1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða:
1. mgr. orðast svo:
Um þá sem ljúka framhaldsnámi, skv. 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. fyrir 1. júlí 2018, gildir ekki ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 3. gr.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. og 30. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 6. júní 2017.
Óttarr Proppé
heilbrigðisráðherra.
Margrét Björnsdóttir.