Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 9. júní 2023

853/1999

Reglugerð um miðlun vátrygginga

Almenn ákvæði.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um miðlun vátrygginga. Í því felst m.a.;

  1. að undirbúa samninga um vátryggingu,
  2. gerð slíkra samninga,
  3. aðstoð við framkvæmd á slíkum samningum, einnig þegar krafa um vátryggingabætur er sett fram.

Með vátryggingamiðlara í reglugerð þessari er átt við einstakling eða lögaðila sem stundar vátryggingamiðlun.

2. gr.

Ákvæði reglugerðar þessarar eiga ekki við um starfsemi sem rekin er í umboði einstakra vátryggingafélaga og þegar gert er samkomulag við vátryggingafélag/-félög sem takmarkar heimildir til miðlunar til annarra vátryggingafélaga.

Ákvæði reglugerðar þessarar eiga ekki við um starfsemi þar sem einungis fer fram tjónsuppgjör eða ráðgjöf á vátryggingasviði án þess að jafnframt sé starfað við að koma á vátryggingasamningum í frumtryggingum.

Þegar við á eiga ákvæði reglugerðar þessarar við um starfsemi vátryggingasölumanna sem eru í þjónustu vátryggingamiðlara.

Leiki vafi á um hvort starfsemi falli undir ákvæði laga um vátryggingastarfsemi og reglugerðar þessarar, sker ráðherra úr.

3. gr.

Sá einn má nota heitið vátryggingamiðlari sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi eða hefur verið skráður í vátryggingamiðlaraskrá.

Skilyrði starfsleyfis lögaðila er að framkvæmdastjóri uppfylli skilyrði til að fá starfsleyfi sem vátryggingamiðlari.

Starfsleyfi vátryggingamiðlara í aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins telst jafngilda starfsleyfi hér á landi enda séu uppfyllt skilyrði laga um vátryggingastarfsemi og reglugerðar þessarar. Vátryggingamiðlari með starfsleyfi á Evrópska efnahagssvæðinu sem hyggst starfa hér á landi skal skráður hjá Fjármálaeftirlitinu. Kröfum um þekkingu og starfsreynslu skal talið fullnægt séu uppfyllt ákvæði 9. gr. eftir því sem við getur átt. Sé starfsemin ekki háð starfsleyfi í heimaríkinu skal vátryggingamiðlari sækja um starfsleyfi og gilda þá sömu reglur og um innlenda vátryggingamiðlara.

4. gr.

Einungis má miðla frumtryggingum til vátryggingafélaga sem hafa starfsleyfi hér á landi. Starfsleyfi vátryggingafélags í aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins telst jafngilda starfsleyfi hér á landi enda séu uppfyllt skilyrði laga um vátryggingastarfsemi varðandi heimildir til stofnunar útibús eða til að veita hér þjónustu.

5. gr.

Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með miðlun vátrygginga hér á landi. Þeim er stunda þá starfsemi er skylt að veita því allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að unnt sé að framfylgja eftirliti með starfseminni, þar á meðal allar upplýsingar sem það óskar um vátryggingasamninga sem þeir hafa komið á vegna vátryggingaáhættu hér á landi. Fjármálaeftirlitinu er heimilt að gera vettvangskönnun í því skyni þegar þörf er á. Um eftirlit Fjármálaeftirlitsins gilda lög um vátryggingastarfsemi og lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998.

Starfsleyfi. Hæfiskröfur.

6. gr.

Skrifleg umsókn um starfsleyfi einstaklings sem vátryggingamiðlara skal send viðskiptaráðuneytinu. Eftirfarandi skal koma fram eða fylgja umsókn:

  1. Nafn, fæðingardagur og ár, kennitala og lögheimili.
  2. Heiti greinaflokka vátrygginga sem miðla á, sbr. 22. og 23. gr. laga um vátryggingastarfsemi, eða skaðatryggingar, persónutryggingar (líf-, sjúkra- og slysatryggingar) eða frumtryggingar í heild.
  3. Upplýsingar um þekkingu og starfsreynslu á sviði vátrygginga og tengdum sviðum eða skírteini gefið út af lögbærum yfirvöldum eða þar til bærum aðilum um þá þekkingu sem umsækjandi býr yfir til starfans.
  4. Staðfesting á lögræði, óflekkuðu mannorði og að umsækjandi hafi ekki á síðustu fimm árum verið úrskurðaður gjaldþrota eða í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld, svo og löggjöf um vátryggingastarfsemi.
  5. Yfirlýsing umsækjanda um sjálfstæði gagnvart einstökum vátryggingafélögum og að fjárhagsleg tengsl séu engin við vátryggingafélög, sem miðlað er til vegna eignaraðildar eða hagsmuna annarra en þeirra sem tengjast þeim vátryggingasamningum sem komið er á.
  6. Greinargerð um tengsl við einstök vátryggingafélög og félög í þeirra eigu.
  7. Vottorð um gilda starfsábyrgðartryggingu, skilmálar hennar og heiti og aðsetur hlutaðeigandi vátryggingafélags.

7. gr.

Umsækjandi um starfsleyfi skal leggja fram vottorð gefið út af til þess bæru yfirvaldi í dóms- eða stjórnkerfi heimaríkis eða upprunaríkis hans, er sanni að ákvæði 4. tl. 6. gr. séu uppfyllt.

Séu skjöl af því tagi sem tilgreind eru í 1. mgr. ekki gefin út í heimaríki umsækjanda getur eiðsvarin yfirlýsing komið í staðinn eða yfirlýsing að viðlögðum drengskap sem hlutaðeigandi gefur til þess bæru yfirvaldi í dóms- eða stjórnkerfi eða lögbókanda og staðfest skal af þeim. Slík yfirlýsing gefin ráðuneytinu skal tekin gild hér á landi.

Skjöl gefin út samkvæmt 1. mgr. mega ekki vera eldri en þriggja mánaða talið frá útgáfudegi þegar þau eru lögð fram.

8. gr.

Skrifleg umsókn lögaðila um starfsleyfi sem vátryggingamiðlari skal send viðskiptaráðuneytinu. Eftirfarandi skal koma fram eða fylgja umsókn:

  1. Heiti og lögheimili lögaðilans og vottorð um firmaskráningu, nöfn stjórnarmanna og framkvæmdastjóra ásamt fæðingardegi og ári eða kennitölu og lögheimili hvers þeirra.
  2. Gögn samkvæmt 2. tl. og 5. tl. - 7. tl. 6. gr.
  3. Gögn samkvæmt 1. tl. og 3. tl. - 6. tl. 6. gr. um framkvæmdastjóra lögaðilans.

9. gr.

Umsækjandi um starfsleyfi sem vátryggingamiðlari skal búa yfir þekkingu sem nauðsynleg er til starfans. Umsækjandi telst því aðeins fullnægja kröfum um þekkingu og starfsreynslu uppfylli hann eitt eftirtalinna skilyrða:

  1. Hafi starfað í stjórnunarstöðu samfellt í fjögur ár við miðlun vátrygginga.
  2. Hafi starfað í stjórnunarstöðu samfellt í tvö ár við miðlun vátrygginga og hafi starfað í þrjú ár með vátryggingaumboðsmönnum eða vátryggingamiðlurum eða hjá vátryggingafélögum, enda hafi starfinu fylgt ábyrgð í sambandi við öflun, umsjá eða framkvæmd vátryggingasamninga.
  3. Hafi starfað í stjórnunarstöðu samfellt í eitt ár við miðlun vátrygginga og leggi fram skírteini um að hann hafi hlotið menntun til starfans sem viðurkennd er af stjórnvöldum.
  4. Hafi starfað í stjórnunarstöðu samfellt í fjögur ár í vátryggingafélagi eða annars staðar á sviði vátrygginga.
  5. Leggi fram prófskírteini þess efnis að hann hafi lokið prófi á námskeiði í vátryggingamiðlun hér á landi sem haldið hefur verið á vegum prófnefndar sem skipuð hefur verið af ráðherra.

Til viðbótar við ákvæði 1. mgr. er Fjármálaeftirlitinu heimilt að fullvissa sig um hæfni umsækjanda, m.a. þekkingu hans á íslenskum vátryggingamarkaði.

Með starfi í stjórnunarstöðu skv. 1. tl. - 4. tl. 1. mgr. er átt við starf framkvæmdastjóra, útibússtjóra, aðstoðarframkvæmdastjóra eða starf fulltrúa með lögfullri heimild hafi því fylgt ábyrgð sambærileg þeirri er fylgir stöðu framkvæmdastjóra þess sem hann var fulltrúi fyrir.

Með skírteini í 3. tl. er átt við vottorð um að umsækjandi hafi lokið sambærilegu námskeiði og greinir í 5. tl.

Eigi skulu hafa liðið meira en tíu ár síðan störfum eða námi sem tilgreind eru í 1. tl.-5. tl. 1. mgr. lauk, þegar sótt er um starfsleyfi.

10. gr.

Viðskiptaráðuneytið sendir Fjármálaeftirlitinu umsókn um starfsleyfi til umsagnar. Umsögn Fjármálaeftirlitsins skal send ráðuneytinu innan mánaðar frá móttöku umsóknar og allra gagna sem fylgja eiga umsókn. Séu skilyrði leyfis uppfyllt veitir ráðherra starfsleyfi.

11. gr.

Vátryggingamiðlari er hyggst taka upp nýjan greinaflokk vátrygginga skal sækja um leyfi til viðskiptaráðuneytisins fyrir hinni nýju starfsemi. Í umsókn skal koma fram hvaða greinaflokka er fyrirhugað að taka upp og gögn er sanni að gild starfsábyrgðartrygging sé fyrir hendi. Afgreiðsla umsóknarinnar fer samkvæmt 10. gr.

12. gr.

Standi vátryggingamiðlari ekki fyrir sjálfstæðri starfsemi, eða starfi hann ekki lengur hjá vátryggingamiðlara skal hann skila inn starfsleyfi sínu.

Vátryggingamiðlara sem hyggst skila inn starfsleyfi sínu skv. 1. mgr. er óheimilt að segja upp starfsábyrgðartryggingu fyrr en að fenginni staðfestingu ráðuneytisins á innlögn leyfis. Ráðuneytið skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu um innlögn leyfis. Fjármálaeftirlitið skal skrá afgreiðslu þessa í vátryggingamiðlaraskrá og birta tilkynningu þessa efnis í Lögbirtingablaði.

Óski aðili sem skilað hefur starfsleyfi eftir að hefja starfsemi að nýju fer um þá umsókn samkvæmt ákvæðum 6. gr. og eftir atvikum 8. gr.

Skráning.

13. gr.

Fjármálaeftirlitið skal halda skrá, vátryggingamiðlaraskrá, yfir þá sem leyfi hafa til vátryggingamiðlunar hér á landi. Sá sem fengið hefur starfsleyfi skal þegar í stað skráður í skrána og í aðra opinbera skrá ef fyrirmæli eru um slíkt í lögum.

Vátryggingamiðlari með starfsleyfi á Evrópska efnahagssvæðinu sem hyggst starfa hér á landi skal óska skráningar í vátryggingamiðlaraskrá.

Eftirfarandi atriði skulu skráð:

  1. Nafn, fæðingardagur og ár, kennitala, lögheimili og aðsetur vátryggingamiðlara.
  2. Útgáfudagur starfsleyfis.
  3. Greinaflokkar vátrygginga sem heimilt er að miðla.
  4. Tengsl við einstök vátryggingafélög og félög í eigu þeirra.
  5. Nafn og aðsetur þess vátryggingafélags er veitir lögboðna starfsábyrgðartryggingu og gildistími, vátryggingafjárhæð og eigin áhætta.
  6. Þegar við á nöfn, fæðingardagar og ár, kennitölur og heimili stjórnarmanna og framkvæmdastjóra.
  7. Innlögn starfsleyfis samkvæmt 12. gr.
  8. Afturköllun starfsleyfis samkvæmt 26. gr.

Allar breytingar varðandi atriði sem skráð eru í vátryggingamiðlaraskrá skulu tilkynntar til Fjármálaeftirlitsins eins fljótt og unnt er og eigi síðar en mánuði eftir að þær hafa tekið gildi.

Almenningi skal heimill aðgangur að vátryggingamiðlaraskrá.

14. gr.

Birta skal í Lögbirtingablaði tilkynningar um skráningu í vátryggingamiðlaraskrá og árlega skrá um þá sem skráðir eru.

Verði skráning felld niður skal þegar í stað má nafn leyfishafa úr skránni og tilkynna í Lögbirtingablaði.

Starfshættir.

15. gr.

Vátryggingamiðlari skal sjá til þess að nægileg þekking og starfsreynsla sé fyrir hendi hjá þeim starfsmönnum, launþegum eða verktökum, sem ekki eru vátryggingamiðlarar og eru í þjónustu hans og koma fram fyrir hans hönd við miðlun vátrygginga.

16. gr.

Vátryggingamiðlari skal veita ráðgjöf og aðstoð á hlutlægan hátt um þá valkosti í vátryggingum sem í boði eru á vátryggingamarkaði og samrýmast vátryggingaþörf þeirra sem hann starfar fyrir.

Sé verulegum hluta iðgjaldamagns á einhverju ári miðlað til eins og sama vátryggingafélags skulu Fjármálaeftirlitinu skýrðar ástæður þess.

Skylt er að upplýsa vátryggingataka sem starfað er fyrir um hvers konar tengsl við einstök vátryggingafélög sem áhrif gætu haft á ráðgjöf og aðstoð við vátryggingatakann.

Skilyrði starfsleyfis teljast brostin, sé gert samkomulag við vátryggingafélag er skerðir frelsi til miðlunar til annarra félaga.

17. gr.

Í skriflegum samningi vátryggingamiðlara við þann sem falast eftir vátryggingu skal koma fram í hverju umboð hans felst, hversu víðtækt það er og til hvaða þátta á starfsviði hans það nær. Samningurinn má vera í formi staðlaðs umboðs eða yfirlýsingar. Einnig skal koma fram hvort heimilt er að taka við fjármunum fyrir hönd umbjóðenda og um skil á þeim.

Skylt er að upplýsa þá sem starfað er fyrir um þóknun frá vátryggingafélagi vegna viðskiptanna sé þess óskað. Vátryggingamiðlari má ekki taka við þóknun af neinu tagi frá vátryggingafélagi nema vegna vátryggingasamninga sem komið hefur verið á milli vátryggingafélagsins og vátryggingataka.

Upplýsa skal þá sem starfað er fyrir um það sem í boði er hjá félögum sem miðlað er til, og um valmöguleika almennt á vátryggingamarkaðnum á því sviði vátrygginga sem þjónustu er leitað.

18. gr.

Hafi vátryggingasamningur komist á er vátryggingamiðlara heimilt að taka við iðgjöldum fyrir hönd vátryggingafélags eða fulltrúa þess samkvæmt skriflegu samkomulagi. Í samkomulaginu skal m.a. skýrt kveðið á um skil vátryggingamiðlarans á iðgjöldum til félagsins og tímamörk. Vátryggingamiðlara er skylt að halda fjármunum þessum aðgreindum frá eigin fjármunum. Skulu þeir varðveittir á sérstökum bankareikningi, vörslufjárreikningi. Heimilt er að féð sé varðveitt á fleiri reikningum svo sem með sundurgreiningu á einstök vátryggingafélög eða á annan hátt.

19. gr.

Auglýsingar og gögn ætluð almenningi skulu veita hlutlægar upplýsingar um þá þjónustu sem veitt er og hlutleysis skal gætt gagnvart einstökum vátryggingafélögum. Í þeim má ekkert koma fram sem talist getur í andstöðu við kröfu um sjálfstæði vátryggingamiðlara gagnvart vali á einstökum vátryggingafélögum. Hlutleysis er ekki gætt ef vátryggingamiðlari auglýsir einstök vátryggingafélög.

20. gr.

Vátryggingamiðlari skal gera skriflegan ráðningar- og/eða verksamning við þá sem eru í þjónustu hans eða koma fram fyrir hans hönd. Þar skal kveðið á um réttindi og skyldur aðila þ. á m. um að viðkomandi starfi á ábyrgð og undir stjórn og eftirliti vátryggingamiðlarans. Þess skal gætt að hver sá sem er í þjónustu eða kemur fram fyrir hönd vátryggingamiðlara starfi í fullu samræmi við þær reglur sem gilda um miðlun vátrygginga. Viðkomandi ber að leysa starf sitt af hendi sem góðar venjur í vátryggingaviðskiptum bjóða.

Hver sá sem er í þjónustu eða kemur fram fyrir hönd vátryggingamiðlara skal framvísa skilríkjum við störf sín sem útgefin eru og undirrituð af þeim vátryggingamiðlara sem hann starfar fyrir.

Vátryggingamiðlari skal gera viðeigandi ráðstafanir ef í ljós kemur að sá sem er í hans þjónustu eða kemur fram fyrir hans hönd hefur ekki framfylgt þeim starfsreglum sem fyrir hann eru lagðar.

21. gr.

Þess skal gætt við töku starfsábyrgðartryggingar vegna miðlunar vátrygginga að vátryggingin taki til allra þeirra sem eru í þjónustu eða koma fram fyrir hönd viðkomandi vátryggingamiðlara.

Tilkynningar og skil á gögnum.

22. gr.

Vátryggingamiðlari skal senda Fjármálaeftirlitinu ársreikning endurskoðaðan af löggiltum endurskoðanda eigi síðar en fjórum mánuðum eftir lok reikningsárs. Ársreikningurinn skal undirritaður af vátryggingamiðlara og af stjórn og framkvæmdastjóra þegar um lögaðila er að ræða.

Í skýringum ársreiknings skal greina frá heildarfjárhæð fjármuna sem vátyggingamiðlari varðveitir í árslok fyrir hönd viðskiptaaðila, sbr. 2. mgr. 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi.

23. gr.

Ársreikningi skal fylgja skrá yfir þau vátryggingafélög sem miðlað er til vegna vátryggingaáhættu hér á landi ásamt iðgjaldamagni og þóknun frá hverju félagi vegna vátryggingasamninga sem komið hefur verið á, með skiptingu á greinaflokka vátrygginga. Einnig skal fylgja greinargerð um önnur tengsl við vátryggingafélög.

24. gr.

Vátryggingamiðlari skal þegar í stað tilkynna Fjármálaeftirlitinu verði gerð skaðabótakrafa vegna starfa hans og um efni og fjárhæð kröfunnar.

Eftirlitsgjald.

25. gr.

Þeir sem hafa heimild til miðlunar vátrygginga hér á landi skulu árlega greiða eftirlitsgjald vegna starfsemi sinnar í samræmi við ákvæði laga þar um.

Sérstakar ráðstafanir.

26. gr.

Vanræki vátryggingamiðlari gróflega skyldur sínar, greiði ekki eftirlitsgjald, samrýmist starfsemin ekki hlutverki hans sem vátryggingamiðlara eða séu skilyrði starfsleyfis eða skráningar ekki lengur uppfyllt skal Fjármálaeftirlitið afturkalla starfsleyfi og fella niður skráningu. Þó er heimilt, telji Fjármálaeftirlitið það fullnægjandi, að veita viðvörun eða frest til úrbóta því sem úrskeiðis hefur farið. Ráðherra skal staðfesta afturköllun starfsleyfis innan 7 daga.

Sé skráningarskyld starfsemi rekin án heimildar skal Fjármálaeftirlitið þegar gera ráðstafanir til að slíkri starfsemi verði hætt.

Ýmis ákvæði.

27. gr.

Þeir sem lagt hafa inn starfsleyfi á grundvelli 12. gr. reglugerðar nr. 351/1997 halda óskertum réttindum sínum til þess að fá endurútgefið starfsleyfi þrátt fyrir ákvæði 12. gr. þessarar reglugerðar. Ráðuneytið leitar umsagnar Fjármálaeftirlitsins um framkomna beiðni um endurútgáfu starfsleyfis. Séu skilyrði starfsleyfis uppfyllt skal ráðuneytið endurútgefa starfsleyfið.

28. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 81. gr., 85. gr. og 98. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 60/1994 með síðari breytingum öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um miðlun vátrygginga, nr. 351/1997.

Viðskiptaráðuneytinu, 13. desember 1999.

Finnur Ingólfsson.

Þorgeir Örlygsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.