Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. júní 2022

969/2015

Reglugerð um styrki vegna kaupa á heyrnartækjum hjá öðrum en Heyrnar- og talmeinastöð.

1. gr. Styrkir til kaupa á heyrnartækjum.

Einstaklingar 18 ára og eldri sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og hafa tónmeðalgildi á betra eyranu ≥ 30 dB við tíðnina 0,5, 1,0, 2,0 og 4,0 kHz eða við tíðnina 2,0, 4,0 og 6,0 kHz eiga rétt á styrk að fjárhæð 60.000 kr. frá Sjúkratryggingum Íslands vegna kaupa á heyrnartækjum hjá rekstrarleyfishöfum, sbr. reglugerð um sölu heyrnartækja, nr. 148/2007.

Rekstrarleyfishöfum ber að vísa þeim sem greinast með heyrnarskerðingu á betra eyra ≥ 70 dB til frekari endurhæfingar hjá Heyrnar- og talmeinastöð.

Hver einstaklingur getur mest notið styrkja hjá Sjúkratryggingum Íslands eða greiðsluþátttöku hjá Heyrnar- og talmeinastöð, sbr. reglugerð um greiðsluþátttöku ríkisins í hjálpartækjum sem Heyrnar‑ og talmeinastöð útvegar, fyrir tvö heyrnartæki, eitt fyrir hvort eyra, á hverju fjögurra ára tímabili. Heimilt er að víkja frá þessu ef heyrn breytist umtalsvert að mati háls-, nef- og eyrnalæknis þannig að talin er nauðsyn á nýju heyrnartæki. Framvísa skal vottorði því til staðfestingar.

Heyrnar- og talmeinastöð skal miðla upplýsingum til Sjúkratrygginga Íslands um greiðsluþátttöku í heyrnartækjum sem Heyrnar- og talmeinastöð útvegar.

2. gr. Umsóknir til Sjúkratrygginga Íslands.

Sækja skal um styrk vegna kaupa á heyrnartækjum hjá rekstrarleyfishöfum til Sjúkratrygginga Íslands. Með umsókn um styrk skal fylgja greiðslukvittun frá söluaðila og niðurstöður heyrnarmælinga, framkvæmdar af háls-, nef- og eyrnalækni eða heyrnarfræðingi sem hlotið hefur fullnægjandi menntun sem slíkur, sem sýna að umsækjandi uppfylli skilyrði 1. mgr. 1. gr. Sé heyrnarmæling ekki framkvæmd af háls-, nef- og eyrnalækni eða heyrnarfræðingi þarf jafnframt vottorð háls-, nef- og eyrnalæknis þar sem staðfest er að viðkomandi hafi þörf fyrir heyrnartæki.

Sjúkratryggingar Íslands geta ákveðið að umsóknir skuli gerðar á sérstökum eyðublöðum sem stofnunin útbýr.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem er sett með stoð í 5. gr. laga um Heyrnar- og talmeinastöð, nr. 42/2007, og 26. sbr. 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, öðlast þegar gildi. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð nr. 146/2007, um styrki vegna kaupa á heyrnartækjum hjá öðrum en Heyrnar- og talmeinastöð.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.