Viðskiptaráðuneyti

603/2000

Reglugerð um löggildingu raforkumæla. - Brottfallin

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi mælir fyrir um prófanir og löggildingu raforkumæla sem eru löggildingarskyldir, sbr. 5. gr. laga nr. 100/1992 um vog, mál og faggildingu.

 

2. gr.

Skilgreiningar.

Frumsannprófun (EBE-frumsannprófun) er aðferð til að sannreyna að framleiðsla tækis sé í samræmi við viðurkennda frumgerð og standist mælifræðilegar kröfur, m.a. um heimiluð hámarksfrávik og merkingar.  Aðferðinni er lýst nánar í viðeigandi reglugerðum.

Gerðarviðurkenning (EBE-gerðarviðurkenning) byggist á ítarlegri gerðarprófun, þar sem prófað hefur verið eftir kröfum viðkomandi tilskipana og reglugerða eða annarra kröfuskjala.  Gerðarviðurkenning er forsenda frumsannprófunar og markaðssetningar eftir öðrum leiðum.

Heimiluð hámarksfrávik eru stærstu gildi sem leyfð eru fyrir frávik í reglugerðum, stöðlum og öðrum kröfuskjölum fyrir tiltekin mælitæki.

Mælaspennir er samheiti fyrir spennuspenni og straumspenni.

Mæligrunnur merkir áþreifanlegan mælikvarða, mælitæki eða mælibúnað til þess að skilgreina, raungera, varðveita eða birta einingu eða gildi eðlisfræðistærðar til þess að flytja þessa einingu eða stærð yfir á önnur mælitæki með samanburði.

Raforkumælibúnaður er raforkumælir ásamt mælaspenni.

 

3. gr.

Hæfniskröfur.

Löggildingaraðili skal uppfylla þær hæfniskröfur sem fram koma í reglugerð um starfshætti þeirra sem annast löggildingar mælitækja í umboði Löggildingarstofu.

Prófunarmaður skal vera rafiðnaðarmaður og hafa yfir að ráða nægilegri tæknikunnáttu til að annast löggildingar raforkumæla og meta ástand þeirra út frá prófunum og skoðunum.  Tryggt skal að kunnáttu hans sé haldið við með endurmenntun.  Hann skal kunna skil á þeim reglum sem iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið setur varðandi raforkumæla.

Tæknilegur stjórnandi skal vera verkfræðingur eða tæknifræðingur og hafa þekkingu á raforkumælum og reynslu af löggildingu þeirra.  Undanþágu má gera frá framangreindum skilyrðum um þekkingu og reynslu ef viðkomandi hefur menntun eða starfsreynslu og þjálfun sem faggildingarsvið Löggildingarstofu telur fullnægjandi.  Tæknilegur stjórnandi er ábyrgur fyrir öllum löggildingum sem löggildingaraðili vinnur.

 

4. gr.

Mælitæki notuð við löggildingu.

Allir mæligrunnar, sem löggildingaraðili notar í tengslum við löggildingar raforkumæla, skulu vera kvarðaðir og skal kvörðunin rekjanleg til landsmæligrunna á Íslandi.  

Löggildingaraðili skal hafa yfir að ráða nauðsynlegum mælitækjum til að staðfesta að umhverfi raforkumælis henti honum.

 

5. gr.

Aðstæður.

Flutningur löggilts raforkumælis frá prófunarstofu á notkunarstað skal uppfylla kröfur gæðakerfis um flutning.

Uppsetning löggildingarskylds raforkumælis á notkunarstað skal vera í samræmi við ákvæði í reglugerðum og stöðlum og fyrirmæli framleiðanda um umhverfisaðstæður og frágang.

Raforkumælar eru löggiltir á prófunarstofu þar sem tryggt hefur verið með faggildingu að kröfum um umhverfisþætti sé fullnægt.

Prófun raforkumælibúnaðar fer fram á notkunarstað og skal þá geta sérstaklega um það í prófunarskýrslu og fara eftir verklagsreglum um prófun á notkunarstað.

 

6. gr.

Löggildingarhæfi.

Löggildingarhæfi raforkumælis felst í að staðfesta með skoðun og prófun að hann uppfylli eftirfarandi atriði:

1.    Ákvæði reglugerða um markaðssetningu raforkumæla.

2.    Að merkingar og áletranir séu í samræmi við kröfur reglugerða um markaðssetningu raforkumæla.

3.    Að aðstæður og notkun henti raforkumælinum.

4.    Að mælifræðilegir eiginleikar hans séu í samræmi við kröfur staðla og reglugerða um markaðssetningu raforkumæla; þetta skal staðfest með prófun. Einkum er um að ræða staðfestingu þess að kröfum um heimiluð hámarksfrávik, tómagang og gangsetningu sé fullnægt.

