1227/2011
Reglugerð um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2012 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar. - Brottfallin
1. gr.
Fjárhæðir greiðslna samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar skulu vera sem hér segir fyrir árið 2012:
- Hámarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 1. málsl. 3. mgr. 10. gr. laganna skal nema 535.700 kr. á mánuði.
- Lágmarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 2. málsl. 3. mgr. 10. gr. laganna skal nema 139.000 kr. á mánuði.
- Fjárhæð greiðslna til líffæragjafa í námi skv. 1. mgr. 15. gr. laganna skal nema 139.000 kr. á mánuði.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 18. gr., sbr. 8. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 15. gr. laga nr. 40/2009, um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, öðlast gildi 1. janúar 2012.
Velferðarráðuneytinu, 22. desember 2011.
Guðbjartur Hannesson.
Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.