Félagsmálaráðuneyti

1338/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1255/2016, um ráðstöfunarfé og dagpeninga samkvæmt lögum um almannatryggingar. - Brottfallin

1. gr.

Í stað "3.744 kr." í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 3.879 kr.

 

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "925.008 kr." í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 958.308 kr.
  2. Í stað "1.423.089 kr." í 2. málsl. 1. mgr. kemur: 1.474.320 kr.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. mgr. 48. gr., sbr. 70. gr., laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2021. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1120/2019, um breytingu á reglugerð nr. 1255/2016, um ráðstöfunarfé og dag­peninga samkvæmt lögum um almannatryggingar.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 21. desember 2020.

 

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica