Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

163/1988

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 423/1987, um starfsheiti og starfsréttindi matvælafræðinga. - Brottfallin

1. gr.

2. gr. orðist svo:

Starfsleyfi skv. 1. gr. skal veita þeim sem lokið hafa B.S. prófi í matvælafræðum frá Háskóla Íslands. Ráðherra getur að fenginni umsögn landlæknis, matvæla- og næringa­fræðingafélags Íslands og þeirrar deildar Háskóla Íslands, þar sem matvælafræði er kennd, veitt þeim starfsleyfi, ótakmarkað eða tímabundi, sem lokið hafa sambærilegu háskólaprófi erlendis. Í þeim tilvikum skal umsækjandi sanna þekkingu sína í íslenskri matvælalöggjöf og geta mælt og ritað á íslenskt mál, sé um erlenda ríkisborgara að ræða.

 

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkv. lögum nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 16. mars 1988.

 

Guðmundur Bjarnason.

Ingimar Sigurðsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica