Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Breytingareglugerð

1/2016

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006, um stofnanaþjónustu fyrir aldraða, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "74.696 kr." kemur: 81.942 kr.
  2. Í stað orðanna "daggjöldum á dvalarheimili eins og þau eru ákveðin af ráðherra, sbr. 2. gr." kemur: að hámarki 384.740 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og gildir frá 1. janúar 2016. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1217/2014, um (8.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006, um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.

Velferðarráðuneytinu, 4. janúar 2016.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Vilborg Ingólfsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.