Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 17. ágúst 2023

29/2017

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi nr. 467/2015.

1. gr.

Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Heimilt er að veita umsækjanda um sérfræðileyfi skv. 10. gr. takmarkaða undanþágu á einstaklingsgrundvelli frá hluta sérnáms sem skráð er í lið 5.1.3. V. viðauka tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, samanber tilskipun 2013/55/ESB, enda hafi hann þegar lokið við þann hluta sérnámsins í öðru sérnámi í læknisfræði og þegar öðlast sérfræðileyfi á grundvelli þess sérnáms. Undanþágan má ekki taka til meira en helmings af lágmarkstíma í viðkomandi sérnámi.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:

Við lið XIX. Viðbótarsérgreinar: bætast tveir nýir töluliðir sem verða 4. og 5. tölul. svohljóðandi:

  1. Líknarlækningar: Til að læknir geti hlotið sérfræðileyfi í líknarlækningum sem viðbótarsérgrein skal hann hafa hlotið sérfræðileyfi í aðalsérgrein skv. 2. mgr. Þetta á þó ekki við hafi læknir einungis hlotið sérfræðileyfi í atvinnu- og umhverfislækningum, sérgreinum innan lækningarannsókna, erfðalækningum, lýðheilsufræði, myndgreiningu, réttarlæknisfræði og klínískri taugalífeðlisfræði.
    Til að öðlast viðurkenningu skal viðkomandi hafa lokið að minnsta kosti tveggja ára viðurkenndu viðbótarsérnámi í líknarlækningum.
  2. Sérhæfðar verkjalækningar: Til að læknirgeti hlotið sérfræðileyfi í sérhæfðum verkjalækningum sem viðbótarsérgrein skal hann hafa hlotið sérfræðileyfi í aðalsérgrein skv. 2. mgr. Þetta á þó ekki við hafi læknir einungis hlotið sérfræðileyfi í atvinnu- og umhverfislækningum, sérgreinum innan lækningarannsókna, erfðalækningum, lýðheilsufræði, myndgreiningu, réttarlæknisfræði og klínískri taugalífeðlisfræði.
    Til að öðlast viðurkenningu skal viðkomandi hafa lokið að minnsta kosti tveggja ára viðurkenndu viðbótarsérnámi í sérhæfðum verkjalækningum.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 8., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 6. janúar 2017.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Margrét Björnsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.