Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1134/2013

Reglugerð um desemberuppbætur úr Atvinnuleysistryggingasjóði.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur úr Atvinnuleysistryggingasjóði í desember 2013.

2. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2013 og verið skráður á atvinnuleysisskrá í samtals tíu mánuði á árinu 2013 á rétt á desemberuppbót úr Atvinnuleysistryggingasjóði að fjárhæð kr. 51.783 enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður á atvinnuleysisskrá þann tíma.

3. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2013 og verið skráður á atvinnuleysisskrá samtals í tíu mánuði á árinu 2013 en tryggður hlutfallslega á umræddum tíma á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður á atvinnuleysisskrá þann tíma.

4. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2013 en verið skráður á atvinnuleysisskrá í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2013 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við þann tíma sem hann hefur verið skráður á atvinnuleysisskrá enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma, sbr. þó 5. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2013 en verið skráður á atvinnuleysisskrá í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2013 ásamt því að hafa verið hlutfallslega tryggður á umræddum tíma á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir og þann tíma sem hann hefur verið skráður á atvinnuleysisskrá á árinu 2013, sbr. þó 5. gr.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. eða 2. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður á atvinnuleysisskrá þann tíma.

5. gr.

Desemberuppbót skv. 4. gr. skal aldrei nema lægri fjárhæð en kr. 12.946 miðað við að viðkomandi hafi átt rétt á óskertu tryggingarhlutfalli skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma. Lágmarks desemberuppbót er ¼ hluti sömu fjárhæðar.

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Desemberuppbætur samkvæmt reglugerð þessari skulu greiddar út eigi síðar en 24. desember 2013.

Velferðarráðuneytinu, 18. desember 2013.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.