Heilbrigðisráðuneyti

898/2023

Reglugerð um þjónustu sérgreinalækna utan samninga.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Í reglugerð þessari er kveðið á um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga almannatrygginga í kostnaði sjúkratryggðra vegna þjónustuþátta sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem ekki hefur verið samið um.

Reglugerðin tekur til nauðsynlegrar þjónustu sérgreinalækna sem reka eigin starfsstofur utan sjúkrahúsa þegar þeir veita þjónustu einstaklingum sem sjúkratryggðir eru samkvæmt lögum um sjúkra­tryggingar.

Þátttaka sjúkratrygginga í kostnaði við þjónustu sérgreinalækna tekur til þeirra verka sem til­greind eru í gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands. Sjúkratryggingar taka ekki til fegrunaraðgerða, sbr. gildandi reglugerð um lýtalækningar sem sjúkratryggingar almannatrygginga taka til. Þá taka sjúkra­tryggingar ekki til tiltekinnar þjónustu sérfræðinga í augnlækningum, sbr. reglugerð um greiðslu­þátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.

Sjúkratryggingar Íslands annast framkvæmd reglugerðar þessarar.

 

2. gr.

Sjúkratryggðir.

Sjúkratryggður er sá sem er búsettur á Íslandi og hefur verið það a.m.k. síðustu sex mánuðina áður en bóta er óskað úr sjúkratryggingum að uppfylltum öðrum skilyrðum laga um sjúkra­trygg­ingar, nema annað leiði af milliríkjasamningum, sbr. 10. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkra­tryggingar. Með búsetu er átt við lögheimili í skilningi laga nr. 80/2018 um lögheimili og aðsetur. Að öðru leyti gilda um það hverjir teljist sjúkratryggðir hér á landi 10.-16. gr. laga um sjúkra­tryggingar.

Sjúkratryggingar Íslands ákvarða hvort einstaklingur teljist sjúkratryggður.

 

3. gr.

Gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands.

Sjúkratryggingum Íslands er heimilt að taka þátt í kostnaði vegna tiltekinna læknisverka sérgreina­lækna, sem samningur sjúkratrygginga við sérgreinalækna tekur ekki til, á grundvelli gjald­skrár sem stofnunin gefur út, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um sjúkratryggingar. Heimildin gildir frá 1. september 2023 til og með 31. ágúst 2024 og er háð því að rekstur læknis uppfylli faglegar kröfur og önnur skilyrði í lögum, sbr. lög um heilbrigðisþjónustu, lög um sjúkratryggingar og lög um land­lækni. Sjúkratryggingar Íslands ákvarða hvort læknir uppfylli kröfur og framangreind skilyrði.

Sjúkratryggingar Íslands greiða 10% af heildarverði samkvæmt gjaldskránni. Sjúkratryggingar greiða ekki önnur eða hærri gjöld en kveðið er á um í gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands. Þau gjöld mynda ekki afsláttarstofn skv. 4. gr. gildandi reglugerðar um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.

 

4. gr.

Rafræn skil sérgreinalækna.

Til að sjúkratryggðir njóti réttinda samkvæmt þessari grein ber lækni að skila reiknings­upplýs­ingum til Sjúkratrygginga Íslands á því formi sem stofnunin ákveður. Reikningsupplýsingar skulu sendar með rafrænum hætti strax að lokinni komu eða eins fljótt og unnt er. Þar skulu m.a. koma fram upplýsingar um heildarkostnað og greiðslur sjúkratryggðs.

Við sendingu rafrænna reikninga ber að fara eftir færslulýsingu sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt.

 

5. gr.

Upplýsingar til heilsugæslulæknis eða heimilislæknis.

Sérgreinalæknir skal senda heilsugæslulækni eða heimilislækni sjúkratryggðs læknabréf um sjúk­dóms­greiningu og veitta meðferð.

Komi sjúkratryggður til sérgreinalæknis fyrir milligöngu annars sérgreinalæknis skal síðari sér­greina­læknirinn ávallt senda læknabréf til heilsugæslulæknis eða heimilislæknis sjúkratryggðs og þess sérgreinalæknis sem hafði milligöngu um samskiptin.

 

6. gr.

Eftirlit.

Læknum Sjúkratrygginga Íslands eða hlutaðeigandi heilbrigðisstarfsmönnum, þegar það á við, skal heimilt að skoða þann hluta sjúkraskrár sem nauðsynlegt er vegna eftirlits með reikningsgerð á hendur stofnuninni. Jafnframt er sérgreinalæknum skylt að veita læknum, eða eftir atvikum hlutað­eigandi heilbrigðisstarfsmönnum Sjúkratrygginga Íslands, þær upplýsingar og gögn sem stofnuninni eru nauðsynleg vegna eftirlitshlutverks hennar, sbr. 45. og 46. gr. laga um sjúkratryggingar.

 

7. gr.

Stjórnsýslukærur.

Rísi ágreiningur um grundvöll, skilyrði eða upphæð kostnaðarþátttöku sjúkratryggðs samkvæmt reglugerð þessari er heimilt að kæra ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands til úrskurðarnefndar velferðar­mála, sbr. 36. gr. laga um sjúkratryggingar.

 

8. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 19. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkra­tryggingar, nr. 112/2008, sbr. einnig 29. gr. með síðari breytingum, og 2. mgr. 6. gr. laga um sjúkra­skrár, nr. 55/2009, öðlast gildi 1. september 2023. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1255/2018, um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samn­ings við Sjúkratryggingar Íslands. Þá fellur brott reglugerð nr. 1256/2018, um endur­greiðslu kostnaðar fyrir einnota áhöld og efni vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreina­lækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 29. ágúst 2023.

 

Willum Þór Þórsson.

Helga Sif Friðjónsdóttir.

Reglugerðir sem falla brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica