Heilbrigðisráðuneyti

225/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 520/2018, um skipulag vísindarannsókna á heilbrigðissviði.

1. gr.

Eftirfarandi fellur brott úr 6. gr. reglugerðarinnar:

Ef um fjölþjóðlega rannsókn er að ræða skal leyfi vísindasiðanefndar í þeim löndum þar sem rann­sóknin fer fram einnig fylgja umsókn.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 2. mgr. 5. gr. laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 19. febrúar 2019.

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Einarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica