Velferðarráðuneyti

498/2012

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1052/2009 um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri. - Brottfallin

1. gr.

2. mgr. 5. gr. orðast svo:

Við útreikning uppbóta skv. III. og IV. kafla þessarar reglugerðar skal ekki taka tillit til uppbóta á lífeyri skv. 9. gr. laga um félagslega aðstoð, fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga og orlofs- og desemberuppbóta frá Tryggingastofnun ríkisins. Þá skal við útreikning uppbótar skv. III. kafla ekki taka tillit til aldurstengdrar örorkuuppbótar, sbr. 21. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. mgr. 9. gr., sbr. 14. gr., laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, sbr. einnig 70. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 29. maí 2012.

Guðbjartur Hannesson.

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica