Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1199/2018

Reglugerð um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2019.

1. gr. Gildissvið og framkvæmd.

Reglugerð þessi gildir um eingreiðslur til elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega á árinu 2019.

Orlofsuppbætur skulu greiddar 1. júlí og desemberuppbætur skulu greiddar 1. desember.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðarinnar.

2. gr. Eingreiðslur til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.

Orlofsuppbót til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega skal nema 20% af fjárhæð tekjutryggingar lífeyrisþega skv. 22. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, og fjárhæð heimilisuppbótar örorkulífeyrisþega skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega síðustu 12 mánuði fyrir greiðslu uppbótarinnar.

Desemberuppbót til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega skal nema 30% af fjárhæð tekjutryggingar og heimilisuppbótar lífeyrisþega, sbr. 1. mgr. Fjárhæð desemberuppbótar reiknast miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega á árinu 2019.

3. gr. Eingreiðslur til ellilífeyrisþega.

Full eingreiðsla til ellilífeyrisþega skal nema 93.555 kr. Skal 40% þeirrar fjárhæðar greiðast 1. júlí sem orlofsuppbót og 60% fjárhæðarinnar 1. desember sem desemberuppbót.

Eingreiðsla skal lækka um 2% af tekjum lífeyrisþega, sbr. 16. og 23. gr. laga um almannatryggingar, uns hún fellur niður. Lækkun vegna tekna tekur þó ekki til eingreiðslu á hálfan ellilífeyri sem greiddur er skv. 4. mgr. 17. gr. sömu laga þar til lífeyristaka hefst að fullu.

Um áhrif búsetu, frestun og flýtingu á töku lífeyris á fjárhæð eingreiðslna skv. 1. mgr. fer skv. 17. gr. laga um almannatryggingar.

Þeir sem fá greiddan hálfan ellilífeyri skv. 4. mgr. 17. gr. laga um almannatryggingar skulu fá hálfar eingreiðslur samkvæmt 1. mgr.

Hafi ellilífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skulu eingreiðslur til hans skv. 1. mgr. greiddar í hlutfalli við greiðsluréttindi hans.

Ef fyrir liggur að eingreiðsla í júlí hafi verið of- eða vangreidd skal það leiðrétt við eingreiðslu desembermánaðar og gilda ákvæði 55. gr. laga um almannatryggingar eftir því sem við á.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2019. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1196/2017, um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2018, með síðari breytingu.

Velferðarráðuneytinu, 17. desember 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.