Heilbrigðisráðuneyti

478/2022

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 427/2013, um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðisþjónustu.

1. gr.

Eftir 1. málsl. e-liðar 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur:

Í þeim tilvikum sem hjálpartæki eru greidd að hluta af Sjúkratryggingum Íslands ber viðkom­andi öldrunarstofnun að greiða hluta sjúkratryggðs.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 5. apríl 2022.

 

Willum Þór Þórsson.

Guðlaug Einarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica