Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Ógild reglugerð

46/2003

Reglugerð um starfsábyrgðartryggingu bifreiðasala.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Í reglugerð þessari merkir:

  1. Viðskiptamaður: Einstakling eða lögaðila sem bifreiðasali hefur annast milligöngu um kaup eða sölu skráningarskylds ökutækis fyrir.
  2. Tjónsatvik: Hvert einstakt skaðabótaskylt atvik er hefur tjón í för með sér.
  3. Trygging: Vátryggingu gegn skaðabótaábyrgð sem vátryggður kann að baka sér gagnvart þriðja manni (tjónþola) vegna atvika sem hafa tjón í för með sér og hann ber ábyrgð á. Tjónþoli nýtur ekki góðs af ábyrgðartryggingu nema hann eigi skaðabótakröfu á hendur vátryggðum. Ábyrgð viðskiptabanka eða sparisjóðs, sbr. 3. gr. fellur einnig undir skilgreiningu þessa.

2. gr.

Bifreiðasala ber eftir almennum reglum skaðabótaréttar að bæta viðskiptamönnum sínum það tjón sem hann kann að baka þeim með störfum sínum.

3. gr.

Leyfi til bifreiðasölu er háð því skilyrði að fullnægjandi tryggingar séu í gildi, sbr. 5. tölul. 1. mgr. 13. gr. laga nr. 28/1998, með síðari breytingum, um verslunaratvinnu.

Tryggingarskyldu getur bifreiðasali aðeins uppfyllt ef hann:

  1. Kaupir vátryggingu hjá viðurkenndu vátryggingarfélagi eða
  2. Aflar sér ábyrgðar hjá viðskiptabanka eða sparisjóði.

Falli vátrygging skv. 1. tl. 2. mgr. eða bankaábyrgð skv. 2. tl. 2. mgr. úr gildi skulu hlutaðeigandi vátryggingafélag, viðskiptabanki eða sparisjóður með sannanlegum hætti tilkynna það þegar í stað til lögreglustjórans í Reykjavík eða sýslumanni í hlutaðeigandi lögsagnarumdæmi sem veitt hefur starfsleyfið. Vátryggingartíma eða ábyrgðartíma telst þó eigi lokið fyrr en átta vikur eru liðnar frá því lögreglustjóra er veitt hefur starfsleyfið var tilkynnt um brottfall tryggingarinnar. Að þeim tíma liðnum telst leyfi til bifreiðasölu úr gildi fallið nema önnur fullnægjandi trygging hafi verið sett.

4. gr.

Trygging bifreiðasala skv. 3. gr. skal bæta viðskiptamanni hans fjárhagstjón sem leitt verður af gáleysi í störfum hans eða starfsmanns hans. Trygging skal nema minnst kr. 3.000.000 vegna hvers einstaks tjónsatviks. Heildarfjárhæð tryggingarbóta innan hvers tólf mánaða vátryggingartímabils skal nema kr. 9.000.000 hið minnsta. Fjárhæðir þessar skulu fylgja vísitölu neysluverðs og breytast 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á henni. Grunnvísitala er vísitala janúarmánaðar 1998. Tryggingin skal taka til starfsemi bifreiðasalans hvar sem er innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Vátryggingafélagi, viðskiptabanka eða sparisjóði, sbr. 3. gr., er heimilt að endurkrefja hvern þann sem valdið hefur tjóni af stórkostlegu gáleysi.

Heimilt er þeim er tryggingu veitir að áskilja sjálfsáhættu bifreiðasalans en slíkt ákvæði má ekki skerða réttarstöðu þriðja aðila. Tilhögun eigin áhættu skal getið í skilmálum tryggingarinnar. Sé tryggingin í formi vátryggingar er jafnframt heimilt að geta eigin áhættu í skírteini eða iðgjaldskvittun.

5. gr.

Skilmálar trygginga skv. reglugerð þessari skulu kynntir viðskiptaráðuneyti, og Fjármálaeftirliti sé um vátryggingu að ræða, áður en þeir eru boðnir bifreiðasölum.

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 13. gr. laga nr. 28/1998, um verslunaratvinnu, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 84/1998, um starfsábyrgðartryggingu bifreiðasala.

Viðskiptaráðuneytinu, 15. janúar 2003.

Valgerður Sverrisdóttir.

Kristján Skarphéðinsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.