Velferðarráðuneyti

139/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1196/2017, um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2018. - Brottfallin

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "búsetu og frestun" í 3. mgr. 3. gr. kemur: búsetu, frestun og flýtingu.
  2. Á eftir 3. mgr. 3. gr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Þeir sem fá greiddan hálfan elli­lífeyri skv. 4. mgr. 17. gr. laga um almannatryggingar skulu fá hálfar eingreiðslur sam­kvæmt 1. mgr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 23. janúar 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica