Heilbrigðisráðuneyti

613/2019

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1255/2018 um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. - Brottfallin

1. gr.

Í stað dagsetningarinnar "30. júní 2019" í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2019.

2. gr.

Í stað dagsetningarinnar "30. júní 2019" í 9. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2019.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 19. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, sbr. einnig 29. gr. sömu laga, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 26. júní 2019.

F. h. r.

Vilborg Hauksdóttir.

Elsa B. Friðfinnsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica