1. gr.
Tafla í 14. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
| Fjöldi heimilismanna | Frítekjumörk m.v. árstekjur |
| 1 | 5.690.772 kr. |
| 2 | 7.526.505 kr. |
| 3 | 8.811.518 kr. |
| 4 eða fleiri | 9.545.812 kr. |
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 4. mgr. 17. gr., sbr. 4. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, öðlast gildi 1. janúar 2024 og gildir um húsnæðisbætur sem greiddar eru vegna leigu íbúðarhúsnæðis frá og með þeim degi.
Innviðaráðuneytinu, 21. desember 2023.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Hermann Sæmundsson.