5.    Staðfesta má löggildingarhæfi safns raforkumæla með úrtaksprófun.

6.    Löggildingarstofa getur heimilað löggildingar eldri mælagerða þó að ákvæðum 1. og 2. tölul. sé ekki fullnægt.

 

7. gr.

Löggilding raforkumæla.

Ekki má taka raforkumæli í notkun nema að undangenginni löggildingu.

Í samræmi við 10. gr. laga nr. 100/1992 um vog, mál og faggildingu, ber eiganda raforkumælis að sjá til þess að hann sæti reglubundnu eftirliti og uppfylli þær kröfur sem til hans eru gerðar samkvæmt lögum og reglugerðum og að löggilding hans sé ætíð í gildi.

Raforkumæli má löggilda hafi löggildingarhæfi hans eða þess mælasafns, sem hann tilheyrir, verið staðfest með skoðun og prófun.  Sé raforkumælir löggildingarhæfur er festur á hann löggildingarmiði og innsigli með ártali löggildingar og telst hann þá löggiltur.

Þegar löggiltur raforkumælir er tengdur við mælaspenni getur Löggildingarstofa krafist staðfestingarprófana á raforkumælibúnaðinum á notkunarstað. Mælaspennar skulu uppfylla kröfur í reglugerð um raforkumæla og um prófanir á notkunarstað gilda sérstakar verklagsreglur.

Ef prófunarstofa með starfsleyfi til löggildingar raforkumæla annast einnig stillingu og viðgerðir þeirra skal halda þeim verkþáttum greinilega aðskildum frá löggildingunum í samræmi við kröfur staðla.

 

8. gr.

Tíðni löggildinga.

Tímabil löggildingar raforkumæla miðast við heilt ár og telst löggildingartímabilið hefjast 1. næsta mánaðar, þannig að fari löggilding fram í desember telst tímabilið hefjast 1. janúar næsta ár. Gildistími löggildinga raforkumæla er sem hér segir:

1.    Löggilding ein- eða fjölfasa raforkumæla tengdra mælaspennum, sem hafa takmarkaða gerðarviðurkenningu eða eru notaðir til reynslu, gildir í allt að 5 ár.

2.    Löggilding raforkumæla fyrir fjölþrepa gjaldskrá annarra en tvígjaldsmæla og aflmæla gildir í allt að 8 ár.

3.    Löggilding raforkumæla fyrir markmælingu gildir í allt að 8 ár.

4.    Löggilding ein- eða fjölfasa raforkumæla tengdra mælaspennum, annarra en getið er í 1. tölul., gildir í allt að 10 ár.

5.    Löggilding ein- eða fjölfasa raforkumæla, þar með talið tvígjaldsmæla, gildir í allt að 16 ár.

6.    Ef unnt er að sýna fram á með úrtaksprófun að raforkumælar skv. 3., 4. og 5. tölul. séu löggildingarhæfir er heimilt að framlengja gildistíma löggildinga viðkomandi mælasafns um allt að 4 ár í hvert sinn.

 

9. gr.

Afturköllun löggildingar.

Löggildingin fellur úr gildi, þrátt fyrir að gildistími skv. 8. gr. sé ekki liðinn, ef:

1.    kröfum um flutning og uppsetningu, sbr. 5. gr., er ekki fullnægt,

2.    raforkumælir bilar,

3.    innsigli prófunarstofu á raforkumæli er rofið,

4.    viðgerð er framkvæmd á raforkumælinum sem áhrif getur haft á mæliniðurstöðu hans,

5.    frávik eru meiri en tvöföld heimiluð hámarksfrávik,

6.    raforkumælir er fluttur úr stað.

Löggildingarstofu er heimilt að veita undanþágu frá 3. tölul. vegna eldri markmæla.

 

10. gr.

Skýrslugerð.

Skýrslugerð skal vera í samræmi við verklagsreglur og reglugerð um starfshætti þeirra sem annast löggildingar mælitækja í umboði Löggildingarstofu. Eftirfarandi upplýsingar skulu m.a. koma fram í prófunarskýrslum sem lagðar eru til grundvallar löggildingu:

1. Umsögn um merkingar.2. Fjöldi mæla í safni og hve margir þeirra voru prófaðir.3. Frávik við mælingu.4. Niðurstöður tómagangs- og gangsetningarprófana.

Þessar upplýsingar skulu vera aðgengilegar starfsmönnum Löggildingarstofu.

 

11. gr.

Málskot.

Komi upp ágreiningur um úrskurð Löggildingarstofu um einhver atriði varðandi ákvæði eða beitingu þessarar reglugerðar má skjóta málinu til ráðherra.

 

12. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 100/1992 um vog, mál og faggildingu og öðlast þegar gildi.

 

Viðskiptaráðuneytinu, 18. ágúst 2000.

 

F. h. r.

Þorgeir Örlygsson.

Atli Freyr Guðmundsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica