Heilbrigðisráðuneyti

1138/2019

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1239/2018 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

1. gr.

Í stað "31. desember 2019" í 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2020.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 19. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkra­trygg­ingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 6. desember 2019.

Svandís Svavarsdóttir.

Elsa B. Friðfinnsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica