi skv. 39. gr. sömu laga.

3. gr. Aðgreining fjármuna.

Vátryggingamiðlara og vátryggingaumboðsmanni er skylt að halda þeim fjármunum, sem tekið er við í þágu annarra, aðgreindum frá eigin fé. Skulu slíkir fjármunir varðveittir á sérstökum fjárvörslureikningi.

II. KAFLI Vörslufé.

4. gr. Viðskiptareikningur vegna vörslufjár.

Vátryggingamiðlari og vátryggingaumboðsmaður, sem varðveita fé viðskiptamanna sinna, skulu færa sérstakan viðskiptareikning í bókhaldi sínu, sem sýni inneign viðskiptamannsins á hverjum tíma. Á reikninginn skal færa allt fé, sem vátryggingamiðlari eða vátryggingaumboðsmaður tekur við til varðveislu vegna miðlunar vátrygginga. Ekki er skylt að færa á reikninginn fé, sem tekið er við og skilað samdægurs.

Þá skulu vátryggingamiðlari og vátryggingaumboðsmaður færa sérstakan, sameiginlegan viðskiptareikning, fjárvörslureikning, sem sýni á hverjum tíma samanlagðar innstæður allra viðskiptamanna á viðskiptareikningum skv. 1. mgr. Þegar sérstakar aðstæður mæla með því er heimilt að færa fjárvörslureikninga vegna einstakra viðskiptamanna.

5. gr. Fjárvörslureikningur í viðskiptabanka eða sparisjóði.

Fjárhæð, sem samsvarar stöðu fjárvörslureiknings í bókhaldi vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmanns, skal varðveitt á sérstökum bankareikningi/-reikningum í viðskiptabanka eða sparisjóði, fjárvörslureikningi. Ef vátryggingamiðlari eða vátryggingaumboðsmaður er jafnframt viðskiptabanki eða sparisjóður skal þeim heimilt að stofna sjálfir slíka fjárvörslureikninga. Fjárvörslureikning skal stofna á nafni vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmanns og hefur hann formlega ráðstöfunarheimild yfir reikningnum. Vátryggingamiðlari eða vátryggingaumboðsmaður er ekki eigandi innstæðu á reikningi samkvæmt þessari grein og er innstæðan ekki hæft andlag aðfarargerða hjá honum eða grundvöllur trygginga fyrir viðskiptum hans eða annarra. Reikningur þessi skal aðgreindur frá eigin fé vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmanns og stendur innstæðan á honum utan skuldaraðar við skipti á búi hans. Hið sama á við ef starfsemi vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmanns er rekin í nafni félags.

6. gr. Sérstakar reglur um fjárvörslureikninga.

Fjárvörslureikninga er einungis heimilt að stofna í viðskiptabönkum eða sparisjóðum, sem með tilkynningu til Fjármálaeftirlitsins, er eftirlitið metur fullnægjandi, hafa skuldbundið sig til þess að fylgja eftirfarandi reglum:

  1. Banka eða sparisjóði skal óheimilt að skuldfæra á fjárvörslureikning nokkurn kostnað vegna viðskipta við vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmann eða nota innstæðuna til skuldajöfnunar krafna gegn honum eða einstökum viðskiptamönnum hans.
  2. Banka eða sparisjóði skal óheimilt að taka peninga af fjárvörslureikningi nema gegn skriflegum eða rafrænum fyrirmælum frá vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmanni. Skulu slík fyrirmæli varðveitt hjá viðkomandi innlánsstofnun með sama hætti og bókhaldsgögn.
  3. Banka eða sparisjóði er skylt að senda Fjármálaeftirlitinu staðfest yfirlit um stöðu og hreyfingar á fjárvörslureikningi hvenær sem Fjármálaeftirlitið kallar eftir slíku yfirliti.
  4. Banka eða sparisjóði er skylt að sæta því að Fjármálaeftirlitið stöðvi notkun fjárvörslureiknings. Hafi notkun verið stöðvuð er óheimilt að greiða af reikningnum án heimildar trúnaðarmanns, sem Fjármálaeftirlitið tilnefnir.

7. gr. Skylda til að leggja fé á fjárvörslureikning.

Vátryggingamiðlari eða vátryggingaumboðsmaður skal þegar eftir að hann hefur móttekið fjármuni frá viðskiptamanni sínum eða öðrum, leggja allt fé, sem hann tekur við og honum ber að færa á fjárvörslureikning í bókhaldi sínu skv. 4. gr., á fjárvörslureikning í banka eða sparisjóði.

8. gr. Heimild til greiðslu af fjárvörslureikningi.

Út af fjárvörslureikningi má aðeins taka ef og þegar:

  1. Fé greiðist til viðskiptamanns eða er notað til greiðslu fyrir hans hönd samkvæmt skriflegri heimild þar um;
  2. Vátryggingamiðlari eða vátryggingaumboðsmaður á fé hjá viðskiptamanni sínum vegna gjaldfallins endurgjalds eða útlagðs kostnaðar samkvæmt rétt bókfærðri stöðu viðskiptareiknings hans, enda sé fullnægt skilyrðum til skuldajöfnunar;
  3. Rétt uppgjör og afstemming fjárvörslureiknings hefur farið fram og sannreynt er að á honum er fé, sem er umfram skuldbindingar.

9. gr. Skylda til að stemma af reikninga.

Vátryggingamiðlari og vátryggingaumboðsmaður skulu á minnst þriggja mánaða fresti bera saman og staðreyna að innstæða á fjárvörslureikningi samsvari bókfærðri stöðu fjárvörslureiknings í bókhaldi. Á sama hátt skulu þeir bera saman og staðreyna að samtala viðskiptareikninga viðskiptamanna samsvari stöðu fjárvörslureiknings í bókhaldi. Komi í ljós, að innstæða á fjárvörslureikningi er lægri en nemur heildarskuldbindingum vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmanns samkvæmt fjárvörslureikningi í bókhaldi hans, skal hann tafarlaust bæta úr því. Gögn, sem sýna að fjárvörslureikningur í banka og bókhaldi hafi verið stemmdur af, skal vátryggingamiðlari og vátryggingaumboðsmaður varðveita með sama hætti og önnur bókhaldsgögn.

III. KAFLI Eftirlit.

10. gr. Yfirlýsing til Fjármálaeftirlitsins.

Vátryggingamiðlari skal fyrir lok aprílmánaðar ár hvert senda Fjármálaeftirlitinu, á þar til gerðu eyðublaði, sem Fjármálaeftirlitið lætur í té, yfirlýsingu, staðfesta af löggiltum endurskoðanda, um stöðu fjárvörslureiknings í banka þann 31. desember á liðnu ári. Staða vörslufjár á reikningnum skal ekki lægri en staða vörslufjár samkvæmt bókhaldi.

Vátryggingaumboðsmaður og/eða það vátryggingafélag sem hann starfar fyrir skal fyrir lok aprílmánaðar ár hvert senda Fjármálaeftirlitinu, á þar til gerðu eyðublaði, sem Fjármálaeftirlitið lætur í té, yfirlýsingu, staðfesta af löggiltum endurskoðanda, um stöðu fjárvörslureiknings í banka þann 31. desember á liðnu ári. Staða vörslufjár á reikningnum skal ekki vera lægri en staða vörslufjár samkvæmt bókhaldi.

IV. KAFLI Ýmis ákvæði.

11. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 2. mgr. 22. gr. og 2. mgr. 44. gr. laga um miðlun vátrygginga, nr. 32 frá 11. maí 2005, öðlast þegar gildi.

Viðskiptaráðuneytinu, 20. júní 2005.

Valgerður Sverrisdóttir.

Kristján Skarphéðinsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.