1. gr.
Í stað dagsetningarinnar "30. júní 2019" í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2019.
2. gr.
Í stað dagsetningarinnar "30. júní 2019" í 8. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2019.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 22. gr., 24. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, sbr. 1. mgr. 21. gr. og 29. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 26. júní 2019.
F. h. r.
Vilborg Hauksdóttir.
Elsa B. Friðfinnsdóttir.