Félagsmálaráðuneyti

1236/2019

Reglugerð um fjárhæð atvinnuleysistrygginga. - Brottfallin

1. gr.

Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði skv. 32. gr. laga um atvinnu­leysistryggingar miðast við tryggingahlutfall hins tryggða þannig að þær nemi aldrei hærri fjárhæð en 456.404 kr. á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu, sbr. 15. eða 19. gr. laganna. Við útreikn­ing á atvinnuleysisbótum fyrir hvern dag skal miða við 21,67 daga í mánuði.

2. gr.

Sá sem telst að fullu tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á rétt til óskertra grunnatvinnuleysisbóta sem skulu nema 289.510 kr. á mánuði. Lágmarksréttur til atvinnuleysis­trygginga veitir rétt til ¼ hluta grunnatvinnuleysisbóta.

3. gr.

Frítekjumark skv. 2. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skal vera 71.262 kr. á mánuði.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 4. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, gildir um fjárhæð atvinnuleysis­trygginga sem reiknast fyrir tímabilið frá og með 1. janúar 2020 og síðar og öðlast gildi 1. janúar 2020. Frá sama tíma fellur brott reglugerð nr. 410/2018, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga, sem og reglugerð nr. 1204/2018, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

Félagsmálaráðuneytinu, 19. desember 2019.

Ásmundur Einar Daðason.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica