Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

10/1989

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 432/1987 um starfsheiti og starfsréttindi matvælafræðinga með breytingu nr. 163/1988. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði er heiti ákvæði til bráðabirgða og orðist svo:

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. er ráðherra heimilt til ársloka 1989 að fenginni umsögn sömu aðila og um getur í 1. gr., að veita starfsleyfi einstaklingum, sem gegndu störfum matarfræðinga, sbr. 3. gr. við gildistöku reglugerðar nr. 432/1987, enda sé menntun þeirra og starfsreynsla jafngild því sem áskilið er í 2. gr.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. lögum nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 5. janúar 1989.

 

Guðmundur Bjarnason.

Ingimar Sigurðsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica