Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 13. okt. 2023

1062/2008

Reglugerð um mælifræðilegt eftirlit með vatnsmælum.

I. KAFLI Gildissvið og skilgreiningar.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um vatnsmæla, sem eru sölumælar í dreifiveitu. Mælar, sem reglugerð þessi tekur til, skulu uppfylla þær kröfur og sæta því mælifræðilega eftirliti sem kveðið er á um í þessari reglugerð og þeim reglum sem hún vísar til.

Setja má á markað og taka í notkun skv. 1. mgr. EBE-mæla og MID-mæla.

2. gr. Skilgreiningar.

Nota skal eftirfarandi skilgreiningar um vatnsmæla í notkun, sbr. 1. mgr. 1. gr.:

  1. Dreifiveita er fyrirtæki sem hefur leyfi til dreifingar heits og kalds vatns á afmörkuðu svæði.
  2. EA (European co-operation for Accreditation) eru Evrópusamtök um faggildingu sbr. lög nr. 24/2006, um faggildingu o.fl.
  3. EBE-sannprófun er frumsannprófun í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 129/1994, um mælitæki og aðferðir við mælifræðilegt eftirlit.
  4. EBE-gerðarviðurkenning er gerðarviðurkenning í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 129/1994, um mælitæki og aðferðir við mælifræðilegt eftirlit.
  5. EBE-mælar eru vatnsmælar sem hafa gilda EBE-gerðarviðurkenningu, bera rétt merki þar um og eru innsiglaðir sbr. reglugerð nr. 129/1994, um mælitæki og aðferðir við mælifræðilegt eftirlit.
  6. Hámarksrennsli (Qmax) er mesta rennsli sem EBE-mælir á að geta staðist í takmarkaðan tíma án þess að skemmast og án þess að fara yfir mestu leyfðu skekkju og heimiluð hámarksgildi fyrir þrýstingstap.
  7. Lágmarksrennsli (Qmin) fyrir EBE-mæli er ákvarðað sem fall af Qn og við það mega mælingar hans ekki fara yfir mestu leyfðu skekkju og (Q1) fyrir MID-mæla er minnsta rennsli þar sem mælirinn gefur vísanir sem uppfylla kröfur varðandi mestu leyfðu skekkju.
  8. Markarennsli (Qt) er það rennsli sem skilur að efra og neðra sviðið milli Qmax og Qmin fyrir EBE-mæli og við það rennsli skiptir um mestu leyfðu skekkju hans.
  9. Málrennsli (Qn) jafngildir helmingi af hámarksrennsli, Qmax fyrir EBE-mæli. Það er gefið upp í rúmmetrum á klukkustund og notað til að auðkenna EBE-mæli. Við málrennsli, Qn, verður mælirinn að virka við eðlilega notkun, þ.e. bæði við samfellt rennsli og ósamfellt án þess að farið sé yfir mestu leyfðu skekkju hans.
  10. Millistigsrennsli (Q2) fyrir MID-mæla er rennslisgildi á milli varanlegs rennslis og lágmarksrennslis þar sem rennslissviðið skiptist í tvö svæði, efra svæði og neðra svæði. Á hvoru svæði er mesta leyfða skekkja sem er einkennandi fyrir það.
  11. Mesta leyfða skekkja er hæsta tölugildi fyrir skekkju sem er leyfð samkvæmt þessari reglugerð við löggildingu vatnsmælis.
  12. MID-mælar eru vatnsmælar sem ekki hafa fullgilda EBE-gerðarviðurkenningu fyrir 30. október 2006 og sem falla undir ákvæði í viðauka MI-001 sbr. reglugerð nr. 465/2007, um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22/EB, um mælitæki og uppfylla viðeigandi kröfur, bera réttar merkingar þar um og eru innsiglaðir. Samræmismati MID-mæla skal lokið áður en þeir eru teknir í notkun.
  13. Mælitækjabirgir er framleiðandi, viðurkenndur fulltrúi, seljandi eða dreifingaraðili á vatnsmælum sem falla undir 1. mgr. 1. gr., sbr. 8. gr. laga nr. 91/2006.
  14. Sölumælir er vatnsmælir sem notaður er til uppgjörs á sölu vatns.
  15. Varanlegt rennsli (Q3) fyrir MID-mæla er mesta rennsli þar sem vatnsmælir starfar á fullnægjandi hátt við eðlileg notkunarskilyrði, þ.e. við stöðug eða ósamfelld skilyrði.
  16. Vatnsmælir er tæki hannað til að mæla, geyma og sýna rúmmál vatns við mælingarskilyrði, sem fer í gegnum mælingarbreytinn. Vatnsmælar samkvæmt þessari reglugerð eru EBE-mælar sem skiptast í kaldavatns- og heitavatnsmæla, MID-mælar og eldri mælagerðir sbr. 3. gr.
  17. Yfirálagsrennsli (Q4) fyrir MID-mæla er mesta rennsli þar sem vatnsmælir starfar á fullnægjandi hátt í stuttan tíma án þess að skemmast.

II. KAFLI Eldri mælar, löggilding, merking mæla.

3. gr. Áframhaldandi notkun eldri mælagerða.

Nota má til verkefna skv. 1. mgr. 1. gr. mæla sem ekki falla undir mælagerðir skv. 2. mgr. 1. gr. og þegar hafa verið teknir í notkun, meðan þeir mæla rétt sbr. ákvæði IV. og V. kafla.

Eldri mælagerðir skulu standast sömu nákvæmniskröfur og EBE-mælar sbr. IV. kafla.

4. gr. Fyrsta notkun og merking.

EBE-mælar með EBE-sannprófun, réttar merkingar og innsigli og MID-mælar, sem samræmismati er lokið fyrir, eru rétt merktir og innsiglaðir teljast hafa löggildingu til fyrstu notkunar.

Auk þess skal dreifiveita sjá til þess að EBE-mælar og MID-mælar beri sérstakt merki fyrir nýja veitumæla sbr. reglugerð nr. 955/2006, um löggildingartákn og merkingar eftirlitsskyldra mælitækja.

Neytendur skulu upplýstir um löggildingarstöðu mælis sem þeir greiða eftir og hvort þeir falla undir innra eftirlit, á reikningi eða á annan aðgengilegan hátt.

III. KAFLI Um ábyrgð aðila.

5. gr. Kröfur til birgja.

Mælitækjabirgir vatnsmæla má ekki markaðssetja, selja eða afhenda vatnsmæla til notkunar samkvæmt 1. mgr. 1. gr. nema þeir uppfylli ákvæði 2. mgr. 1. gr., EBE-mælar hafi EBE-sannprófun og samræmismati sé lokið fyrir MID-mæla.

Mælitækjabirgir vatnsmæla skal upplýsa kaupanda um rennslissvið, hitastigssvið og aðrar kennistærðir mælanna og hvort ætla megi að þeir henti til mælinga á fyrirhugaðri notkun.

6. gr. Kröfur til dreifiveitna.

Dreifiveita ber ábyrgð á mælingum á dreifiveitusvæði sínu. Í því felst uppsetning, rekstur og viðhald vatnsmæla, ennfremur skulu dreifiveitur tryggja að vatnsmælar til uppgjörs vatnsnotkunar uppfylli kröfur þessarar reglugerðar. Dreifiveita getur falið þjónustufyrirtæki mælinga að annast mælingar og umsýslu vatnsmæla.

Dreifiveita skal hlíta skilyrðum framleiðanda um aðstæður fyrir notkun og leyfð rekstrarskilyrði sem mælarnir eru framleiddir fyrir og má aðeins setja upp mæla sem uppfylla kröfur 2. mgr. 1. gr.

IV. KAFLI Kröfur til vatnsmæla í notkun.

7. gr. Mestu leyfðu skekkjur.

Mesta leyfða skekkja EBE-mæla á neðra rennslissviði, frá og með Qmin að Qt er ±5%.

Mesta leyfða skekkja EBE-mæla á efra rennslissviði frá Qt til Qmax, að báðum meðtöldum, er ±2% fyrir kaldavatnsmæla en ±3% fyrir heitavatnsmæla.

Mesta leyfða skekkja MID-mæla á bilinu frá og með lágmarksrennsli Q1 að millistigsrennsli Q2 er 5% fyrir vatn sama hvert hitastig þess er.

Mesta leyfða skekkja MID-mæla á bilinu frá og með millistigsrennsli Q2 að yfirálagsrennsli Q4 er 2% fyrir vatn sem er ≤ 30°C heitt en 3% fyrir vatn sem er > 30°C heitt.

8. gr. Aðrar kröfur.

Í hverri prófun verður vatnsmagnið, sem fer í gegnum EBE-mæli, að vera nægilega mikið til þess að vísirinn eða keflið sem sýnir skerðingargildið fari einn eða fleiri heila snúninga þannig að áhrif sveifluskekkju sem kann að vera fyrir hendi séu hverfandi.

Ef í ljós kemur við prófun sbr. 11. gr. að frávik vatnsmælis eru öll á einn og sama veg mega þau ekki vera öll umfram hálfa mestu leyfðu skekkju, að öðrum kosti þarf að endurstilla mælinn.

Nákvæmnisprófun fyrir EBE-heitavatnsmæla er venjulega gerð með heitu vatni við 50 ±5°C, en heimilt er að prófunin sé gerð með köldu vatni sé það í samræmi við ákvæði vottorðsins um EBE-gerðarviðurkenningu. Þar sem svo háttar til fer prófunin fram í samræmi við þá tilhögun sem mælt er fyrir um í vottorðinu.

Álestrarbúnaður vatnsmælis skal sýna skráningu innan skekkjumarka vegna tveggja álestra, í samræmi við magnið sem fer gegnum mælinn við prófun.

9. gr. Mælar sem er hafnað.

Ef í ljós kemur að vatnsmælar uppfylla ekki kröfur þessa kafla skulu þeir teknir úr notkun sbr. þó 15. gr.

V. KAFLI Reglur um löggildingar vatnsmæla í notkun.

10. gr. Skoðunaraðferðir.

Löggildingar vatnsmæla í notkun skulu annað hvort byggjast á heildarskoðun eða á úrtaksskoðun. Löggildingar eru framkvæmdar af aðila sem annast löggildingar mælitækja í umboði Neytendastofu sbr. reglugerð nr. 956/2006, sjá þó 16. gr. um innra eftirlit í stað löggildinga.

Við heildarskoðun er hver einstakur vatnsmælir löggiltur fyrir lok ársins, þegar gildistími hans rennur út. Við úrtaksskoðun er safn mæla, sem hlýtur samþykki, löggilt á grundvelli úrtaks sbr. ákvæði 13. - 15. gr.

11. gr. Prófunarkröfur.

Vatnsmælar skulu prófaðir fyrir nákvæmni við að minnsta kosti þrenns konar rennsli.

Fyrir EBE-mæla skal prófað við:

  1. milli 0,9 Qmax og Qmax;
  2. milli Qt og 1,1 Qt;
  3. milli Qmin og 1,1 Qmin.

Fyrir MID-mæla skal prófað við:

  1. milli 0,9 Q4 og Q4;
  2. milli Q2 og 1,1 Q2;
  3. milli Q1 og 1,1 Q1.

Fara skal eftir fyrirmælum framleiðenda um vatnsþrýsting og aðrar aðstæður við prófanir vatnsmæla og hitastig og rennsli skal vera í samræmi við ákvæði þessarar reglugerðar.

Lágmarksmagn mælds magns við prófun skal vera nægjanlegt með hliðsjón af óvissu við mælingar.

Flutningur vatnsmælis frá prófunarstofu á notkunarstað skal uppfylla kröfur gæðakerfis um flutning. Uppsetning vatnsmælis skal vera í samræmi við ákvæði í reglugerðum, stöðlum og fyrirmæli framleiðanda um umhverfisaðstæður og frágang.

12. gr. Gildistímar löggildinga.

Fyrsta skoðun fyrir vatnsmæla skal vera eigi síðar en sem hér segir:

  1. Á 9. ári frá framleiðsluárinu fyrir nýja aflfræðilega kaldavatnsmæla, sem eru fyrir málrennsli allt að 2,5 m³/h.
  2. Á 7. ári frá framleiðsluárinu fyrir nýja aflfræðilega kaldavatnsmæla, sem eru fyrir málrennsli frá og með 2,5 m³/h.
  3. Á 5. ári frá framleiðsluárinu fyrir nýja aflfræðilega heitavatnsmæla.
  4. Á 12. ári frá framleiðsluárinu fyrir nýja rafeindavatnsmæla.

Ef unnt er að sýna fram á með úrtaksprófun að vatnsmælar í notkun standist settar kröfur, sem um mælana gilda, er heimilt að framlengja gildistíma viðkomandi mælasafns í hvert sinn um 5 ár með þeim fyrirvara að efnainnihald vatns getur spillt mælum á styttri tíma.

Fyrir alla mæla sem ekki hefur farið fram skoðun á skal fyrsta skoðun framkvæmd eigi síðar en árið 2010.

Vatnsmælar sem gert hefur verið við, eða sem innsigli hefur verið rofið á, skulu löggiltir og innsiglaðir, áður en þeir eru teknir aftur í notkun.

13. gr. Skilgreining safna og reglur um úrtak.

Heimilt er að flokka mæla saman í safn þótt þeir tilheyri fleiri en einni dreifiveitu.

Beita má úrtaksskoðunum á söfn þegar uppfyllt eru eftirfarandi skilyrði:

  1. Í safninu eru einsleitir mælar og því dæmigerðir fyrir safnið.
  2. Mælar í safni skulu hafa sama gerðarauðkenni.
  3. Framleiðsluár allra mæla í safninu skal vera innan tímabils sem ekki er lengra en 3 ár. Viðmiðun fyrir tíma skoðana skal vera miðja tímabilsins.

Hafi verið gert við vatnsmæli skal eftir það miðað við ár viðgerðarinnar í stað framleiðsluárs.

Taka skal úrtak úr safni á slíkan hátt að jafnar líkur séu fyrir að hver einstakur mælir í safninu verði valinn. Nota skal slembitöflu eða annað reiknilíkan sem tryggir slembival. Ekki er heimilt að bæta mælum við safn eftir að það hefur verið samþykkt til úrtaksskoðunar.

Velja skal um 10% aukamæla í úrtak sem hafa má til vara, sbr. töflur í 15. gr.

14. gr. Notkun varamæla.

Vatnsmælar sem valdir eru í úrtak skulu vera í eðlilegu vinnsluástandi og vera dæmigerðir fyrir safnið. Af því leiðir að fjarlægja má mæli úr úrtakinu hafi hann einhvern eftirfarandi galla:

  1. Átt hefur verið við vatnsmælinn, jafnvel unnar á honum skemmdir.
  2. Vatnsmælir er bilaður eða skemmdur.
  3. Vatnsmælirinn á ekki heima í þessu safni.

Ef ekki er mögulegt að fá leyfi notanda til að taka niður vatnsmæli á tilsettum tíma er heimilt að fjarlægja hann úr úrtakinu.

Í slíkum tilvikum skal ekki prófa mælinn, heldur er honum skipt út fyrir varamæli.

15. gr. Úrtaksfyrirmæli.

Aðeins er hægt að nota úrtaksskoðanir fyrir söfn með 9 eða fleiri mæla.

Velja skal mæla í úrtaksskoðun fyrir söfn með milli 9 og 150 mæla eftir staðli ISO 2859-1 með einfaldri úrtaksskoðun fyrir 2,5% samþykktarmörk (AQL) og skoðunarstig II skv. töflu fyrir lítil söfn í þessari grein.

Velja skal mæla í úrtaksskoðun fyrir söfn með 151 eða fleiri mæla eftir staðli ISO 2859-2 með tvöfaldri úrtaksskoðun fyrir 8% gæðastig (LQ) skv. töflu fyrir stærri söfn í þessari grein.

Þegar safni er hafnað á grundvelli úrtaksskoðunar skal skipta öllu safninu út innan árs. Mæla sem hafa verið prófaðir og standast kröfur má þó nota aftur.

Lítil söfn, einföld úrtaksskoðun.

Stærð safns Stærð úrtaks Viðmið fyrir samþykki Viðmið fyrir höfnun Vara-mælar
9 - 15 3 0 1 1
16 - 25 5 0 1 1
26 - 50 8 0 1 1
51 - 90 13 1 2 2
91 - 150 20 1 2 2

Stærri söfn, tvöföld úrtaksskoðun.

Stærð safns Úrtak Stærð úrtaks Saman-lögð stærð úrtaks Fjöldi ófullnægjandi
mæla *)
Viðmið
fyrir
samþykki
Viðmið
fyrir
höfnun
Vara-
mælar
151 til 1.200 fyrra síðara 32
32
32
64
0
1
2
2
6
6
1.201 til 3.200 fyrra síðara 50
50
50
100
1
4
4
5
10
10
3.201 til 10.000 fyrra síðara 80
80
80
160
2
6
5
7
16
16
10.001 til 35.000 fyrra síðara 125
125
125
250
5
12
9
13
25
25

*) Í línunum fyrir "síðara" úrtak á fjöldi ófullnægjandi mæla við samanlagða úrtakið.

VI. KAFLI Innra eftirlit, löggildingaraðilar og prófunarstofur.

16. gr. Almenn skilyrði um innra eftirlit.

Heimilt er að nota innra eftirlit í stað löggildinga að fengnu samþykki Neytendastofu samkvæmt ákvæðum þessarar reglugerðar sbr. 14. gr. laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

Innra eftirlit skal tryggja réttar mælingar og að mælaskipti, úrtök og prófanir fari fram á réttum tíma og að það hlutfall mæla sem ætla má að komið sé út fyrir leyfileg skekkjumörk skv. IV. kafla sé ásættanlegt.

Prófanir og úrtaksskoðanir mæla undir innra eftirliti skulu vera eftir ákvæðum V. kafla og prófanirnar skulu gerðar af prófunarstofu sem uppfyllir ákvæði 20. gr.

Við innra eftirlit í stað löggildinga skal nota upplýsingakerfi sem veitir yfirlit um alla vatnsmæla sem falla undir gildissvið þessarar reglugerðar. Veita skal neytendum og Neytendastofu viðkomandi upplýsingar um mælana úr þessu kerfi.

Innra eftirlitskerfið skal vera skráð að fullu í eftirlits- eða gæðahandbók dreifiveitu.

17. gr. Umsókn og málsmeðferð fyrir innra eftirlit.

Dreifiveitur og þjónustufyrirtæki mælinga geta óskað eftir samþykki Neytendastofu fyrir því að gæðakerfi eða önnur formleg tilhögun innra eftirlits með vatnsmælum og rekjanleika mæligilda þeirra verði tekin gild í stað löggildingar.

Umsókn skal fylgja:

  1. Eftirlits- eða gæðahandbók, um kerfið fyrir innra eftirlit, sem byggir á ÍST ISO 9001:2008 eftir því sem við getur átt.
  2. Samningur dreifiveitu við faggilta skoðunarstofu um forskoðun á viðkomandi innra eftirliti.
  3. Yfirlit um rekstur kerfisins og aðrar upplýsingar, sem Neytendastofa telur nauðsynlegar fyrir samþykki, komi þær ekki fram í eftirlits- eða gæðahandbók.

Kerfi fyrir innra eftirlit skal fullnægja öllum ákvæðum laga og þessarar reglugerðar, svo og reglum sem Neytendastofa setur og tryggja eiga réttar mælingar.

Neytendastofa skal tilkynna umsækjanda að forskoðun faggiltrar skoðunarstofu megi fara fram, þegar fullnægjandi umsókn og fylgigögn liggja fyrir.

Skoðunarstofan annast skoðun og úttekt á kerfi fyrir innra eftirlit á grundvelli reglna sem Neytendastofa setur og fram koma í skoðunarhandbók Neytendastofu fyrir innra eftirlit.

Í umsóknarferli um viðurkenningu á innra eftirliti er umsækjanda skylt að veita allar upplýsingar um tilhögun innra eftirlits, eftirlitshandbók og önnur gögn um rekstur kerfisins og veita allar nauðsynlegar upplýsingar sem þarf til að leggja mat á og gefa ábendingar um úrbætur á fyrirhuguðu innra eftirliti.

Neytendastofa tekur ákvörðun um samþykki á grundvelli álitsgerðar frá faggiltri skoðunarstofu og þeirra úrbóta sem umsækjandi hefur gert, þegar það á við. Uppfylli umsækjandi um innra eftirlit öll skilyrði sem Neytendastofa ákveður, veitir hún leyfi til að notað verði innra eftirlit í stað löggildinga gegn greiðslu á leyfisgjaldi samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra setur.

Synji Neytendastofa um samþykki skal það rökstutt skriflega.

Uppfylli innra eftirlit ekki lengur skilyrðin skal Neytendastofa afturkalla leyfi til innra eftirlits með vatnsmælum sbr. einnig ákvæði 18. gr.

18. gr. Árlegt eftirlit og skýrslugerð.

Dreifiveita eða þjónustufyrirtæki mælinga, sem fengið hefur samþykki Neytendastofu til innra eftirlits, sbr. 16. og 17. gr. skal hafa samning við faggilta skoðunarstofu um árlegt eftirlit í samræmi við skoðunarhandbók Neytendastofu svo og sérstakar skoðanir ef það á við. Faggilt skoðunarstofa skal gefa Neytendastofu skýrslu árlega og eigi síðar en 1. mars fyrir síðastiliðið ár, um allt eftirlit og skoðanir, niðurstöður skoðana og ákvarðanir sem hafa verið teknar um mæla.

Skýrslan skal gefa tölfræðilegt yfirlit um allar gerðir bilana, galla, skekkjur og rofin innsigli mæla. Auk þess skal skrá upplýsingar um rangar tengingar og önnur frávik. Að öðru leyti skal form, flokkun frávika og innihald skýrslunnar vera eins og Neytendastofa ákveður.

Neytendastofa staðfestir eigi síðar en 1. júní framlengingu á gildistíma heimildar til innra eftirlits gegn greiðslu árlegs eftirlitsgjalds samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra setur.

19. gr. Löggildingaraðilar.

Aðilar sem annast löggildingar vatnsmæla í umboði Neytendastofu skulu vera óháðir dreifiveitum og þeim sem annast mæla fyrir hönd þeirra sbr. 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og skulu hafa hæfni sem staðfest er með faggildingu sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 956/2006, um starfshætti þeirra sem annast löggildingu mælitækja í umboði Neytendastofu.

Löggildingaraðilar meta söfn, ráða vali úrtaks til prófunar og taka ákvörðun um hvort safni er hafnað eða samþykkt og fái löggildingu fyrir dreifiveitur, sem ekki hafa innra eftirlit.

20. gr. Prófunarstofur.

Prófunarstofur sem prófa vatnsmæla fyrir dreifiveitur eftir þessum reglum skulu vera faggiltar til prófana skv. IV. og V. kafla af faggildingaraðila, sem er aðili að marghliða samkomulagi EA á sviði prófunarstofa.

Prófunarstofa má vera löggildingaraðili en skal vera óháð dreifiveitum og þeim sem annast mæla fyrir hönd þeirra sbr. 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og skal vera óháð þeim sem bera ábyrgð á eftirliti með mælunum og ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli niðurstaðna prófana.

VII. KAFLI Eftirlit, markaðseftirlit og gjöld.

21. gr. Hlutverk Neytendastofu.

Neytendastofa hefur eftirlit með því að farið sé eftir ákvæðum þessarar reglugerðar og annast markaðseftirlit í samræmi við viðauka við reglugerð nr. 465/2007, um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22/EB, um mælitæki og ákvæði laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

22. gr. Um framkvæmd eftirlits.

Um framkvæmd eftirlits með mælitækjum skv. þessari reglugerð, fer eftir ákvæðum laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

23. gr. Gjöld vegna innra eftirlits.

Neytendastofa innheimtir umsóknargjald, leyfisgjald og árlegt eftirlitsgjald vegna innra eftirlits sbr. 17. og 18. gr. samkvæmt gjaldskrá sem sett er í samræmi við ákvæði laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

VIII. KAFLI Áfrýjun og kæruleiðir.

24. gr. Áfrýjun og kæruleiðir.

Ákvörðunum sem Neytendastofa tekur á grundvelli reglugerðar þessarar verður skotið til áfrýjunarnefndar neytendamála sem starfar á grundvelli 4. gr. laga nr. 62/2005, um Neytendastofu og talsmann neytenda.

Ákvörðun Neytendastofu verður ekki borin undir dómstóla fyrr en úrskurður áfrýjunarnefndar neytendamála liggur fyrir.

IX. KAFLI Viðurlög.

25. gr. Viðurlög.

Sá sem af ásetningi eða gáleysi brýtur gegn ákvæðum reglugerðar þessarar skal sæta fésektum eða fangelsi allt að sex mánuðum ef sakir eru miklar.

Þeim sem gefur rangar eða villandi upplýsingar í tengslum við ákvarðanir eða upplýsir ekki um atriði sem skipta máli til að upplýsa mál samkvæmt þessari reglugerð skal refsað með sektum nema þyngri refsing liggi við lögum samkvæmt.

Refsa skal þeim sem brjóta gegn ákvæðum III. og VI. kafla með sektum.

Sekt samkvæmt reglugerð þessari er unnt að leggja á lögaðila í samræmi við 3. mgr. 41. gr. laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

X. KAFLI Gildistaka, aðlögun o.fl.

26. gr. Gildistaka og aðlögun.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 13. gr. laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn og öðlast þegar gildi.

Samtímis falla úr gildi reglugerðir nr. 615/2000, um heitavatnsmæla, nr. 604/2000, um löggildingu heitavatnsmæla, nr. 139/1994, um rennslismæla fyrir kalt vatn, nr. 785/2002, um breytingu á reglugerð nr. 139/1994 og reglugerð nr. 792/2002, um löggildingu kaldavatnsmæla.

Þá vatnsmæla sem voru teknir í notkun fyrir gildistöku reglugerðar nr. 129/1994, um mælitæki og aðferðir við mælifræðilegt eftirlit sem og mælitæki sem hafa löglega verið tekin í notkun samkvæmt gildandi reglugerðum á hverjum tíma frá 1994 er heimilt að nota áfram og endurlöggilda ef þeir standast löggildingarprófun.

Neytendastofa skal leggja mat á gildi og árangur eftirlits skv. þessari reglugerð ekki sjaldnar en á fimm ára fresti og meta þörf fyrir endurskoðun eftirlitsreglna.

Ákvæði til bráðabirgða.

Heimilt er að setja EBE-mæla á markað og taka þá í notkun skv. 1. mgr. 1. gr., þangað til gerðarviðurkenning þessara vatnsmæla fellur úr gildi eða ef um er að ræða gerðarviðurkenningu með ótakmarkaðan gildistíma að hámarki til 30. október 2016.

Þrátt fyrir ákvæði 20. gr. um kröfur til faggildingaraðila, verður ekki gerð krafa um aðild að marghliða samkomulagi EA fyrr en 1. janúar 2011.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 12. gr., um gildistíma löggildinga, er dreifiveitu heimilt að óska eftir tímabundinni undanþágu hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun frá kröfum um endurlöggildingu mæla, enda liggi fyrir, útfærð og tímasett endurnýjunaráætlun fyrir útskipti mæla þar sem nýir snjallmælar koma í stað eldri mæla eða mælasafns. Dreifiveita skal í slíku tilviki upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um áform sín og skila tímasettri áætlun um útskipti mæla. Forsenda undanþágu er að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi fengið öll gögn og farið yfir áform viðkomandi veitu um útskipti mæla fyrir snjallmæla. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að fara fram á viðbótargögn eða óska nánari upplýsinga telji hún það nauðsynlegt.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að afturkalla undanþágu skv. 1. mgr. komi í ljós að forsendur fyrir henni séu brostnar eða að ekki hafi verið unnið eftir endurnýjunaráætlun fyrir útskipti mæla.

Veiti Húsnæðis- og mannvirkjastofnun dreifiveitu undanþágu skv. 1. mgr. skal dreifiveita upplýsa viðskiptavini sína um áform sín um útskipti mæla og snjallmælavæðingu, og gefa viðskiptavinum kost á að skipt verði um mæli, sé þess óskað, í samræmi við tímamörk skv. 12. gr., óháð áformum dreifiveitunnar um uppsetningu snjallmæla.

Synji Húsnæðis- og mannvirkjastofnun beiðni um undanþágu skv. 1. mgr. skal synjun rökstudd og dreifiveitu veitt færi á að gera úrbætur á umsókn eftir atvikum.

Heimild til að veita undanþágu skv. 1. mgr. fellur úr gildi 31. desember 2028. Tryggja skal að löggildingarferli hvers mælis eða mælasafns verði aldrei frestað um meira en sex ár.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.