Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

847/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 318/2013 um endurgreiðslu á umtalsverðum kostnaði við læknishjálp, lyf og þjálfun.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Endurgreiðslur taka til eftirfarandi læknis-, lyfja- og þjálfunarkostnaðar sem stofnast hefur hérlendis:

  1. Hluta sjúkratryggðs í kostnaði við læknishjálp, rannsóknir, geisla- og myndgreiningar og beinþéttnimælingar, á opinberum sjúkrastofnunum og hjá læknum sem starfa samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands, sbr. 4.-6. gr., 1., 2. og 4. mgr. 9. gr., 12. gr., 13. gr. og 15. gr. reglugerðar nr. 1182/2013, um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingu.
  2. Hluta sjúkratryggðs í kostnaði við nauðsynleg lyf sem sjúkratryggingar taka þátt í að greiða og afgreidd eru gegn lyfseðli samkvæmt reglugerð nr. 313/2013, um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum, með síðari breytingum.
  3. Lyf vegna barna til 18 ára aldurs, sem afgreidd eru gegn lyfseðli.
  4. Hluta sjúkratryggðs í sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun á opinberum sjúkrastofnunum og hjá sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum og talmeinafræðingum sem starfa samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands, samkvæmt reglugerð nr. 166/2014, um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til og hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði við þjálfun, með síðari breytingum.

Áður en endurgreiðslur eru ákvarðaðar skal draga frá heildarkostnaði uppbætur sem elli- eða örorkulífeyrisþegi nýtur vegna læknishjálpar eða lyfja samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

a. 3. mgr. verður svohljóðandi:

Viðmiðunartekjur vegna endurgreiðslu eru eftirfarandi:

Viðmiðunartekjur
einhleypings næsta Kostnaður Endurgreiðsla útgjalda
almanaksár á undan 3 mánuðir umfram kostnað
2.100.000 kr. og lægri 0,7% af tekjum 90%
2.100.000-2.800.000 kr. 0,7% af tekjum 75%
2.800.000-4.000.000 kr. 0,7% af tekjum 60%
Viðmiðunartekjur
fjölskyldu næsta Kostnaður Endurgreiðsla útgjalda
almanaksár á undan 3 mánuðir umfram kostnað
3.150.000 kr. og lægri 0,7% af tekjum 90%
3.150.000-4.500.000 kr. 0,7% af tekjum 75%
4.500.000-6.400.000 kr. 0,7% af tekjum 60%

b. Í stað "3.890.000 kr." og "6.340.000 kr." í 4. mgr. kemur: 4.000.000 og 6.400.000 kr.

c. Í stað "435.000 kr." í 5. mgr. kemur: 465.000 kr.

3. gr.

Í stað "4. maí 2013" í 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. október 2015.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 11. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. október 2015.

Velferðarráðuneytinu, 17. september 2015.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.