Heilbrigðisráðuneyti

639/2021

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 1155/2013 um styrki vegna hjálpartækja. - Brottfallin

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Sjúkratryggingum Íslands er heimilt að veita styrki vegna tveggja hjálpartækja af sömu gerð til barna sem eiga fasta búsetu á tveimur stöðum, heimildin nær til hjálpartækja við salernisferðir, sjúkra­rúma, dýna og stuðningsbúnaðar.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 26. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 27. maí 2021.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Guðlaug Einarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica