Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

761/2025

Um breytingu á reglugerð um húsnæðisbætur, nr. 1200/2016. REGLUGERÐ um breytingu á reglugerð um húsnæðisbætur, nr. 1200/2016.

1. gr.

Tafla í 14. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Fjöldi heimilismanna Frítekjumörk m.v. árstekjur
1 5.977.276 kr.
2 7.949.777 kr.
3 9.264.778 kr.
4 10.041.824 kr.
5 10.878.642 kr.
6 eða fleiri 11.715.461 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 4. mgr. 17. gr., sbr. 4. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr., laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, öðlast gildi 1. september 2025 og gildir um húsnæðisbætur sem greiddar eru vegna leigu íbúðarhúsnæðis frá og með þeim degi.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 18. júní 2025.

Inga Sæland.

Ásdís Halla Bragadóttir.

B deild - Útgáfudagur: 3. júlí 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica