Heilbrigðisráðuneyti

1414/2022

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra.

1. gr.

Í stað fjárhæðarinnar "1.313 kr." í 1. málsl. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: 1.434 kr.

 

2. gr.

Í stað "1. janúar 2022 til og með 31. desember 2022" í 3. málsl. 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. janúar 2023 til og með 31. desember 2023.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra, með síðari breytingum, 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, með síðari breyt­ingum, öðlast gildi 1. janúar 2023.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 29. nóvember 2022.

 

Willum Þór Þórsson.

Guðlaug Einarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica