Viðskiptaráðuneyti

272/1982

Reglugerð um jöfnun flutningskostnaðar á sementi - Brottfallin

REGLUGERÐ

um jöfnun flutningskostnaðar á sementi.

1. gr.

Jafna skal flutningskostnað sements þannig að kostnaðarverð í vöruskemmu á hverri sementstegund frá hverjum innlendum framleiðanda eða innflutningsaðila verði hið sama á þeim verslunarstöðum sem jöfnun þessi nær til.

2. gr.

Jöfnun flutningskostnaðar á sement nær til eftirtalinna verslunarstaða sem jafnframt eru aðaltollhafnir:

Reykjavík

Húsavík

Keflavík

Akranes

Seyðisfjörður

Keflavíkurflugvöllur

Ísafjörður

Neskaupstaður

Hafnarfjörður

Siglufjörður

Eskifjörður

 

Akureyri

Vestmannaeyjar

 

Auk þess nær jöfnun flutningskostnaðar á sementi til eftirtalinna verslunarstaða.

Borgarnes

Búðardalur

Bíldudalur

Rifshöfn

Skriðuland

Þingeyri

Ólafsvík

Króksfjarðarnes

Flateyri

Grundarfjörður

Patreksfjörður

Suðureyri

Stykkishólmur

Tálknafjörður

Bolungarvík

Súðavík

Grenivík

Höfn í Hornafirði

Norðurfjörður

Grímsey

Kirkjubæjarklaustur

Hólmavík

Kópasker

Vík í Mýrdal

Óspakseyri

Raufarhöfn

Hella

Borðeyri

Þórshöfn

Hvolsvöllur

Hvammstangi

Bakkafjörður

Laugarvatn

Blönduós

Vopnafjörður

Stokkseyri

Skagaströnd

Borgarfjörður eystri

Eyrarbakki

Sauðárkrókur

Egilsstaðir

Selfoss

Hofsós

Reyðarfjörður

Hveragerði

Ólafsfjörður

Fáskrúðsfjörður

Þorlákshöfn

Dalvík

Stöðvarfjörður

Grindavík

Hrísey

Breiðdalsvík

Sandgerði

Svalbarðseyri

Djúpivogur

Gerðar

3. gr.

Leggja skal flutningsjöfnunargjald á allt sement sem framleitt er í landinu eða flutt er til landsins. Skulu innlendir framleiðendur (Sementsverksmiðja ríkisins) greiða gjaldið ársfjórðungslega til viðskiptaráðuneytisins, en af innfluttu sementi skal það innheimt með aðflutningsgjöldum. Annast tollstjórinn í Reykjavík og bæjarfógetar og sýslumenn annars staðar á landinu innheimtuna og skulu þeir skila gjaldinu til viðskiptaráðuneytisins.

4. gr.

Viðskiptaráðuneytið ákveður flutningsjöfnunargjaldið fyrir allt að eitt ár í senn og skal upphæð þess við það miðuð að tekjur af því nægi til að greiða eftirtalinn kostnað við flutning frá framleiðslustað eða innflutningshöfn til þeirra verslunarstaða sem jöfnun flutningskostnaðarins nær til:

a) Flutningur með skipum:

1. Útskipun.

2. Flutningsgjald.

3. Sjótrygging.

4. Uppskipun.

5. Flutningur frá skipshlið í vöruskemmu.

6. Vörugjald.

b) Flutningur með bifreiðum:

1. Flutningskostnaður, sem nægi til að greiða rekstrarkostnað bifreiða í þessum flutningum.

5. gr.

Tekjur af flutningsjöfnunargjaldi skal leggja í sérstakan sjóð, flutningsjöfnunarsjóð sements. Þeir aðilar, sem gera kröfur á hendur sjóðnum, skulu haga bókhaldi sínu þannig að fullnægjandi sé með tilliti til ,jöfnunar flutningskostnaðar.

6. gr.

Nú verður tekjuafgangur á flutningsjöfnunarsjóði í árslok og skal hann þá yfirfærast til næsta árs. Ef tekjur sjóðsins eitthvert ár hrökkva ekki fyrir gjöldum samkvæmt 4. gr. skal greiða það, sem á vantar, af fyrstu tekjum sjóðsins næsta ár.

7. gr.

Viðskiptaráðherra skipar til 4 ára í senn 3 manna stjórn flutningsjöfnunarsjóðs, einn eftir tilnefningu Sementsverksmiðju ríkisins og tvo án tilnefningar og skal annar þeirra jafnframt vera formaður sjóðsstjórnar. Stjórnin skal annast framkvæmd jöfnunar flutningskostnaðar á sementi undir yfirstjórn viðskiptaráðherra, sem jafnframt sker úr ágreiningsatriðum, sem upp kunna að koma.

8. gr.

Stjórn sjóðsins skal ávaxta fé það, sem á hverjum tíma er í sjóðnum, á sérstökum bankareikningi og er hún ábyrg fyrir sjóðnum gagnvart viðskiptaráðuneytinu. Ennfremur skal hún skila ráðuneytinu árlega endurskoðuðu uppgjöri yfir sjóðinn.

9. gr.

Stjórn flutningsjöfnunarsjóðs úrskurðar, hvað teljast skuli flutningskostnaður, sbr. 4. gr. Er stjórninni meðal annars heimilt að ákveða, að jöfnun flutningskostnaðar milli tiltekinna verslunarstaða skuli takmörkuð við kostnað af þeim flutningsháttum, sem ódýrastir eru á hverjum tíma. Sömuleiðis skal stjórninni heimilt að synja um greiðslu tiltekins kostnaðar úr sjóðnum að hluta eða að fullu, ef um misnotkun á jöfnunarkerfinu sýnist vera að ræða í tilteknum viðskiptum.

Heimilt er viðskiptaráðuneytinu að fella niður flutningsjöfnunargjald á sementi, sem flutt er til landsins eða framleitt er innanlands og notað er til byggingar orkuvera eða annarra meiriháttar framkvæmda. Flutningsjöfnunarsjóður greiðir þá ekki flutningskostnað á sementi til þeirra nota.

10. gr.

Kostnaður við stjórn sjóðsins, skrifstofuhald og endurskoðun, greiðist af fé sjóðsins og skal þá tekið tillit til þess við ákvörðun flutningsjöfnunargjaldsins.

11. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum nr. 62, 30. apríl 1973, um jöfnun flutningskostnaðar á sementi, öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglugerð nr. 78 frá 1. apríl 1974, um jöfnun flutningskostnaðar á sementi, og reglugerð nr. 202 frá 30. maí 1975 um breyting á þeirri reglugerð.

Viðskiptaráðuneytið, 25. apríl 1982.

Tómas Árnason.

Yngvi Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica