Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1098/2013

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (IV).

1. gr. Gildistaka reglugerðar framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 1224/2012.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1224/2012 frá 18. desember 2012 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa og á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 883/2004 skal öðlast gildi hér á landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2013 frá 3. maí 2013 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) og bókun 37 við EES-samninginn, sbr. einnig 3. gr. laga nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum, og bókun 1 við EES-samninginn.

Reglugerðin skal gilda með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

2. gr. Efni.

Í reglugerð þessari er mælt fyrir um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og velferðarráðuneytið fer með.

Í reglugerð nr. 1099/2013 er kveðið á um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 443/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (réttindi úr lífeyrissjóðum og til barnabóta (I)) og fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með.

3. gr. Fylgiskjöl.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2013 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 61 frá 31. október 2013, bls. 48 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1224/2013, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 28, frá 16. maí 2013, bls. 369, eru birtar sem fylgiskjöl með reglugerð þessari.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum, 6. mgr. 42. gr. og 64. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, 35. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum, og 55. gr., sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 25. nóvember 2013.

Eygló Harðardóttir Kristján Þór Júlíusson
félags- og húsnæðismálaráðherra. heilbrigðisráðherra.

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.