Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1254/2018

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 451/2013 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar.

1. gr.

15. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga tekur aðeins til kostnaðar vegna nauðsynlegra tannlækninga og tannréttinga vegna eftirtalinna tilvika:

  1. Skarðs í efri tannboga eða klofins góms, harða eða mjúka, sem valdið hefur alvarlegri tannskekkju. Sama á við ef meiri líkur en minni eru á að afleiðingar fæðingargallans verði alvarlegar.
  2. Annarra heilkenna sem geta valdið sambærilega alvarlegri tannskekkju, sbr. 1. tl. Sama á við ef líkur eru á að afleiðingar heilkennisins verði alvarlegar.
  3. Meðfæddrar vöntunar fjögurra eða fleiri fullorðinstanna framan við 12 ára jaxla.
  4. Annarra sambærilega alvarlegra tilvika, svo sem alvarlegs misræmis í vexti beina í höfuðkúpu og kjálka þar sem meðferð krefst kjálkafærsluaðgerðar þar sem bein eru bæði tekin í sundur og fest á nýjum stað í sömu aðgerð.

2. gr.

Í stað orðanna ,,Heimildin gildir frá og með 1. janúar 2017 til og með 31. desember 2018" í 2. málsl. 21. gr. kemur: Heimildin gildir frá og með 1. janúar 2019 til og með 31. desember 2020.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 20. gr., 1. mgr. 29. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 17. desember 2018.

Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra.

Guðrún Sigurjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.