1. gr.
Fjárhæðir bóta samkvæmt III. og VI. kafla laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og greiðslur samkvæmt 63. gr. sömu laga, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2017:
| Lífeyristryggingar | kr. á mánuði | kr. á ári |
| Ellilífeyrir, skv. 1. mgr. 23. gr. | 228.734 | 2.744.808 |
| Örorkulífeyrir, skv. 4. mgr. 18. gr. | 42.852 | 514.224 |
| Örorkustyrkur, skv. 1. mgr. 19. gr. | 31.679 | 380.148 |
| Örorkustyrkur, skv. 2. mgr. 19. gr. | 42.852 | 514.224 |
| Barnalífeyrir, skv. 6. mgr. 20. gr. | 31.679 | 380.148 |
| Aldurstengd örorkuuppbót (100%), skv. 2. mgr. 21. gr. | 42.852 | 514.224 |
| Tekjutrygging, skv. 3. mgr. 22. gr. | 137.226 | 1.646.712 |
| Annað | kr. á dag | kr. á mánuði | kr. á ári |
| Ráðstöfunarfé, skv. 8. mgr. 48. gr. | 68.662 | 823.944 | |
| Dagpeningar utan stofnunar, skv. 9. mgr. 48. gr. | 3.334 | ||
| Fyrirframgreiðsla meðlags, skv. 1. mgr. 63. gr. | 31.679 | 380.148 |
2. gr.
Fjárhæðir bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2017:
| kr. á mánuði | kr. á ári | |
| Mæðra- og feðralaun með tveimur börnum, skv. 2. mgr. 2. gr. | 9.171 | 110.052 |
| Mæðra- og feðralaun með þremur börnum | ||
| eða fleiri, skv. 2. mgr. 2. gr. | 23.844 | 286.128 |
| Barnalífeyrir, skv. 1. mgr. 3. gr. | 31.679 | 380.148 |
| Umönnunargreiðslur (100%), skv. 1. mgr. 4. gr. | 171.409 | 2.056.908 |
| Makabætur og umönnunarbætur (80%), skv. 5. gr. | 144.062 | 1.728.744 |
| Dánarbætur, skv. 1. mgr. 6. gr. | 47.186 | 566.232 |
| Dánarbætur, skv. 2. mgr. 6. gr. | 35.347 | 424.164 |
| Endurhæfingarlífeyrir, skv. 1. mgr. 7. gr. | 42.852 | 514.224 |
| Heimilisuppbót, skv. 2. mgr. 8. gr. | 52.316 | 627.792 |
| Heimilisuppbót, skv. 3. mgr. 8. gr. | 39.851 | 478.212 |
| Uppbót vegna reksturs bifreiðar, skv. 2. mgr. 10. gr. | 15.839 | 190.068 |
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2017. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1234/2015, um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2016.
Velferðarráðuneytinu, 23. desember 2016.
Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.